Viðskipti erlent

Only Fans-áhrifa­valdar brjálaðir út í Zucker­berg

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mark Zuckerberg í september þar sem Muse var kynnt. Á bak við hann má sjá krúttlegu fígúruna sem á að vera andlit Muse og talar svo klámfengið við notendur sem á því hafa áhuga.
Mark Zuckerberg í september þar sem Muse var kynnt. Á bak við hann má sjá krúttlegu fígúruna sem á að vera andlit Muse og talar svo klámfengið við notendur sem á því hafa áhuga. Getty/Andrej Sokolow

Áhrifavaldar sem framleiða klámfengið efni á áskriftarmiðlinum Only Fans eru afar ósáttir með nýtt gervigreindarspjallmenni fyrirtækisins Meta. Þeir gagnrýna að fyrirtækið takmarki aðgang notenda að þeirra efni á samfélagsmiðlum Meta en leyfi spjallmenninu að ræða á klámfenginn hátt við notendur. Meta sé að stela af þeim viðskiptavinum. 

Wired greinir frá þessu og ræðir við nokkrar klámstjörnur. Blaðamaður Wired komst nýverið að því að gervigreindarspjallmenni Meta, Muse, er til í að tala dónalega við notendur, svokallað sexting. Í samskiptum blaðamannsins segist spjallmennið vera með drottnunarblæti og útskýrði fyrir honum hvernig hann myndi veita munnmök. 

Meta, sem er stýrt af Mark Zuckerberg, segir samskipti spjallmennisins ekki brjóta á siðareglum fyrirtækisins. Einungis megi nota forritið ef notandi er yfir átján ára og vilji þeir eiga í klámfengnum samskiptum við mennið sé það í lagi. 

Þetta er fólk, sem hefur það að atvinnu að selja klámfengið efni og eiga í klámfengnum samskiptum við annað fólk, ekki sátt við. 

„Það er ekki í lagi að þeir fái að hafa peninga af fólki með klámfengnu spjallmenni en leyfa svo ekki alvöru fólki, alvöru fullorðnu fólki, að eiga í neinum kynferðislegum samskiptum,“ segir einn áhrifavaldur sem Wired talar við. 

Vísar hann þar til þess að á miðlum Meta, Instagram og Facebook, er efni áhrifavaldanna falið og þurfa að skrá sig inn til að skoða það. 

„Mér finnst gervigreind fá að gera mun meira en manneskjur komast upp með,“ hefur Wired eftir öðrum áhrifavaldi. 

Talsmaður Meta segir að mikill munur sé á einkasamskiptum fólks við spjallmenni á miðli sem bannaður er fólki undir átján ára aldri og markaðssetningu kláms á samfélagsmiðlum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×