Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Smári Jökull Jónsson skrifar 29. september 2026 12:56 Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar og hún telur að hámarki atvinnuleysis sé ekki náð. Vísir/Vilhelm Forstjóri Vinnumálastofnunar segir hápunkti atvinnuleysis ekki hafa verið náð en staðan á vinnumarkaði komi þó ekki á óvart. Árstíðabundin sveifla sé meiri núna en síðustu ár en fjöldi þeirra sem sagt hafi verið upp verði ekki ljós fyrr en eftir mánaðamót.
Að minnsta kosti á annað hundrað manns hefur verið sagt upp í hópuppsögnum síðustu daga. Um tuttugu var sagt upp hjá Arion banka og rúmlega tuttugu í hópuppsögn hjá Íslenskum aðalverktökum fyrr í mánuðinum. Þá hefur Netapp hætt starfsemi sinni hér á landi og öllum sjötíu og fimm starfsmönnum fyrirtækisins verið sagt upp. Alls voru rúmlega átta þúsund og sjöhundruð á atvinnuleysisskrá í lok síðasta mánaðar. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar segir um að ræða þróun sem spáð hafi verið fyrir um en spáin geri ráð fyrir að hápunktinum verði náð í febrúar á næsta ári. Þannig að við erum ekki búin að sjá fyrir endann á þessum uppsögnum sem eru í gangi núna þessa dagana? Nei, ég hef ekki trú á því,“ segir Unnur í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Það er alltaf þessi árstíðabundna sveifla hérna á Íslandi að það dregst alltaf saman vinnumarkaðurinn yfir vetrarmánuðina þannig að það er ekkert nýtt. En það mun verða aðeins hærra núna í ár heldur en í fyrra og í fyrra var það aðeins hærra heldur en í hittiðfyrra þannig að þetta hefur farið stighækkandi.“ „Gæti orðið flókið“ Unnur segist ekki vera með tölur um fjölda hópuppsagna í septembermánuði, þær tölur verði gefnar út eftir mánaðamót. Spár greiningaraðila séu að ganga eftir en uppsagnir í byggingariðnaði séu mest áberandi. „Hann hefur verið í mestum vanda. Svo förum við að finna fyrir afleiddum áhrifum, eins og kannski verslun og þjónusta og vöruflutningar og fleira. Svo má ekki gleyma að í lok september þá erum við að fara inn í árstíðabundna sveiflu á íslenskum vinnumarkaði, það er alltaf þannig. Þannig að þetta er ekki bara efnahagsástandið á þessu ári, þetta er kannski meiri kólnun en áður, en ekkert sem er að koma okkur á óvart.“ Þó uppsagnir í byggingariðnaði hafi verið áberandi er einnig um að ræða uppsagnir starfsfólks með sérhæfða þekkingu, líkt og hjá Arion Banka og Netapp, sem gæti lent í vandræðum með að finna störf við hæfi. „Það er líka nýr veruleiki, það er alveg rétt. Það gæti orðið flókið ef fólk er með mikla sérfræðiþekkingu og missir störfin sín. Það er ef það kemur ekki eitthvað annað í staðinn.“
Vinnumarkaður Tengdar fréttir Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Rúmlega tuttugu var sagt upp störfum í hópuppsögn hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) í mánuðinum, að sögn forstjóra fyrirtækisins. Fyrirtækið hafi staðið í endurskipulagningu reksturs síðustu misseri. 28. september 2026 19:58 Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Í lok ágúst voru 700 fleiri íslenskir ríkisborgarar á atvinnuleysisskrá en ári fyrr. Á kynningu Seðlabankans var skýrt hvers vegna bankinn horfir sérstaklega á atvinnuleysi þeirra: Líklegra sé að þeir séu með lán hjá bönkum og öðrum lánveitendum hér á landi. 25. september 2026 13:23 Uppsagnir í Arion banka Um tuttugu starfsmenn munu hætta störfum hjá Arion banka í septembermánuði, flestir í dag. Þetta staðfestir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka í samtali við fréttastofu. 28. september 2026 11:51 Mest lesið Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Viðskipti innlent Uppsagnir í Arion banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Sjá meira
Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Rúmlega tuttugu var sagt upp störfum í hópuppsögn hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) í mánuðinum, að sögn forstjóra fyrirtækisins. Fyrirtækið hafi staðið í endurskipulagningu reksturs síðustu misseri. 28. september 2026 19:58
Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Í lok ágúst voru 700 fleiri íslenskir ríkisborgarar á atvinnuleysisskrá en ári fyrr. Á kynningu Seðlabankans var skýrt hvers vegna bankinn horfir sérstaklega á atvinnuleysi þeirra: Líklegra sé að þeir séu með lán hjá bönkum og öðrum lánveitendum hér á landi. 25. september 2026 13:23
Uppsagnir í Arion banka Um tuttugu starfsmenn munu hætta störfum hjá Arion banka í septembermánuði, flestir í dag. Þetta staðfestir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka í samtali við fréttastofu. 28. september 2026 11:51