Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 22. október 2026 07:01 Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra er næsti gestur í Sætinu. vísir/arnar Logi Einarsson ætlar að flýta gerð nýs þjónustusamnings við Ríkisútvarpið þar sem miðlinum verða settar frekari skorður á samkeppnismarkaði. Nýr samningur átti að líta dagsins ljós í lok næsta árs en verður gerður á fyrri hluta ársins. Á svipuðum tíma boðar hann fyrstu háskólastefnu Íslands. Logi segir að það sem þar verður kynnt verði örugglega umdeilt en í stefnunni verði ekki að finna skipanir um sameiningu skóla.
Fjölmiðlar, fjölmiðlanefnd og hlaðvörp hafa verið töluvert í umræðunni. Undir Loga Einarssyni eru reyndar fjölmörg önnur mál, svo sem háskólar, nýsköpun, gervigreind og sitthvað fleira. Við ætlum að setjast niður með menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Í samráðsgátt stjórnvalda er nú frumvarp Loga um Ríkisútvarpið þar sem fjölmiðlinum eru settar skorður á auglýsingamarkaði. Þar kemur meðal annars fram að RÚV megi einungis selja auglýsingar upp að 2,8 milljörðum. Ýmislegt í frumvarpinu hefur verið gagnrýnt og sagði lögfræðingur Sýnar meðal annars í Spursmálum að um sýndarþak væri að ræða enda hafi ríkismiðillinn aldrei selt auglýsingar umfram þetta þak. Aðspurður um málið segir Logi ekki um sýndaraðgerð að ræða. „Nei, alls ekki. Varðandi kannski það sem lögfræðingur Sýnar segir þá spyrjum við að leikslokum. Við höfum auðvitað fengið athugasemdir, meðal annars frá Sýn og fleiri fyrirtækjum eftir samráðsgáttina og við munum skoða þær.“ Klippa: Ætlar að stíga inn hraðar og setja RÚV fyrr skorður Logi segir að þegar hann tók við ráðuneytinu hafi blasað við honum fjölmiðlamarkaður sem hafi verið afskiptur í langan tíma. „Það höfðu reyndar verið stigin ágæt skref með föstum stuðningi til einkarekinna fjölmiðla en það var alveg ljóst að það þurfti að gera miklu meira. Tæknibreytingar nútímans einskorðast ekki við gervigreindina.“ Hann segir umhverfið á fleygiferð og auglýsingatekjur bæði frá RÚV og einkareknu fjölmiðlunum hafi verið að sogast út af markaðnum og til annarra landa. „Til stóru tæknirisanna og við þurftum einhvers konar heildstæða nálgun á málaflokkinn sem fæli það í sér, meðal annars, að RÚV skilgreindi sig ekki sem samkeppnisaðila fyrst og fremst á fjölmiðlamarkaði heldur léki líka hlutverk í því að stemma stigu, ásamt einkareknum fjölmiðlum, við þessari þróun.“ Fjölmiðlar gegni gríðarlega mikilvægu hlutverki í samfélaginu og líklega aldrei meira en nú. „Þetta hafa verið svona hliðverðir umræðunnar, við höfum treyst þeim. Þeir hafa lotið faglegri ritstjórn. Nú erum við hins vegar að sjá þróun þar sem fólk er meira og meira farið að sækja sér sitt fréttaefni, annaðhvort á samfélagsmiðla eða jafnvel gervigreind sem er drifin áfram af einhvers konar spuna. Þetta er hættuleg þróun þannig að við teljum að þær aðgerðir sem við lögðum fram í 19 liðum á síðasta ári og eru smátt og smátt að komast til framkvæmda, að þær hafi verið nauðsynlegar.“ Logi segir að frumvarp um Ríkisútvarpið fari ekki inn í þingið óbreytt. Breytingar verði gerðar á því eftir athugasemdir úr samráðsgáttinni.vísir/arnar En er þetta ekki satt sem lögfræðingur Sýnar segir? RÚV hefur ekki verið að selja auglýsingar sem fara yfir þetta þak sem þú leggur fram. Hvers vegna ertu þá að leggja þetta til? „Við töldum að það skipti máli að við myndum stemma stigu við svona gegndarlausri ásókn RÚV á auglýsingamarkaði og það munum við auðvitað gera með fleiri leiðum. Meðal annars viljum við að þeir stafvæði sína auglýsingadeild í meira mæli þannig að þetta sé ekki svona ágeng auglýsingasala. En aftur að því sem ég nefndi í upphafi. Við erum hreinlega að skoða það að taka tillit til sjónarmiða Sýnar og fleiri aðila sem benda á það að þetta geti haft neikvæðar afleiðingar í för með sér og frumvarpið fer ekki inn í þingið óbreytt frá því sem það fór út í samráðsgátt.“ Ekki viss um að aðgerðirnar dugi En munu þessar aðgerðir sem þú leggur til hafa einhver áhrif? „Auðvitað værum við ekki að fara út í aðgerðir nema við teljum að þær hafi áhrif. Munu þær duga? Það er ég ekki viss um en þá þarf bara sífellt að vera að leita nýrra leiða. Það er alveg rétt að neyslumynstrið er að breytast og tæknin er að þróast og það er út af fyrir sig ekkert endilega slæmt og ég held að allir fjölmiðlar, hvort sem það er Sýn eða Morgunblaðið eða RÚV eða aðrir, þurfi auðvitað að leita leiða til þess að spila í takti við tæknina.“ Sem hann telur að fjölmiðlar hafi verið að gera, færa sig yfir í annars konar miðlunarform. „Það má vera að tími þessara línulegu dagskráa, þessara línulegu fréttaþátta, sé kannski á undanhaldi. Aðalatriðið er að það séu fjölmiðlar sem eru traustsins verðir, sem lúta ritstjórn, sem lúta faglegri blaðamennsku, sem miðli megni af þeim fréttum sem við Íslendingar neytum.“ Aldrei verið pólitískur vilji fyrir málinu En hvers vegna þarf RÚV að vera bæði með fjárveitingu frá ríkinu og á auglýsingamarkaði þegar staðan er hvergi þannig á hinum Norðurlöndunum? „Þetta er auðvitað bara sögulegt. Það er alveg rétt að það er ekki svona á hinum Norðurlöndunum. Þetta er hins vegar mjög víða í Evrópu að fjölmiðlar nota svona blandaðar leiðir til þess að afla fjármagns. Stundum hafa verið færð rök fyrir því að það sé gott að almannaþjónustufjölmiðill fái ekki bara pening úr einni átt.“ „Það er hins vegar alveg ljóst að ef við ætlum að taka RÚV af auglýsingamarkaði þá skapast gat upp á 2,6 milljarða sirka og ég hef sagt: Ég hef engin áform við núverandi aðstæður, þar sem við vitum ekkert hvað er handan hornsins, að veikja Ríkisútvarpið og ég er ekki viss um að þingið, sem auðvitað veitir fjármuni, muni geta stoppað upp í þetta gat. Þannig að það er ástæðan fyrir því að við ákváðum að hreyfa ekki við því. Enda hafa engir ráðherrar, ekki einu sinni þeirra flokka sem nú boða slíkt, hreyft við þessu.“ Vill ekki veikja RÚV en einkamiðlarnir veikist á meðan Það hefur aldrei verið pólitískur vilji til að taka RÚV af auglýsingamarkaði? „Nei, hann hefur ekki verið. Og hann er sannarlega ekki til staðar hjá mér í augnablikinu.“ Þannig þú munt ekki stíga það skref, aldrei nokkurn tímann? „Nei, ég mun ekki stíga það skref en ég vil gjarnan stíga það skref að tempra RÚV á auglýsingamarkaði. Ég vil gera þjónustusamning sem í rauninni á að klárast fyrir árslok næsta árs. Ég vil gera hann fyrr. Ég vil stíga hraðar inn og á fyrri hluta næsta árs verður gerður nýr þjónustusamningur við Ríkisútvarpið sem meðal annars tekur á þessu.“ Á sama tíma og þú segir að á þinni vakt verði ríkismiðillinn ekki veiktur þá eru einkamiðlarnir að veikjast. Það fækkar á ritstjórnum og nýjasta dæmið er aflagning Kvöldfrétta Sýnar. Er ekkert erfitt að segjast ekki ætla að veikja ríkismiðilinn en á sama tíma veikjast einkamiðlarnir? „Jú, og þess vegna erum við að stíga leiðir til þess að reyna að styrkja þá frekar og við erum rúmlega að tvöfalda það framlag til einkareknu miðlanna sem síðasta ríkisstjórn og síðustu ríkisstjórnir hafa veitt til þeirra. Það er önnur hlið líka á auglýsingasölu RÚV. Ef að RÚV hyrfi af auglýsingamarkaði þá höfum við enga tryggingu fyrir því að allt það auglýsingafé myndi leita yfir til einkareknu miðlanna.“ Logi segir að nýr þjónustusamningur verði gerður við Ríkisútvarpið í byrjun næsta árs en til stóð að hann yrði gerður í lok næsta árs. vísir/arnar Þvert á móti sé ýmislegt sem bendi til þess að það fé myndi í auknum mæli leita úr landi. „Við höfum líka alveg ótrúlega stórt vistkerfi í kringum fjölmiðla sem lýtur kannski ekki bara fréttaflutningi heldur gerð auglýsinga, skapandi iðnaði, og ég held að sá iðnaður fengi mikið högg við það að taka bara RÚV, einn tveir og þrír, af auglýsingamarkaði.“ Finnst þér Ríkisútvarpið fara út fyrir hlutverk sitt í sínum störfum? „Ég vil allavega orða það þannig að mér finnst skipta máli að það sé til umræðu á hverjum tíma og á hverri stundu og þess vegna finnst mér afar mikilvægt að hafa tekið þessa ákvörðun um að flýta gerð þjónustusamnings við RÚV vegna þess að það er ýmislegt sem við viljum ræða við fyrirtækið um það hvernig þau einhvern veginn spila á þessum markaði af því að eins og ég sagði áðan vil ég að RÚV hafi víðtækara hlutverk heldur en að sjá sig í samkeppni við einkareknu miðlana, þau geta með ýmsum hætti líka aðstoðað.“ „Ég hef talað um það að það sé í litlu landi mögulega skynsamlegt að geta nýtt húsnæði, tæknibúnað og annað víðar heldur en bara hjá Ríkisútvarpinu. Ég hef líka rætt að mér finnist skipta máli að allt það gríðarlega merkilega efni sem safnast hefur upp hjá Ríkisútvarpinu og er ekki varið höfundarrétti, að það verði auðveldara fyrir aðra fjölmiðla jafnvel að nálgast það.“ Ekki megi gleyma því að Ríkisútvarpið sé ekki bara fréttamiðill. „Þó hann sé mjög nauðsynlegur og mikilvægur fréttamiðill sem nýtur mikils trausts hjá landsmönnum. Þetta er auðvitað ein mikilvægasta menningarstofnun landsins líka. Hún sinnir alveg gríðarlega miklu hlutverki þegar kemur að sköpun menningar, miðlun menningar á svo ótrúlega víðfeðmu sviði sem kannski er ekki hægt að ætlast til þess að einkamiðlarnir uppfylli að fullu ef RÚV hyrfi, sem enginn er svo sem að tala um.“ En hefur þú átt samtal við stjórnendur hjá RÚV um þeirra hlutverk og þína sýn á að þeir fari mögulega út fyrir sitt hlutverk? „Við höfum átt ótrúlega gott samtal við stjórnendur RÚV en við höfum líka átt mjög gott samtal við þau sem stýra einkareknu miðlunum. Það hefur alveg verið hreinskiptið samtal. Að sumu leyti höfum við fengið ábendingar sem við höfum tekið mið af. Að öðru leyti höfum við ekki endilega talið nauðsynlegt eða rétt að gera það en þessi samtöl hafa hins vegar verið opinská og þau hafa verið hrein og bein.“ Ekki hlynntur því að fólk fái að ráðstafa gjaldinu sjálft Aðspurður hvað honum finnist um þær hugmyndir að fólk fái að ráðstafa útvarpsgjaldinu sjálft, það er að segja að hver og einn landsmaður fái sjálfur að ákveða til hvaða fjölmiðils útvarpsgjaldið renni, segist Logi ekki telja það skynsamlega leið. „Við skoðuðum meðal annars hugmyndir Miðflokksins frá því í fyrra eða hitt í fyrra um það að fólk gæti ráðstafað þessu bara frá ári til árs með því að krossa við á skattskýrslu eða hvernig sem það yrði nú gert. Við töldum það ekki vera skynsamlega leið.“ Hvers vegna ekki? „Vegna þess að fréttamiðlar þurfa auðvitað að hafa einhvern fyrirsjáanleika. Og eitt af því sem hefur verið kallað eftir frá einkareknu fjölmiðlunum hefur verið þessi fyrirsjáanleiki og þess vegna lengdum við í rauninni í þessum styrkjum til einkareknu miðlanna þannig að þeir hefðu þá allavega vissu um að kerfið sem var í gangi yrði næstu árin. Þetta var alltaf frá ári til árs. Ég held að þetta gæti orðið of kvikt.“ „Ég óttast að fréttamiðlar gætu farið að hafa áhyggjur af því að þeir þyrftu að matreiða fréttir sem væru líklegar til þess að féllu fólki í geð. Við stjórnmálamenn, atvinnulífið og aðrir þurfum að átta okkur á því að fjölmiðlar segja ekki bara þægilegar fréttir, þeir þurfa að veita aðhald.“ Þess vegna séu þeir kallaðir fjórða valdið. „En af því þú spurðir áðan hvort ég teldi þetta duga og ég sagði: Nei, ég er ekki endilega viss um það. Ég tel að við séum að stíga rétt skref en við þurfum á hverjum tíma að leita leiða til þess að finna þá nýjar aðgerðir eða breyta þeim aðgerðum sem við höfum ráðist í og við munum vinna þannig áfram þannig að það getur vel verið að það opnist einhverjar hugmyndir sem að hérna sem geta nýst inn í það.“ Logi segist ekki viss um að þær aðgerðir sem hann boðar í fjölmiðlamálum dugi til en þær séu rétt skref.vísir/arnar Er Ríkisútvarpið í þínum huga eini almannaþjónustumiðillinn? Lítur þú ekki á Sýn og Árvakur sem miðla í almannaþjónustuhlutverki? „Jú, í vissum skilningi hafa þeir tekið sér það hlutverk og Morgunblaðið auðvitað, sérstaklega fyrr á árum man ég eftir þegar ég var að alast upp og það voru keypt þessi dagblöð inn á mitt heimili, Tíminn, Þjóðviljinn og Morgunblaðið, og Morgunblaðið var auðvitað í sjálfu sér bara stofnun.“ Sem hafi birt ítarlegar erlendar fréttaskýringar, verið með góðar innlendar fréttir og ríkulega umfjöllun um menningu og íþróttir. „Að einhverju leyti hefur þetta breyst svolítið. Sýn að sama skapi held ég að hafi skipt alveg gríðarlega miklu máli þegar að þau komu fram á sjónarsviðið fyrir 40 árum síðan og veittu Ríkisútvarpinu mikið aðhald þegar kom að sjónvarpsfréttum. Við höfum viljað styrkja þetta. Við höfum hins vegar ekki þá peninga í þann stuðning sem við hefðum gjarnan viljað en við munum veita frá og með árinu 2027, 300 milljónum í þetta almannaþjónustuhlutverk. Það eru þá fréttamiðlar sem geta veitt alhliða fréttaþjónustu, sem geta sinnt nætur- og helgarvöktum eða einhvers konar bakvaktarfyrirkomulagi, sem geta upplýst fólk um ef það verða náttúruhamfarir.