Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Birgir Olgeirsson skrifar 7. október 2026 13:04 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hefur gagnrýnt áherslu Seðlabankans á launahækkanir sem skýringu á verðbólgu. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir nóg að spyrja þá sem reka fyrirtæki og þurfa að borga launin hvaða áhrif þau hafi. Vísir/Anton Brink Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu.
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlabankans í morgun. Hann telur það ekki fara saman að halda fram ýtrustu launakröfum og ná fram þeim lækkunum verðbólgu og vaxta sem geti bætt lífskjör heimilanna. Segir hægt að spyrja þá sem greiða launin Halla hefur gagnrýnt þá skýringu að verðbólgu megi fyrst og fremst rekja til launahækkana. Í fundargerð aðalfundar VR frá 25. mars er haft eftir henni að verðbólguvandinn eigi rætur í húsnæðismálum, hagnaðardrifnum verðhækkunum og hækkunum opinberra gjalda. Þar er jafnframt haft eftir henni að það séu verðhækkanir sem auki verðbólgu, ekki laun. Spurður hvað hann segði við fullyrðingum um að laun hefðu ekki áhrif á verðbólgu bendir Ásgeir á kostnað fyrirtækja. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hefur bent á húsnæðismál, hagnaðardrifnar verðhækkanir og hækkanir opinberra gjalda sem skýringar á verðbólgu og gagnrýnt áherslu á launahækkanir.Vísir/Anton Brink „Þú getur bara spurt hvern sem er sem er að reka fyrirtæki og þarf að borga laun um hver mánaðamót, hvaða þýðingu það hefur.“ Hann segir launakostnað hafa áhrif á verð vöru og þjónustu. Að hans mati eru laun á Íslandi, að meðtöldum launatengdum gjöldum, líklega enn þau hæstu í Evrópu. „Ég held að það sé svona tiltölulega augljóst.“ Launakostnaður hæstur í samanburði bankans Í kynningu Seðlabankans í morgun var bent á að launahækkanir hefðu verið mun meiri hér á landi en í nágrannalöndunum undanfarna tvo áratugi. Samkvæmt samanburði Seðlabankans hafa laun á vinnustund í framleiðslu hækkað meira á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum frá 2005, einnig þegar tekið er tillit til verðbólgu. Launakostnaður á unna stund var jafnframt hæstur hér á landi í samanburði bankans fyrir árið 2025, mældur í evrum.Seðlabankinn Samkvæmt samanburði bankans á launakostnaði á unna stund árið 2025 var kostnaðurinn hæstur á Íslandi, eða um sextíu evrur á stund. Samanburðurinn er gerður í evrum. Launakostnaður í Noregi nam 95 prósentum af þeim íslenska, í Danmörku 87 prósentum og í Svíþjóð 73 prósentum. Á evrusvæðinu í heild var hlutfallið 65 prósent, samkvæmt glærunni. Meiri hækkanir þótt tekið sé tillit til verðbólgu Bankinn bar einnig saman þróun launa á Norðurlöndunum frá fyrsta ársfjórðungi 2005 til annars ársfjórðungs í ár. Samanburðurinn á nafnlaunum miðast við laun á vinnustund í framleiðslu og sýnir að þau hafi rúmlega fjórfaldast hér á landi á tímabilinu. Samkvæmt kynningunni hafi laun jafnframt hækkað meira á Íslandi þegar tekið sé tillit til verðbólgu í hverju landi. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir nú. Lægri verðbólga og lægri vextir séu það sem heimilin þurfi helst á að halda.Vísir/Anton Brink Myndrit bankans sýnir að raunlaun hafi hækkað um tæplega helming hér á landi frá ársbyrjun 2005. Hækkunin hafi verið um fimmtungur til fjórðungur í Noregi, Danmörku og Svíþjóð en um tíu prósent í Finnlandi. Bankinn byggir samanburðinn á gögnum frá Eurostat, Hagstofu Íslands, Macrobond, OECD og eigin gögnum. Vonast til að samningar haldi Ásgeir fagnar ákvörðunum stéttarfélaga um að láta gildandi kjarasamninga halda. Hann segir félögin sem upphaflega gerðu samningana hafa lagt áherslu á að þeir stuðluðu að lægri verðbólgu og vöxtum. Ánægjulegt sé að þau standi enn við þá áherslu. „Og ég á bara von á því að þetta nái yfir allan vinnumarkaðinn.“ Seðlabankastjóri bindur vonir við að verðbólga fari að hjaðna eftir áramót, sérstaklega ef ró næst á vinnumarkaði og áform fjárlaga ganga eftir.
Seðlabankinn Kjaramál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Sex atvinnulausir um hvert laust starf Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé. 7. október 2026 12:51 Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra. 7. október 2026 11:11 Stýrivextir áfram átta prósent Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mældist 5,9 prósent í september. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun. 7. október 2026 08:30 Uggandi yfir afstöðu VR Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni. 7. október 2026 09:41 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Fleiri fréttir Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Sjá meira
Sex atvinnulausir um hvert laust starf Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé. 7. október 2026 12:51
Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra. 7. október 2026 11:11
Stýrivextir áfram átta prósent Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mældist 5,9 prósent í september. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun. 7. október 2026 08:30
Uggandi yfir afstöðu VR Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni. 7. október 2026 09:41