Viðskipti innlent

Magnús leiðir Stofnun at­vinnu­veganna

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Magnús Kristjánsson verður forstjóri Stofnunar atvinnuveganna.
Magnús Kristjánsson verður forstjóri Stofnunar atvinnuveganna. Stjórnarráðið/Sigurjón Ragnar

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður af atvinnuvegaráðherra í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna. Hann starfaði áður sem forstjóri Orkusölunnar.

Um er að ræða nýja stofnun sem verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Þá verða verkefni á sviði matvælaeftirlits heilbrigðisnefnda einnig á borði Stofnunar atvinnuveganna.

Magnús lauk BS-gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og MBA-prófi í viðskiptafræði árið 2009 frá sama skóla. Samkvæmt tilkynningu á síðu Stjórnarráðsins er hann með farsæla reynslu af stjórnun og stefnumótun innan opinbers rekstrarumhverfis og á samkeppnismarkaði. 

Auk þess að vera forstjóri Orkusölunnar hefur hann gegnt formennsku í stjórnum Sunnlenskrar orku og Sjávarorku, verið stjórnarformaður og varaformaður stjórnar Samorku og setið í fulltrúaráði Samtaka atvinnulífsins. 

Embættið var auglýst laust til umsóknar í júlí og var skipuð þriggja manna ráðgefandi hæfnisnefnd sem lagði mat á hæfni tólf umsækjenda um embættið. Forstjórinn er skipaður til fimm ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×