“ Ég er kannski frekar að spyrja út í ef eitthvað gerist, ef það hefst eldgos eða ef þú finnur fyrir kröftugum jarðskjálfta. Inn á hvaða miðil ferð þú til að athuga stöðu mála? Ferð þú inn á vefsíðu Ríkisútvarpsins eða aðra miðla? mbl.is eða Vísi? „Ja, ég meina, þessir miðlar allir þrír sem þú nefnir eru að sinna þessu ágætlega. En við viljum gjarnan styrkja þá til að gera það meira. Og þess vegna verðum við með þennan pott á næsta ári sem mun gera það. Við viljum líka að það séu góðir miðlar hérna sem geta verið með landsdekkandi umfjöllun eins og þessir miðlar eru og styrkja þá í því að þeir geti verið með kosningaumfjöllun og annað slíkt. Héraðsfréttamiðlarnir gegna alveg mikilvægu hlutverki en þeir eru bara allt annars konar.“ Þeir séu mikilvægir vegna þess að þeir segi fréttir út frá augum heimafólks, sem skipti líka máli. „En ég held að það skipti nú öllu máli að það séu líka til sterkir almannaþjónustufjölmiðlar og þeir eru til en það þarf að styrkja möguleika þeirra til þess að geta sinnt því.“ Hver er þín sýn á alla þá umræðu sem hefur verið um Fjölmiðlanefnd og hlaðvörp á Íslandi? Hvernig viltu að umgjörðin sé varðandi hlaðvörp? Þurfa að vera reglur? „Sko, nú er það þannig að það eru fjölmiðlalög gildandi í landinu og okkur auðvitað ber að fara eftir þeim. Þau eru hins vegar sett á þeim tíma sem umhverfið var að einhverju leyti orðið öðruvísi og það er orðið miklu fjölbreyttara núna og miklu svona auðveldara að hérna, sinna svona nýfjölmiðlun en líka bara dagskrárgerð sem þarf ekki endilega að vera fjölmiðlun.“ Því segir hann nauðsynlegt að endurskoða fjölmiðlalögin. „Í dag eru hlaðvörpin skilgreind sem fjölmiðlar, geta að minnsta kosti verið fjölmiðlar og það eru dómaframkvæmdir sem styðja það. En ég tel mikilvægt að fólk geti notað þessar nýju leiðir til að tjá sig en án þess að þurfa endilega að vera skilgreindir sem fjölmiðlar.“ En hvers vegna vill fjölmiðlanefnd að hlaðvörp skrái sig sem fjölmiðil? Snýst þetta um sýnilegt eignarhald eða auglýsingatekjur? Hver er ástæðan? „Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslustofnun sem auðvitað bara sinnir sínum verkum út frá þeim lögum sem eru í gildi og ég hef enga aðkomu að því og má í rauninni ekki skipta mér af því og sérstaklega kannski þegar þetta eru fjölmiðlar þá er það viðkvæmt að hérna ráðherra sé að blanda sér beint inn í það.“ En þarna túlkar fjölmiðlanefnd lögin með ákveðnum hætti. Þetta eru mjög matskennd lög? „Þess vegna segi ég að það er full ástæða til þess að endurskoða fjölmiðlalögin og við munum gera það.“ „Við getum alveg lagt niður Fjölmiðlanefnd“ Hvernig ætlið þið að endurskoða lögin? Hvað mun breytast? „Ég meina, við erum bara að vinna að því núna. Að einhverju leyti þurfum við náttúrulega líka að horfa til þeirra skuldbindinga sem við höfum. Stundum er sagt: Af hverju leggið þið ekki niður fjölmiðlanefnd? Jú, við getum alveg lagt niður fjölmiðlanefnd en eftirlit með fjölmiðlum þarf bara alltaf að vera til staðar og það er bara samkvæmt meðal annars okkar alþjóðlegu skuldbindingum þannig að það eftirlit færðist þá mögulega eitthvert annað.“ „Það kemur alveg til greina að það sé innan einhverrar annarrar stofnunar sem hafi víðtækara hlutverk og nái þá betur utan um þennan veruleika eins og hann er í dag. Og svo má bæta við að jafnvel þó að hlaðvörpin væru ekki skilgreind sem fjölmiðlar þá myndu þau auðvitað þurfa að sæta eftirliti frá annars konar aðilum, Samkeppniseftirliti mögulega eða Neytendastofu, af því stundum eru þau að auglýsa og þá þarf einhver að fylgjast með því að þau séu ekki að auglýsa vöru sem á ekki að auglýsa og annað slíkt.“ Hlaðvörp flokksins ekki á lista yfir skráða fjölmiðla Hlaðvarpið Þjóðmál er dæmi um hlaðvarp sem er skráð sem fjölmiðill og hefur fengið skeytasendingar frá fjölmiðlanefnd. Þið í Samfylkingunni eruð með hlaðvörp á ykkar snærum. Flokkurinn sér um hlaðvarpið Kratann og svo er Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra flokksins með hlaðvarpið Sjónarhornið. Hlaðvörpin eru ekki á lista fjölmiðlanefndar yfir skráða fjölmiðla. Eru þetta skráðir fjölmiðlar? „Ekki svo ég viti en auðvitað er þetta eitthvað sem þarf líka að koma til skoðunar og það er þess vegna sem ég hef eiginlega ákveðið að opna á þessa umræðu eftir að ég fór að heyra þessi sjónarhorn frá þessu fólki sem heldur úti svona skemmtilegum þáttum að þetta er auðvitað eitthvað sem við þurfum að skoða.“ En ættu þau hlaðvörp ekki að ganga fram með góðu fordæmi og skrá sig fyrst það er verið að ganga á eftir öðrum? „Sko, nú bara þekki ég hvorki hvernig Kratinn eða Sjónarhornið er rekið og hvernig fjölmiðlanefnd horfir á þetta, hvort það þurfi að liggja til grundvallar einhvers konar auglýsingatekjur eða áskriftartekjur eða annað þannig ég ætla ekki að tjá mig um það en auðvitað eiga sömu reglur að gilda um alla. Það er nú bara þannig. En þetta er skemmtilegur vaxtarbroddur í tilverunni.“ Eftir að viðtalið við Loga var tekið barst fréttastofu ábending um að Kratinn hafi þegar óskað eftir afstöðu Fjölmiðlanefndar um hvort hlaðvarpið væri skráningaskylt. Forsvarsmenn hlaðvarpsins hafa þó ekki fengið endanlegt svar frá nefndinni. „Þetta eru þættir sem flest okkar hlusta meira og meira á þegar við förum út að ganga, þegar við keyrum heim úr vinnunni eða þegar við bara erum að elda eða hvað sem er. Sumt af þessu er bara svona heiðarlegt og skemmtilegt rant. Fyrst og fremst til að gleðja fólk og mér finnst í rauninni, ef ég á að segja það bara algjörlega hreint út, mér finnst ekki eiga að setja slíkt endilega undir of þröngar skorður.“ Þannig það kemur til greina að leggja niður fjölmiðlanefnd og færa hlutverkið annað? „Það kemur aldrei til greina að leggja niður eftirlit með fjölmiðlum en það sem ég sagði var hvort fjölmiðlanefnd í núverandi mynd eigi að vera til staðar eða hvort hún eigi að vera hluti af einhverju sameiginlegu batteríi; það er reyndar til skoðunar.“ „Nú verður bara fjölmiðlanefnd að ákveða hvernig hún vinnur“ Aðspurður hvenær drög að nýjum fjölmiðlalögum líti dagsins ljós segir Logi að vinnu eigi að vera lokið í janúar. „Mín ósk væri auðvitað að við gætum hraðað því vegna þess að ég veit að það eru erfið útistandandi mál milli þessara hlaðvarpa og fjölmiðlanefndar og ég held að það sé langbest að skýra það hvernig löggjafinn vill horfa á þetta.“ En er ekkert skrítið að nefndin haldi áfram að hóta sektum og fara á eftir þessum aðilum þegar þú ert búinn að stíga fram, ráðherra yfir málaflokknum, og segja að þú viljir ekki að umhverfið sé svona? „Nú verður bara fjölmiðlanefnd að ákveða hvernig hún vinnur og ég ítreka það að ég hef bara ekki heimildir til þess að segja þeim fyrir verkum.“ Fyrsta háskólastefnan í pípunum Háskólamálin eru undir ráðuneyti Loga. Nú fer fram ný vinna í þeim málaflokki. „Það hefur aldrei verið sett háskólastefna á Íslandi, eins sérkennilegt og það nú er, vegna þess að í þessu litla landi erum við með sex til sjö háskóla og við erum að vinna að háskólastefnu sem miðar auðvitað fyrst og fremst að því að íslenskir háskólar verði samkeppnishæfir í alþjóðlegum samanburði. Ég held að það sé enginn háskóli í dag sem nær á topp 500.“ Hann vilji líka að háskólarnir séu aðgengilegir fólki alls staðar á landinu. „Og til þess að svo megi verða þá þarf að gera ýmislegt. Við þurfum að vera opnari fyrir samstarfi, mögulega sameiningu. Við þurfum að styrkja skólana á sínum sérstöðum í staðinn fyrir að allir skólar séu meira og minna að sækja á sömu mið. Við þurfum að búa til einhvers konar einingu, þjónustueiningu sem þjónar alla háskólana, til dæmis þannig að nýnemar eða þeir sem ætla í háskóla geti farið inn á eina gátt og séð hvað er í boði, að það sé einhvers konar sameiginlegur skilningur á því hvernig við notum flókna tækni eins og gervigreind, þannig að það er ýmislegt sem þarf að gera.“ Fyrsta háskólastefnan mun brátt líta dagsins ljós.vísir/anton Hann segist vilja fylgja hinum Norðurlöndunum og útbúa í samstarfi við Hagstofuna og atvinnulífið færnispá til tíu eða tuttugu ára þannig að hægt sé að átta sig á því hvað þurfi til að auka verðmætasköpun í samfélaginu. „Og að skólakerfið taki mið af því. Það er nú einu sinni þannig að háskólarnir eru fyrir samfélagið en samfélagið er ekki búið til til þess að það sé hægt að reka háskóla. Við vitum það nú þegar að það er skortur á svona ýmsum starfsgreinum í okkar samfélagi. Við erum til dæmis eftirbátar Norðurlandanna þegar kemur að hérna útskrift nemenda og ástundun nemenda í háskólanámi í STEM-greinum og við munum leggja sérstakt átak í það.“ Sama eigi við um heilbrigðisgreinar auk þess sem Logi vill byggja á sérstöðu Íslands og leggja áherslu á minni greinar á borð við jarðfræði og íslensku. „Listgreinar skipta til dæmis alveg gríðarlega miklu máli og það sem auðvitað kannski ekki síst hefur límt okkur saman í gegnum aldirnar og gert okkur að því sem við erum, það er listafólkið okkar, bókmenntirnar til að byrja með og síðan auðvitað höfum við áttað okkur á því að við áttum líka auðugan arð í ýmsu öðru og nú eigum við blómstrandi listalíf og þetta er ekki síst það sem að svona við erum stolt af og ber hróður okkar bara út um allan heim.“ Skipar ekki fyrir um sameiningu Þú minntist á sameiningu, er á dagskrá að sameina einhverja háskóla? „Nei, við höfum sagt að við þurfum auðvitað líka að byggja slíka stefnu á sjálfstjórn skólanna og akademísku frelsi. Við viljum ekki standa yfir þeim og segja þeim hvernig þeir eiga að gera hlutina. Við höfum hins vegar sagt að við erum tilbúin til að aðstoða ef menn sjá að það eru sóknarfæri í einhvers konar samstarfi eða sameiningu. Við höfum bæði fjármuni til þess að styðja slíkt en við höfum líka á síðasta þingi komið í gegn lagabreytingu sem snýst um fyrirbæri sem heitir háskólasamstæða þar sem skólar geta unnið saman.“ En hvað ertu að boða? Eru þetta miklar breytingar og heldurðu að þetta verði umdeilt? „Já, örugglega. Það verður örugglega umdeilt en við ætlum ekki að gera neitt með einhverju boðvaldi. Við ætlum hins vegar að leyfa okkur að segja að við viljum skilgreina hverjar áherslur stjórnvalda eru vegna þess að á endanum mun það alltaf skila sér til allra. Við erum búin að búa í samfélagi hér síðustu sex ár þar sem verðmætasköpun per einstakling hefur ekkert aukist.“ „Eini hagvöxturinn sem hefur orðið hefur bara vegna þess að okkur hefur fjölgað. Það er út af fyrir sig ágætt en við þurfum líka að framleiða meiri verðmæti á einstakling til þess að við getum bæði haldið okkar velferðarkerfi og styrkt það, til þess að við getum meðal annars stutt myndarlega við menningu og listir.“ Boðarðu einhverja aðgangsstýringu inn í háskólana eða eitthvað slíkt? „Nei, við erum ekki komin svo langt.“ Sameining háskóla verður ekki með boðvaldi að sögn Loga en hann segir að margir skólar sjái ef til vill sóknartækifæri í þeirri hagræðingu sem í sameiningu skóla getur falist.vísir/arnar Háskólarnir eru einnig rannsóknarstofnanir og hefur verið gagnrýnt að lítið fjármagn fáist í rannsóknir. Árið 2022 voru 23% umsókna sem fengu styrk úr Rannís en árið 2025 voru það 16,8%. Hvers vegna er staðan svona? „Þetta hefur auðvitað verið í mörg ár annaðhvort svona bara línulega óbreytt eða jafnvel aðeins niður á við. Þó verður að segja að á síðasta ári jukum við Rannsóknasjóðinn um 700 milljónir. Við jukum Tækniþróunarsjóðinn um 300 milljónir sem ég held að hafi verið rúmlega 20% aukning í þá sjóði. Við erum meðal þeirra landa í Evrópu sem veita mestum fjármunum hlutfallslega til rannsókna og þróunar.“ En hvers vegna fá þá færri styrki? „Tja, það geta líka verið að fleiri sæki um þá, það eru alls konar breytur þar á bak við og ég held að það skipti máli að horfa á árangurshlutfallið eins og bent hefur verið á, en það er ekki eini mælikvarðinn.“ Aðspurður hvort að aðhald í ríkisfjármálum komi niður á nýsköpun segir Logi að þar sé engin breyting á. Við séum áfram mjög framarlega þegar komi að nýsköpun. „Ég held hins vegar að við þurfum að taka það alvarlega að ef við köllum þetta einhvers konar nýsköpunarnet frá því að fólk er að bardúsa við að fá hugmynd og reyna að koma henni af stað og yfir í það að vera komið með mjög þróunarhæft fyrirtæki sem vinnur að rannsóknum og nýsköpun og þarna á milli, þá þurfum við að passa að allir möskvarnir séu jafnstórir þannig að fólk falli ekki út og detti ekki út á röngum stöðum.“ Nú sé unnið að því að breyta sjóðakerfinu. Norðurlöndin séu samkeppnishæf samkvæmt nýrri skýrslu Copenhagen Economics og við ofar en Bandaríkin í verðmætasköpun enn sem komið er. „En áhyggjurnar snúa að því að tilhneigingin er að breytast þannig að bara á næsta ári eða þarnæsta ári fara Bandaríkin upp fyrir okkur og við þurfum að spýta í lófana ef við ætlum að halda þessu.“ Frost í kvikmyndagerð Talað hefur verið um algjört frost í kvikmyndagerð á Íslandi. Lítið sé um verkefni og sérhæft starfsfólk með mikla reynslu af kvikmyndagerð farið í önnur störf. Þetta er ekki nógu gott? „Nei, auðvitað ekki og þetta er að einhverju leyti alþjóðlegt vandamál og þekkist auðvitað bara á fleiri stöðum. Ég ætla bara að halda því til haga að við höfum ekki gert neinar breytingar á umhverfi kvikmyndagerðar á Íslandi nema aðgerðir sem hafa þó verið til góðs. Við breyttum lögum um kvikmyndaendurgreiðslur fyrir ári síðan og þá hækkuðum við endurgreiðslurnar fyrir barna- og unglingamyndir úr 25% upp í 35% og við að vísu lengdum heimildir til þess að greiða út stuðning vegna risastórra kvikmynda upp í 18 mánuði en það var gert í samráði við greinina.“ Hvers vegna er staðan þá svona erfið? „Ég held að þetta séu bara margir samverkandi þættir. Það má vel vera, ef ég á nú að taka einhverja gagnrýni á okkur, að við boðuðum það samhliða þessum breytingum að við ætluðum að endurskoða kvikmyndaendurgreiðslukerfið. Við erum að vinna að því og munum koma með útfærslur á því bara um áramót eða eftir áramót. Ég tel afar mikilvægt að í þeim lögum sé staðið á bak við þann iðnað og þá listsköpun sem hefur byggst upp í kkvikmyndagerð á landinu.“ Kvikmyndasjóður staðið í stað Gæta þurfi jafnvægis á milli þeirra risastóru verkefna sem hafa verið mikilvæg landkynning og skapað heilsársstörf og svo þeirra verkefna sem teljast til frumsköpunar. „Og ég gengst alveg við því að kvikmyndasjóðurinn hefur náttúrulega allt of lengi ýmist bara staðið í stað eða minnkað aðeins og þar þurfum við að gera betur. En ég held hins vegar að við getum, og mér heyrist það á samtali við greinina, að við getum alveg komið fram með frumvarp sem að fólk verður sátt við.“ Þar skipti fyrirsjáanleiki máli. „Ástæðan fyrir því að við erum að taka og gera heildarendurskoðun á lögunum er að þetta er 25 ára gamalt endurgreiðslukerfi sem hefur verið breytt smám saman í gegnum tíðina og við vitum bara hvernig fötin okkar verða ef við erum alltaf að gera við þau. Það getur verið fínt svona þegar við setjum fyrstu bótina á en þegar þriðja og fjórða er komið á þá er það kannski vísbending um það að hún sé komin á tíma.“ En þarf ekki að gera greinarmun á íslenskum verkefnum og erlendum? Árið 2024 námu endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar sex milljörðum en þar af fóru fjórir í True Detective. Sitja íslensku verkefnin á hakanum af því að þau erlendu þykja svo mikil landkynning og spennandi? „Þetta er samspilið sem ég var að tala um áðan sem skiptir svo miklu máli. Við þurfum að stuðla að og tryggja þessa frumsköpun og þessar nýju íslensku myndir sem verða til, á sama tíma og ég held að þessi stóru erlendu verkefni hafi hjálpað líka við að búa til svona betri umgjörð um greinina. En þetta er svona ein af þeim áskorunum sem við erum að horfa á núna, að finna einhverja sátt þarna á milli þannig að báðir aðilar geti gengið sáttir frá borði.“ Fleiri þættir skipti máli. „Það er líka hlutur sem heitir Alþingi og fjárlaganefnd og þau hafa auðvitað ítrekað bent á það að vegna þess að endurgreiðslukerfið er ekki lokaður pottur eins og margir sjóðir heldur svona bara opið endurgreiðslukerfi, þá hefur sífellt þurft að koma með fjárauka í lok árs til þess að rétta af og við erum að horfa til þess hvort það sé hægt að finna einhverjar leiðir til þess að auka fyrirsjáanleikann fyrir ríkisvaldið og Alþingi án þess að skemma kerfið.“ Auka þurfi fyrirsjáanleika þegar kemur að endurgreiðslukerfinu.vísir/arnar Of mikið undir? Enn hefur talið ekki borist að gervigreind, íslenskri tungu, þeirri gagnrýni sem hann hefur fengið á sig frá rithöfundum og öðrum málum vegna tímaskorts, sem er kannski lýsandi fyrir ráðuneyti Loga sem er ansi umfangsmikið. Er þetta ráðuneyti ekki allt of víðfeðmt og of mikið undir? Nærðu að einbeita þér nægilega að öllum verkefnum? Voru það mistök á sínum tíma að setja öll þessi verkefni undir eitt ráðuneyti? „Ég held að þetta sé nú bara veruleikinn sem við Íslendingar búum við og þið þekkið það líka bara á ykkar fréttastofu að þið þurfið að ganga í ýmis verkefni sem kannski erlendir kollegar ykkar þurfa ekki að gera.