Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Agnar Már Másson skrifar 19. september 2026 10:23 Wolt er í eigu DoorDash. Vísir Wolt á Íslandi tvöfaldaði tekjur sínar í fyrra en fyrirtækið á nú í kjaradeilu við sendla sem lýsa skertum launakjörum. Í fyrra skilaði félagið rúmlega hundrað milljóna króna hagnaði eftir skatta og fjármagnsliði.
Tekjur Wolt á Íslandi (Wolt Enterprises Iceland ehf.) árið 2025 námu 1,2 milljörðum króna, sem er rétt tæplega tvöföldun frá 2024 þegar tekjurnar voru alls um 631 milljón króna. Hagnaður félagsins á árinu nam 107 milljónum króna í fyrra, en árið áður hafði félagið skilað 29 milljóna króna tapi. Greint var frá því á miðvikudaginn þegar sextíu Wolt-sendlar á Íslandi lögðu niður störf og sögðu að Wolt hefði skert laun sendla. Þessu hafa talsmenn Wolt hafnað. Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ sagði við Vísi í vikunni að verkalýðsfélög hefðu ítrekað reynt að ná samkomulagi við Wolt um að gerður yrði kjarasamningur við starfsmenn en því hefði verið hafnað. Kostnaður við seldar vörur jókst um 65 prósent Meðalfjöldi stöðugilda Wolt á Íslandi yfir árið jókst um tíu milli ára og voru samkvæmt ársreikningi 34 árið 2025. Félagið greiddi alls 221 milljón í laun og um 56 milljónir í annan starfsmannakostnað. Launatengdur kostnaður jókst því um þrjátíu prósent á milli ára. Kostnaðarverð seldra vara jókst um 65 prósent milli ára og var 360 milljónir króna árið 2025. Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður nam 52 milljónum. Annar kostnaður var að miklu leyti á pari við fyrra ár; afskriftir námu um 6 milljóna króna tapi og annar rekstrarkostnaður nam um 172 milljónum. Rekstrarhagnaður fyrir skatta og fjármagnsliði nam því 372 milljónum króna. Ekki er ljóst hvað skýrir 237 milljóna króna gengistap sem bókfært er hjá fyrirtækinu árið 2025, en það var aðeins 14,3 milljónir króna árið 2024. Handbært fé í lok árs 2025 var 327,5 milljónir króna, samanborið við 190,5 m.kr. árið áður. Eigið fé félagsins er þá ekki lengur neikvætt en í árslok nam það 77,7 milljónum króna. Móðurfélagið skilar tapi ár eftir ár Stjórnin bókar að markaðurinn fyrir matarsendingar á Íslandi sé að verða þroskaðri, en telur áfram vaxtarmöguleika í matvöru, smásölu, öðrum „on-demand“ sendingum, stækkun afhendingarsvæða og fleiri söluaðilum. Félagið er að öllu leyti í eigu finnska félagsins Wolt Oy, en það er í eigu bandaríska heimsendingarisans DoorDash sem stendur að miklu leyti undir fjármögnun á stækkun félagsins. DoorDash er skráð í bandarísku kauphöllina. Finnska móðurfélagið hefur þó ítrekað skilað tapi síðustu fimm ár; rekstrartap Wolt Oy nam 643 milljónum evra (89 ma.kr.) árið 2025 að því er Helsingin Sanomat greinir frá. Viðskipti Wolt á Íslandi við móður- og systurfélög námu 327,7 milljónum króna í fyrra.
Heimsendingarþjónusta Kjaramál Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira