„Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Agnar Már Másson skrifar 20. september 2026 13:06 Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur (t.h.) ásamt Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra. Vísir/EPA Forsætisráðherra Danmerkur gefur ekkert upp um innihald samkomulags við Bandaríkin um framtíð Grænlands en segir samkomulagið engu að síður gott. Sérfræðingar við háskóla í Kína setja samkomulagið í samhengi við komandi þingkosningar í Bandaríkjunum og fyrirhugaða heimsókn forseta Kína til Bandaríkjanna síðar í vikunni.
Innihald samkomulagsins liggur ekki fyrir. „Ég myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott,“ sagði danski forsætisráðherrann Mette Frederiksen er hún ræddi við blaðamenn sem náðu tali af henni er hún var að stíga upp í flugvél þar sem hún heldur á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í Bandaríkjunum, þar sem til stendur að undirrita boðað samkomulag milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um framtíð varnarmála á Grænlandi. Danskir ráðamenn segja samkomulagið virða fullveldi Grænlands á meðan Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði það gefa Bandaríkjaher full yfirráð yfir varnarmálum á Grænlandi til frambúðar. Frederiksen sagðist skilja vel að fólk væri forvitið um innihald samkomulagsins en kveðst hún ekki ætla að tjá sig um það fyrr en lokasamkomulag liggur fyrir. „Ég kem ekki til með að fara í nein smáatriði, og það eru margar getgátur, og ég skil vel að fólk sé rosalega upptekið af innihaldinu,“ sagði ráðherrann og tók einnig fram að allar „rauðar línur“ Dana og Grænlendinga hafi verið virtar. Býst við því að Trump virði samkomulagið Frederiksen staðfesti við TV2 og DR að hún myndi eiga fund með Trump Bandaríkjaforseta í New York. Þá er hún spurð hvort hún treysti á það að Trump muni standa við samkomulagið. „Ég geng út frá því. Við erum nú vön því að gera samkomulag hvort við annað í öllu mögulegu samhengi og við höfum varið miklum tíma í þetta, bæði pólitískt og diplómatískt.“ Kveðst hún eiga frábært samband við Bandaríkjaforseta. „Og í óstöðugum heimi þá tel ég að þetta samkomulag sé gott upp á okkar öryggi að gera.“ Trump sagði einnig að samkomulagið myndi banna öllum óvinum Bandaríkjanna að koma upp herstöðvum á landinu og er þar líklegast vísað að Kína og einkum Rússlandi sem hafa aukið umsvif sín á norðurslóðum síðustu ár. Íslenskir ráðamenn halda einnig til New York þar sem þeir munu einnig sækja allsherjarþingið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði við Vísi í gær að hún hefði verið upplýst um það að viðræðum miðaði fram milli Bandaríkjanna og Dana, þrátt fyrir að svo hafi ekki ávallt virst á yfirborðinu. Útspil fyrir heimsókn Kínverjans? Rýnendur sem enskumælandi miðillinn South China Morning Post í Kína telja tímasetninguna taktíska þar sem Xi Jingping, forseti Kína, hyggur á opinbera heimsókn til Bandaríkjanna á fimmtudag, 24. september, þar sem þjóðarleiðtogarnir munu eiga í viðræðum. Þetta er sagt eiga að styrkja samningastöðu Bandaríkjanna gagnvart Kína en einhvers konar jákvæð niðurstaða fyrir Bandaríkin eftir fund Trumps með Xi kynni að styrkja stöðu Repúblikana fyrir þingkosningar í nóvember er nú spáð ósigri. „Bandaríkin tilkynntu þessar fréttir á þessum tiltekna tímapunkti til að styrkja samningsstöðu sína á komandi leiðtogafundi Bandaríkjanna og Kína í næstu viku,“ sagði Wang Yiwei, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Renmin-háskólans í Kína í Peking. Það að Trump rammi samkomulagið inn með þeim hætti að það sé til þess að forða því að Grænland falli í hendur Kínverja eða Rússa sé aðeins fyrirsláttur enda hafi Kínverjar nánast enga viðveru í Grænlandi. „Þessi samningur miðar að framtíðinni. Hann mun ekki koma í veg fyrir leiðtogafund þjóðhöfðingja Kína og Bandaríkjanna, en hann mun vissulega hafa neikvæð áhrif á gagnkvæmt traust þeirra á milli,“ sagði Wang Yong, forstöðumaður Miðstöðvar alþjóðlegrar stjórnmálahagfræði við Peking-háskóla. Tilkynningin hafi einnig verið hönnuð til að þjóna innanlandspólitískum markmiðum í Bandaríkjunum, í ljósi þess að þingkosningar séu handan við hornið.
Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Kína Grænland Bandaríkin Danmörk Donald Trump Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Sjá meira