Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar 4. október 2026 13:29 Hér sit ég við skrifborðið mitt á vinnustaðnum mínum þótt það sé sunnudagur. Hér sat ég líka í gær. Og síðasta laugardag og sunnudag. Og margar helgar þar á undan. Ég hugsa að ég eyði að meðaltali 6–8 klukkustundum um hverja helgi í vinnuna mína. Þegar ég er ekki að vinna er ég gjarnan að hugsa um vinnuna – og þá sérstaklega hvernig ég geti unnið hana betur. Þessa dagana er það ekki létt verk. Á síðustu árum hef ég séð miklar breytingar á þrautseigju og getu nemenda. Að mínu mati hefur dregið hratt úr hæfni á ýmsum sviðum. Það á ekki aðeins við um íslenskt mál, tjáningu og rökhugsun heldur líka samskipti. Það er til dæmis orðið erfitt fyrir marga nemendur að tala við aðra nemendur sem þeir þekkja ekki, jafnvel þótt samtalið fari aðeins fram í litlum hópi og enginn þurfi að standa upp fyrir framan bekkinn. Þegar nemendur eru síðan tímabundnir eða verkefnin verða krefjandi er auðvelt að leita beint í gervigreindina og láta hana vinna verkefnið. Nemendur segja mér þetta jafnvel hreinskilnislega: „Ég var bara svo busy og vildi skila einhverju.“ Einhverju.. Einhverju sem ég sit svo yfir um helgar og les – þótt það hafi í raun verið vél sem samdi textann. Jafnvel þótt nemandi fái 0 fyrir verkefnið þarf ég samt að lesa úrlausnina, meta hana og taka afstöðu til hennar. Á sama tíma er ætlast til þess að kennarar finni upp hjólið upp á nýtt og finni leiðir til að kenna í veruleika þar sem gervigreind er orðin hluti af nánast öllu sem við gerum. Og já – gervigreind er stórkostlegt tæki. Hún getur verið ótrúlega gagnleg og opnað á alls konar möguleika í námi og kennslu. Við getum látið nemendur gera hlaðvörp, tekið munnleg próf, útbúið escape room og alls kyns önnur skapandi verkefni. Og auðvitað er frábært að gera kennslu fjölbreytta og áhugaverða. En þarf allt alltaf að vera skemmtilegt? Hvað með hæfnina til að sitja í 15 mínútur og einbeita sér að verkefni sem er kannski ekkert sérstaklega spennandi? Hvað með að geta skrifað með blaði og penna? Leitað sjálfur að gagnlegum upplýsingum? Lesið texta, dregið ályktanir og greint aðalatriði? Fundið leiðir til að leysa vandamál án þess að fá lausnina strax upp í hendurnar? Og hvað með þrautseigjuna – að halda áfram þegar eitthvað reynist erfitt? Í lífinu er ekki alltaf hægt að „skipta um rás“ þegar manni leiðist. Þess vegna finnst mér við þurfa að ræða af alvöru sem samfélag. Ekki bara hvernig við eigum að nota gervigreind í skólum, heldur líka hvað við viljum að nemendur geti án hennar. Í mínum huga er það mikilvægast núna. Hvaða hæfni viljum við að ungt fólk taki með sér út í samfélagið? Hvaða færni er svo mikilvæg að við viljum ekki missa hana? Og hvert viljum við eiginlega stefna? Ég verð líka að viðurkenna að ég er orðin þreytt á því að hlusta á stjórnmálamenn tala af mikilli vissu um skólastarf án þess að hafa sjálfir staðið inni í kennslustofu og tekist á við þann veruleika sem kennarar mæta daglega. Að lokum eitt lítið dæmi til umhugsunar. Í síðustu viku voru nemendur mínir að leggja lokahönd á stórt viðtalsverkefni. Þeir áttu að ræða við einstakling af eldri kynslóð, bera saman eigið uppeldi við uppeldi viðmælandans og tengja niðurstöðurnar við kenningar í þroskasálfræði. Í einni kennslustundinni kom nemandi til mín og spurði: „Þarf ég endilega að tala við manneskju?“ Ég spurði hvað viðkomandi ætti við. Svarið var nokkurn veginn þetta: „Það væri alveg eins hægt að láta gervigreindina þykjast vera 70 ára gömul amma mín ég þarf ekkert að tala við hana sjálfa.“ Ég stóð bara og gapti. Eins og miðaldra fiskur á þurru landi. Höfundur er kennari og kennslustjóri samfélagsgreina í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Gervigreind Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun