Innlent

Meiri­hlutinn sprakk eftir fjóra mánuði

Agnar Már Másson skrifar
S-listi Samfylkingar og óháðra og D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra mynduðu meirihluta í Suðurnesjabæ í lok maí.
S-listi Samfylkingar og óháðra og D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra mynduðu meirihluta í Suðurnesjabæ í lok maí. Innsent

Bæjarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Suðurnesjabæ er sprunginn aðeins rúmlega fjórum mánuðum eftir að hann var myndaður í lok maí.

Þetta herma heimildir fréttastofu en mbl.is greindi fyrst frá.

Ekki liggur fyrir hvers vegna samstarfi flokkanna hefur verið slitið en hvorki hefur náðst tali af oddvita Sjálfstæðisflokks né Samfylkingarinnar við vinnslu fréttar. Fréttastofu skilst þó að tilkynning verði send út vegna málsins í kvöld.

Bæjarfulltrúum barst póstur frá forseta bæjarstjórnar um klukkan 18 í kvöld, sunnudag, þar sem óskað var eftir því að næsta bæjarstjórafundi, sem til stæði að halda á þriðjudag, yrði frestað vegna þess að meirihlutinn væri sprunginn.

Alls eru níu fulltrúar í bæjarstjórn. Í lok maí náðu þrír fulltrúar Samfylkingarinnar og tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks saman um myndun meirihluta í bæjarfélaginu og í ágúst réðu flokkarnir Alexöndru Jóhannesdóttur sem bæjarstjóra.

Tveir aðrir meirihlutar koma nú til greina. Annars vegar gæti Samfylkingin myndað fimm manna meirihluta með tveimur fulltrúum Framsóknar, eða Sjálfstæðisflokkurinn myndað sex manna meirihluta ásamt Framsókn og tveimur fulltrúum Miðflokksins.

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar er skipuð níu fulltrúum.vísir/sara



Fleiri fréttir

Sjá meira


×