Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Valur Páll Eiríksson skrifar 19. september 2026 09:30 Löggæslan verður umtalsverð í Lundúnum í dag vegna leiks Millwall við West Ham. Matthew Lloyd/Getty Images Millwall og West Ham mætast í ensku B-deildinni í hádeginu í dag. Um er að ræða einn hatramannasta ríg Bretlandseyja og öryggisgæslan umtalsvert meiri en hefðbundið er.
Grannfélögin eru að mætast í fyrsta sinn frá árinu 2012, síðast þegar West Ham var í B-deildinni. Hatrið er geigvænlegt á milli stuðningsmanna félaganna sem má rekja mörg ár aftur í tímann. Rígurinn var þá gerður ódauðlegur á hvíta tjaldinu í kvikmyndinni Green Street Hooligans með þá Elijah Wood og Charlie Hunnam í aðalhlutverki frá árinu 2005. Öryggisgæsla vegna leiksins er töluvert meiri en í kringum hvern annan fótboltaleik. Um 400 lögreglumenn verða á svæðinu í kringum leikinn, fjórfalt fleiri en venjulegt er. „Töluverður fjöldi lögreglumanna verður á svæðinu,“ segir í yfirlýsingu frá lögreglunni þar sem lögreglumenn á hestum auk þeirra með hunda verða á svæðinu. „Andlitsgreining í rauntíma verður einnig notuð,“ segir einnig í yfirlýsingu lögreglunnar í London. Sú tækni notar öryggismyndavélar í beinni til að skanna stóra mannfjölda og eru andlitin síðan borin saman við eftirlitslista lögreglunnar til að hjálpa lögreglumönnum að finna fólk sem er eftirlýst fyrir alvarleg brot eða er í banni frá fótboltaleikjum. West Ham fær 1.774 miða á leikinn sem fram fer á The Den í hádeginu. Það er um 300 færri en Bolton fékk á síðasta heimaleik Millwall í deildinni. 54 stuðningsmenn West Ham fengu lífstíðarbann þegar liðin mættust í enska deildabikarnum í ágúst árið 2009. Sá leikur hefur verið kallaður óeirðirnar á Upton Park þar sem mikil læti voru fyrir utan völlinn og stuðningsmenn óðu inn á völlinn oftar en einu sinni í 3-1 sigri West Ham eftir framlengdan leik.
West Ham United Enski boltinn Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira