Innlent

Reyna að rjúfa pattstöðuna áður en verk­fall skellur á

Birgir Olgeirsson skrifar
Samninganefndir flugvirkja og Icelandair voru boðaðar til fundar hjá Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara á hádegi. Formlegar viðræður höfðu legið niðri síðan í júní.
Samninganefndir flugvirkja og Icelandair voru boðaðar til fundar hjá Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara á hádegi. Formlegar viðræður höfðu legið niðri síðan í júní. Einar

Flugvirkjar og Icelandair hafa náð saman um nokkur atriði en ekkert hefur þokast í launaliðnum, að sögn formanns Flugvirkjafélags Íslands. Hann gagnrýnir einnig tilkynningar félagsins um starfsemi erlendis meðan kjaraviðræður standa yfir.

Samninganefndirnar voru boðaðar til fundar hjá ríkissáttasemjara á hádegi í dag, þess fyrsta formlega síðan slitnaði upp úr viðræðum 22. júní. Samningar hafa verið lausir frá áramótum og ótímabundið verkfall á að hefjast 23. september.

Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, ræddi við fréttastofu fyrir fundinn og var spurður hvernig hann hefði komið til.

„Fundurinn er svolítið tilkominn að okkar frumkvæði, en það er bara partur af deilu sem þessari að menn þurfa að hittast og reyna að finna lausn á vandamáli eða á deilunni.“

Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segir fundinn að hluta til kominn að frumkvæði flugvirkja. Hann segir fundarboðið þó ekki til marks um að dregið hafi saman með deiluaðilum.Einar

Spurður hvort einhver framgangur í óformlegum samskiptum hefði orðið tilefni fundarins svarar hann:

„Nei, ég myndi nú ekki segja það en við erum alltaf að leitast við að ná sátt.“

Ekki hafði verið ákveðið hversu lengi fundað yrði.

Horfa til launaþróunar síðustu ára

Flugvirkjafélagið hefur borið grunnlaun félagsmanna sinna saman við laun iðnfræðinga sem Samtök atvinnulífsins semja einnig við. Samkvæmt tölum félagsins hækkuðu grunnlaun flugvirkja um 27,2 prósent á árunum 2019 til 2025 en samanburðarhópsins um 50,8 prósent. Munurinn á hækkununum er því 23,6 prósentustig. Félagið segir flugvirkja hafa tekið á sig kjaraskerðingu með langtímasamningi í heimsfaraldrinum.

Óskar Einarsson segir flugvirkja ávallt reiðubúna að veita undanþágur frá verkfalli skapist neyðarástand. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall þeirra 23. september.einar

Óskar lýsir afstöðu flugvirkja til þess tilboðs sem nú liggur fyrir:

„Þeir bjóða 3,5% sem er það sem er á almennum markaði. (…) Við erum að deila um það sem við teljum okkur eiga inni og höfum dregist aftur úr með.“

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur á móti sagt flugvirkja hafa fengið hækkanir í takt við almenna vinnumarkaðinn og félagið hafa teygt sig eins langt og það geti. Icelandair hefur einnig lagt til að óháður gerðardómur skeri úr ágreiningi um launaliðinn.

Tvær leiðir fyrir sáttatillögur

Ein möguleg leið til lausnar er að ríkissáttasemjari leggi fram sáttatillögu. Innanhússtillaga er óformleg tillaga sem samninganefndirnar taka afstöðu til. Formleg miðlunartillaga byggist hins vegar á lögum og er borin undir atkvæði. Sáttasemjara ber að ráðfæra sig við nefndirnar áður en hann leggur hana fram en þarf ekki samþykki þeirra til þess.

Óskar var spurður hvernig flugvirkjar myndu taka miðlunartillögu.

„Það er eitthvað sem við bara skoðum en það þarf þá að innihalda eitthvað sem okkur hugnast.“

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari getur lagt fram miðlunartillögu sem færi í atkvæðagreiðslu. Deiluaðilar gætu samið um að fresta verkfallinu meðan kosið væri, en frestunin væri ekki sjálfkrafa.Einar

Komi til slíkrar tillögu geta deiluaðilar samið um að fresta verkfallinu meðan greitt er atkvæði um hana. Framlagningin ein og sér frestar aðgerðunum ekki.

Í Eflingardeilunni árið 2023 kom upp hindrun við framkvæmd atkvæðagreiðslu þegar Landsréttur hafnaði kröfu um að knýja félagið til að afhenda kjörskrá, lista yfir atkvæðisbæra félagsmenn. Niðurstaðan afnam þó ekki heimild sáttasemjara til að leggja fram miðlunartillögu.

Segir tilkynningar „menga samningaviðræðurnar“

Icelandair stofnaði fyrr á árinu dótturfélag í Vilníus sem sinnir skipulagi og eftirliti með viðhaldi flugvéla í langtímaleigu hjá erlendum viðskiptavinum. Félagið hefur einnig keypt 49 prósenta hlut í starfsemi Play á Möltu.

Óskar segir verkefni sem hafi tilheyrt flugvirkjum hér á landi færast til Litháens og tilkynningar um erlenda starfsemi „menga samningaviðræðurnar“. Hann telur fjárfestingu í erlendu flugrekstrarleyfi og skráningu véla erlendis fela í sér félagsleg undirboð.

Hann tekur þó fram að þessi mál séu ekki hluti kjaraviðræðnanna sjálfra. Spurður nánar um gagnrýnina segir hann:

„Þetta er allavega tilkynnt meðan samningar eru í gangi og það finnst mér vera mjög óeðlilegt.“

Icelandair sagði við Vísi í apríl að starfsemin í Vilníus ætti að styrkja leiguverkefni félagsins og engum hefði verið sagt upp vegna breytinganna. Bogi sagði á laugardag að engin áform væru um breytingar á viðhaldi véla í leiðakerfinu til og frá Keflavík vegna Möltukaupanna. Þau ættu að styrkja innviði félagsins og styðja við vöxt þess hér á landi.

Reiðubúnir að veita undanþágur

Rúmlega þúsund farþegar höfðu í gær nýtt sér boð Icelandair um að færa flug vegna yfirvofandi verkfalls. Boðið nær til bókana 23. og 24. september og breytingar ráðast af sætaframboði.

Óskar var spurður um viðvaranir ferðaþjónustunnar um mikið fjárhagslegt tjón. Hann segist ekki hafa gögn til að meta hvort tölurnar sem nefndar hafi verið séu réttar eða rangar.

Hann segir flugvirkja ávallt reiðubúna að veita undanþágur frá verkfallsaðgerðum skapist neyðarástand.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×