Innlent

Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram

Agnar Már Másson skrifar
Kjaftshögg, blys og hrákur einkenndu knattspyrnukeppni MR og Versló í gær. Sólveig, rektor MR, segir að stærstur hluti nemenda hafi verið til fyrirmyndar, en að ákveðinn hópur úr báðum skólum hafi viðhaft „mjög leiðinlega“ hegðun.
Kjaftshögg, blys og hrákur einkenndu knattspyrnukeppni MR og Versló í gær. Sólveig, rektor MR, segir að stærstur hluti nemenda hafi verið til fyrirmyndar, en að ákveðinn hópur úr báðum skólum hafi viðhaft „mjög leiðinlega“ hegðun. Samsett Mynd

Rektor Menntaskólans í Reykjavík segir það miður hvernig fór á knattspyrnumóti MR og Verslunarskólans í gærkvöldi, sem virðist hafa farið úr böndunum. Einn fékk flösku í hausinn og kjaftshögg voru látin fljúga. Dagskrá í Hljómskálagarðinum í dag hefur nú verið frestað vegna uppákomunnar og skólastjórnendur skoða nú „hvernig við ætlum að afgreiða“ ræðukeppnina sem til stendur að halda á morgun.

„Við eigum eftir að senda tölvupóst á nemendur og forráðamenn,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, í samtali við Vísi og bætir við að nemendur og forráðamenn megi búast við frekari upplýsingum von bráðar.

Greint var frá því í dagbók lögreglu í gær að einn hefði fengið flösku í höfuðið í kappleik á milli nemenda Menntaskólans í Reykjavík og Verzlunarskóla Íslands. Mikil ölvun og ólæti hefðu verið á viðburðinum. Blysum hafi verið kastað sem hafi lent á nærstöddum og einhverjir fengið kjaftshögg og var skyrpt á aðra. 

Í gær keppttu MR-ingar og Verslingar í knattspyrnu, þar sem nemendur Verslunarskólans báru sigur úr býtum, staðan endaði 4-3 fyrir Versló. 

MR-VÍ vikan, eða VÍ-MR vikan eins og hún er kölluð í Verslunarskólanum, er árlegur viðburður þar sem nemendur skólanna keppast í ýmsu greinum, til dæmis knattspyrnu, reipitogi og ræðumennsku, en rígur hefur verið á milli skólanna svo áratugum skiptir.

„Það er ömurlegt að fá fréttir af svona leiðindahegðun af viðburði á þessum viðburði,“ heldur rektorinn áfram og vísar þar til Framtíðarinnar, málfundafélags og annars tveggja nemendafélaga MR, og Málfó, málfundafélags Versló.

Sólveig segir að skólameistarar beggja skóla séu mjög samstíga í þessu máli.

„Við erum líka búin að vera að ræða við nemendafélögin og lögregluna,“ segir Sólveig.

Hún vill ekki fara í smáatriði þess sem átti sér stað en tekur fram að engin stórslys hafi orðið á fólki þó að hegðunin hafi engu að síður verið mjög leiðinleg.

„En þetta var bara ákveðinn hópur nemenda úr báðum skólum. Stærstur hluti nemenda til fyrirmyndar og engin almenn ölvun eða slíkt,“ segir hún.

Félögin hafa bæði greint frá því í Instagram-færslum að búið sé að aflýsa útidagskrá sem til stóð að halda í Hljómskálagarðinum í dag, en þar hafa nemendur skólanna tveggja keppt í fjölbreyttum greinum svo sem kappáti og reipitogi. Rektor staðfestir að það sé vegna stimpinganna í gær.

Síðdegis á morgun stendur til að halda ræðukeppni í Verslunarskólanum, en sú keppni má segja að sé krúnudjásn MR-VÍ vikunnar. 

Aftur á móti segir Sólveig að engin ákvörðun hafi verið tekin um ræðukeppnina.

„Við ætlum að skoða hvernig við ætlum að afgreiða það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×