Handbolti

Aftur­elding í annað sæti

Sindri Sverrisson skrifar
Hákon Daði Styrmisson raðar inn mörkum fyrir Aftureldingu.
Hákon Daði Styrmisson raðar inn mörkum fyrir Aftureldingu. Vísir/Anton Brink

Eftir jafnan fyrri hálfleik náði Afturelding að skapa sér forskot í þeim seinni og vinna HK, 30-26, í Olís-deild karla í handbolta í kvöld.

Sigurinn kemur Mosfellingum upp fyrir KA í 2. sæti deildarinnar, með níu stig, en KA-menn eiga leik til góða við Stjörnunnar á morgun. HK er aftur á móti með fjögur stig í 9. sæti.

Staðan var 16-16 í hálfleik í Myntkaup-höllinni í Mosfellsbæ í kvöld en heimamenn skoruðu fyrstu þrjú mörkin í seinni hálfleik. HK jafnaði reyndar strax, 19-19, en þá skoruðu Mosfellingar fjögur mörk í röð og litu ekki um öxl eftir það.

Hákon Daði Styrmisson og Oscar Sven Leithoff Lykke voru markahæstir hjá Aftureldingu með sjö mörk hvor og Ævar Smári Gunnarsson skoraði sex.

Hjá HK var Gunnar Dan Hlynsson með frábæra nýtingu og skoraði úr öllum sjö skotum sínum. Örn Alexandersson var næstmarkahæstur með sex mörk en úr fimmtán skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×