Rigning og vindur Bjarki Sigurðsson skrifar 24. september 2026 06:40 Haustið er svo sannarlega mætt til landsins. Vísir/Vilhelm Í dag er vaxandi austanátt, víða 13 til tuttugu metrar á sekúndu með morgninum en átján til 25 metrar á sekúndu sunnanlands fram að hádegi. Rigning um allt land og talsverð eða mikil úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum fram á kvöld.
Það dregur víða úr vindi seinnipartinn en gengur þá í norðaustan, fimmtán til 23 metrar á sekúndu á Vestfjörðum. Hiti fimm til ellefu stig. „Suðvestankaldi og víða skúrir, en að mestu léttskýjað norðaustanlands. Í nótt nálgast djúp lægð úr suðri og gengur í vaxandi austanátt með rigningu syðst. Austanhvassviðri eða -stormur, en rok syðst fram að hádegi. Búist er við talsverðri eða mikill rigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum. Síðdegis dregur úr vindi víðast hvar, en gerir þá hvassa norðaustanátt á Vestfjörðum. Gular veðurviðvaranir vegna vinds og rigningar taka gildi á morgun. Þeim sem eiga eitthvað undir veðri er bent á að fylgjast með veðurspám og -viðvörunum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Á morgun verður norðanátt, þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og talsverð rigning eða slydda og snjókoma til fjalla. Vestan og suðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu um landið sunnan- og austanvert og væta með köflum. Hiti þrjú til þrettán stig, kaldast á Vestfjörðum en hlýjast á Austurlandi. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á föstudag: Norðan 13-20 m/s norðvestantil og talsverð rigning eða slydda og snjókoma til fjalla. Vestan og suðvestan 5-13 um landið sunnan- og austanvert og væta með köflum. Hiti 2 til 12 stig, kaldast á Vestfjörðum, en hlýjast á Austurlandi. Á laugardag: Norðan 8-15 norðvestantil, en hægari vindur í öðrum landshlutum. Rigning eða slydda á Vestfjörðum og Norðurlandi og snjókoma til fjalla. Úrkomulítið sunnan- og austanlands. Hiti breytist lítið. Á sunnudag og mánudag: Norðlæg átt og rigning eða súld með köflum um landið norðan- og austanvert, en yfirleitt þurrt suðvestantil. Hiti 3 til 12 stig, svalast á Vestfjörðum. Á þriðjudag: Austan- og norðaustanátt. Skýjað og yfirleitt þurrt, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast suðvestantil. Á miðvikudag: Norðaustanátt með súld eða rigningu, en þurrt að mestu sunnan heiða. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Sjá meira