Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 7. október 2026 12:09 Sólveig Anna er formaður Eflingar. Vísir/Arnar Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu.
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hvað leiddi fylkinguna að þessari niðurstöðu segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, að stjórnvöld hafi komið að borðinu með umfangsmiklum hætti. „En svo til viðbótar er það auðvitað staðreynd að þegar eru umsamdar launahækkanir sem koma til framkvæmda núna í janúar á næsta ári. Þar erum við að tala um 4, 99% hækkun á töxtum sem verkafólk hringinn í kringum landið er á. Og þegar við horfum á það og sjáum svo það sem stjórnvöld eru að koma með hér að borðinu ásamt sveitarfélögunum sem ætla að halda sínum gjaldskrárhækkunum í hófi, þá metum við það sem svo að þarna sé komið nægilega mikið til móts við okkur og stöðu okkar félagsfólks, að ekki annað sé í boði í stöðunni heldur en að ganga frá framlengingu á samningi,“ segir Sólveig Anna. Nú sitja VR og Fagfélögin á fundi með Samtökum atvinnulífsins í húsakynnum ríkissáttasemjara og reyna að ná lendingu. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir undirritun Breiðfylkingarinnar ekki hafa áhrif á stöðu þeirra viðræðna sem nú standa yfir. „Þau eru bara búin að finna lendingu sem þau telja ásættanlega fyrir sig. Það erum við ekki búin að gera. Við erum enn í þeirri stöðu að stórir hópar innan okkar félaga hafa verið að taka á sig launalækkanir og erum ekki tilbúin að halda þessum launalækkunum áfram. Þannig að það er enn viðfangsefnið sem að blasir við hérna niðri í Karphúsi þar sem við sitjum á fundi með Samtökum atvinnulífsins og ég vonast til þess að við sitjum saman þar til þetta hefur verið leyst,“ segir Halla. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka sagðist í Bítinu á Bylgjunni í morgun hafa áhyggjur af því að VR og tengd félög virðast ekki ætla að fylgja fordæmi Breiðfylkingarinnar. Halla svarar þessu. „Það er auðvitað áhugavert að hagfræðingar og fleiri svona málsmetandi aðilar í þessu samfélagi telja að eina leiðin til þess að ná einhverjum árangri í efnahagsmálum fyrir Ísland sé að ákveðnir hópar í þessu samfélagi, fullvinnandi fólk, gangi í gegnum launalækkanir ár eftir ár eftir ár. Og það hlýtur að vera frumskylda okkar sem stöndum í stafni í stéttarfélögum að tryggja að svo verði ekki.“ Sólveig Anna segir það setja þau í undarlega stöðu ef átök verða á almennum vinnumarkaði. Það sé afstaða félagsfólks Eflingar að vilja ekki fórna þeim launahækkunum sem séu fram undan. „Og að láta sem að þessi stóri aðgerðarpakki frá stjórnvöldum sé einhvern veginn einskis virði. Við metum stöðuna ekki þannig að það sé skynsamleg nálgun á þessum tímapunkti að fara hér í ófrið á vinnumarkaði.“ Halla Gunnarsdóttir tekur nú við. „Tja, þá eru þau bara algjörlega búin að setja sig sjálf í þessa undarlegu stöðu sko. Það er búið að liggja fyrir allan tímann að við ætlum ekki að fallast á áframhaldandi launalækkanir og það þarf að ná samkomulagi um það. Það að þau skjótist þarna niður til Samtaka atvinnulífsins seint um kvöld í gær til þess að skrifa undir eitthvert samkomulag frekar en að leyfa þessu samtali að ganga til enda, það er algjörlega þeirra ákvörðun.“
Kjaramál Stéttarfélög Vinnumarkaður Atvinnurekendur Kjaraviðræður 2023-25 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira