Handbolti

Sætur sigur Sel­foss og Gunnar með full­kominn leik

Sindri Sverrisson skrifar
Gunnar Róbertsson skoraði ellefu mörk í kvöld.
Gunnar Róbertsson skoraði ellefu mörk í kvöld. Vísir/Anton Brink

Eftir að hafa lent neðst í Olís-deild kvenna í handbolta á síðasta tímabili en óvænt fengið tækifæri til að halda áfram í deildinni hafa Selfyssingar nú unnið tvo af fyrstu sex leikjum sínum. Valsmenn unnu öruggan sigur á Víkingum í Olís-deild karla í kvöld þar sem Gunnar Róbertsson hélt áfram að fara á kostum.

Selfosskonur unnu HK 28-25 á heimavelli í kvöld eftir að hafa unnið sjálfa Íslandsmeistara Vals í fyrsta leik.

Selfoss er því nú þegar með fjögur stig, fyrir ofan HK, Stjörnuna og KA/Þór, eftir að hafa fengið samtals sex stig í 21 umferð á síðustu leiktíð.

Perla Ruth Albertsdóttir var markahæst Selfyssinga með átta mörk í kvöld og þær Arna Kristín Einarsdóttir og Hulda Hrönn Bragadóttir skoruðu fjögur mörk hvor.

Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir var með tíu mörk fyrir HK og Tinna Ósk Gunnarsdóttir átta.

Gunnar með ellefu úr ellefu skotum

Í Olís-deild karla komu Valsmenn sér upp í 4. sæti með tíu marka sigri gegn Víkingum í Fossvogi, 41-31, en eftir að hafa verið þrettán mörkum yfir í hálfleik, 26-13.

Hinn ungi Gunnar Róbertsson hélt áfram að fara á kostum fyrir Val og skoraði ellefu mörk úr jafnmörgum tilraunum, líkt og til að minna enn frekar á sig eftir að hafa ekki fengið sæti í nýjasta landsliðshópnum fyrr í dag.

Bessi Teitsson kom næstur á eftir Gunnari með fimm mörk úr sjö skotum. Hjá Víkingi var Sigurður Páll Matthíasson markahæstur með níu mörk úr þrettán skotum og Kristófer Snær Þorgeirsson skoraði fimm úr jafnmörgum skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×