Enski boltinn

Kjartan sam­þykkti erfiða á­skorun: „„Á dauða mínum átti ég von“

Aron Guðmundsson skrifar
Arsenal slagsíðan er mikil á Rakarastofu Björns og Kjartans. 
Arsenal slagsíðan er mikil á Rakarastofu Björns og Kjartans.  Vísir/Lýður

Nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands fengu Kjartan Björnsson, hinn vel þekkta rakara og stuðningsmann Arsenal, til þess að samþykkja eitthvað sem hann hélt að hann myndi aldrei á ævinni gera.

Kjartan er einn harðasti stuðningsmaður Arsenal á Íslandi og klæðist jafnan treyju liðsins í vinnunni. Hann er einn af stofnmeðlimum Arsenal-klúbbsins á Íslandi og var um árabil formaður klúbbsins.

Nú stendur yfir góðgerðarvika Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þar er safnað peningum í þágu góðs málefnis og er í þetta skiptið verið að safna fyrir styrktarfélagið Börn með krabbamein.

Tveir nemendur FSU, sem jafnframt eru stuðningsmenn Liverpool, ákváðu að skora á Kjartan að klæðast Liverpool-treyju í einn dag fari svo að safnist 520 þúsund krónur.

„Á dauða mínum átti ég von, en það að vera beðinn um að klæðast Liverpool-treyju einn vinnudag í þágu góðs málstaðar gerir mér erfitt fyrir,“ segir Kjartan í færslu á Facebook þar sem að hann birtir myndband af heimsókn nemenda FSU.

„Í dag birtust tveir nemendur úr FSU, báðir Liverpool-stuðningsmenn, með áskorun til mín um að klæðast treyju Liverpool sem ég hef aldrei nokkurn tíma gert í mínu lífi fyrr og aldrei staðið til. Ég tek þó þessari áskorun ef söfnunin nær 520 þúsund og helst miklu meira. Upplýsingar um reikningsnúmerið fylgja hér með og ef þú ert svo kaldhæðinn að vilja að Arsenalrefurinn klæðist Liverpool-treyju getur þú gert það að veruleika.“

Það ræðst í dag hvort draumur nemenda FSU og jafnframt martröð Kjartans verði að veruleika.

Fyrir þau sem vilja ólm styðja við gott málefni og um leið sjá Kjartan í Liverpool-treyju er bæði ljúft og skylt að birta söfnunarreikninginn hér fyrir neðan:

Góðgerðarvika FSU:

Reikningsnúmer: 0189-26-006604 

Kennitala: 660490-2569




Fleiri fréttir

Sjá meira


×