“ „Kostirnir við það að steypa saman menningu, nýsköpun og háskólum eru að ég tel að lykillinn að því að búa til verðmæti í gegnum rannsóknir og nýsköpun sé að tengja listina og menninguna við nýsköpun og rannsóknirnar. Ef við horfum bara út í heim eru bestu dæmin um það til dæmis þýska fyrirtækið Braun þar sem að aðalhönnuður var Dieter Rams sem ruddi brautina fyrir þessa hönnunarhugsun. Nærtækt dæmi í dag er Apple. Það er sjaldnast með fyrstu nýjungarnar, sjaldnast með bestu vöruna en alltaf með vöruna sem við viljum kaupa af því hún sameinar fegurð, gott notendaviðmót og góða tækni.“ Hvað er það stærsta sem þú munt koma fram með í þessu ráðuneyti? Er það þessi framtíðarsýn um háskólana? „Já, ég held að það verði allavega með því stærsta.“ Og hvenær er von á því? „Eigum við ekki að segja bara í byrjun árs.“ Rætt er um Sýn í umræðum um fjölmiðla í viðtalinu. Vísir er í eigu Sýnar.
Sætið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjölmiðlar Ríkisútvarpið Hlaðvörp Háskólar Menning Kvikmyndagerð á Íslandi Nýsköpun Tengdar fréttir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Seðlabankastjóri segir innlendar hækkanir á þjónustu og launum hafa mest áhrif á verðbólguna núna. Stýrivextir séu biturt meðal og ekki með glöðu geði sem þeim er beitt. Það sé rétt hjá verkalýðshreyfingunni að stýrivextir leggist misjafnlega á ólíka hópa en staðan sé að einhverju leyti afleiðing af þeirra eigin gjörðum. Rangar ákvarðanir hafi mögulega verið teknar í Seðlabankanum sem í raun reyni að reka velferðarstefnu. 12. október 2026 07:00 Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu. 30. september 2026 06:46 Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar eru fram undan hjá Reykjavíkurborg. Sjóðir eru tómir og því gæti komið til frekari gjaldskrárhækkana. Framtíð samgöngusáttmálans veltur á því að ríkið standi við gefin loforð og óvissa ríkir um Borgarlínuna. 8. september 2026 06:00 „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Utanríkisráðherra segist ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg þegar hún var spurð að því hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, ef ekki fáist undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla öryggislega ávinning sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. 14. ágúst 2026 07:01 Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Forsætisráðherra segist ekki sjá eftir framsetningu á sleggjunni umtöluðu í aðdraganda síðustu þingkosninga. Um langtímaverkefni sé að ræða sem taki tíma. 25. júní 2026 08:03 Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Sjá meira
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Seðlabankastjóri segir innlendar hækkanir á þjónustu og launum hafa mest áhrif á verðbólguna núna. Stýrivextir séu biturt meðal og ekki með glöðu geði sem þeim er beitt. Það sé rétt hjá verkalýðshreyfingunni að stýrivextir leggist misjafnlega á ólíka hópa en staðan sé að einhverju leyti afleiðing af þeirra eigin gjörðum. Rangar ákvarðanir hafi mögulega verið teknar í Seðlabankanum sem í raun reyni að reka velferðarstefnu. 12. október 2026 07:00
Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu. 30. september 2026 06:46
Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar eru fram undan hjá Reykjavíkurborg. Sjóðir eru tómir og því gæti komið til frekari gjaldskrárhækkana. Framtíð samgöngusáttmálans veltur á því að ríkið standi við gefin loforð og óvissa ríkir um Borgarlínuna. 8. september 2026 06:00
„Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Utanríkisráðherra segist ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg þegar hún var spurð að því hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, ef ekki fáist undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla öryggislega ávinning sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. 14. ágúst 2026 07:01
Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Forsætisráðherra segist ekki sjá eftir framsetningu á sleggjunni umtöluðu í aðdraganda síðustu þingkosninga. Um langtímaverkefni sé að ræða sem taki tíma. 25. júní 2026 08:03