Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Eiður Þór Árnason skrifar 22. október 2026 00:08 Una Magnea Stefánsdóttir hjá Neytendasamtökunum mælir með því að fólk taki ljósmyndir eða myndskeið af bílaleigubílum bæði við móttöku og skil. Bylgjan Lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum segir mál flugfarþega sem taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur í uppfærslu á fyrsta farrými en greiddi í raun sexfalt hærri fjárhæð því miður ekki koma sér á óvart. Að mörgu þurfi að huga þegar komi að ferðalögum erlendis og þar þurfi ekki síst að lesa vel yfir skilmála hjá bílaleigum.
Mál óánægða flugfarþegans fór fyrir kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Hún sagði engin gögn til um fjárhæðina sem hann bauð í uppfærsluna og hann hefði síðan nýtt sér þjónustuna þrátt fyrir að hann vissi hvað hún kostaði. Því sagðist nefndin ekki geta annað en hafnað kröfu mannsins um endurgreiðslu á mismuninum á þeirri upphæð sem hann var rukkaður um fyrir uppfærsluna annars vegar og því sem hann taldi sig hafa boðið hins vegar. „Við höfum alltaf af og til fengið mál inn á okkar borð sem eru frekar sambærileg,“ segir Una Magnea Stefánsdóttir hjá Neytendasamtökunum en hún ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. „Í þeim málum hefur þetta varðað Saga Class-uppfærslu hjá Icelandair og þá eru farþegar í þeirri trú að þeir séu að borga fyrir uppfærslu sem er þá flugið sem þeir voru þegar búnir að greiða plús þessa uppfærslu. En í raun er þetta bara uppfærslan sem slík. Þannig að neytendur standa eftir með sárt ennið og eru að borga himinháar upphæðir fyrir eitthvað sem þeir kannski hefðu ekki leyft sér á annan bóginn.“ Klippa: Segir algengt að óprúttnir aðilar reyni að selja óþarfa tryggingar til þeirra sem leigja bíla Una segir samtökin hafa sent ábendingar á Icelandair vegna þessa og óskað eftir því að ferlið verði gert skýrara. „Þau hafa komið til móts við okkur að einhverju leyti og bætt ferlana. En þegar það kemur að svona fjárhæðum eins og í þessu máli þá er auðvitað mjög mikilvægt að þessi ferill sé mjög skýr fyrir viðkomandi áður en hann er að samþykkja að borga eitthvað slíkt.“ „Við höfum fengið þó nokkur mál sem svona gefur manni vísbendingu um að það séu fleiri sem hafa ekki haft samband við okkur eða hafa einfaldlega bitið í súrt eplið og þora ekki að tala um það meira út frá skömminni.“ Neytendur eigi alltaf að skoða smáa letrið Icelandair hefur gert einhverjar breytingar á uppfærsluferlinu upp í Saga Class líkt og áður segir og segist Una ekki þekkja hvernig ferlið er í dag. „Auðvitað þurfa neytendur að hafa varann á og lesa áður en þeir eru að staðfesta einhverja greiðslu. Það er auðvitað mjög mikilvægt en til þess að koma í veg fyrir mál af þessum toga þá auðvitað ættu fyrirtæki að reyna að hafa þessa ferla mjög skýra.“ Una segir það gott ráð að lesa vel hvað fólk sé að samþykkja áður en það staðfestir greiðslu fyrir hvers konar vörur og þjónustu og ekki síst smáa letrið sem fari oft fram hjá fólki. Starfsfólk bílaleiga beiti fólk þrýstingi Una bætir við að víða megi gera betur í ferðaþjónustu og ýmislegt geti til að mynda farið úrskeiðis þegar fólk taki bíl á leigu erlendis. Stundum sé fólk eindregið hvatt til þess að kaupa sér tryggingar þrátt fyrir að það sé með fullnægjandi ökutækjatryggingar út frá kreditkortinu sínu. „Auðvitað segi ég þetta með fyrirvara um að fólk þarf að athuga hver staðan er og það er mismunandi milli korta. Oft þarftu ekkert endilega að kaupa viðbótartryggingu. Hins vegar er alveg þekkt að sumir einstaklingar sem taka á móti þér á flugvellinum séu kannski svolítið óprúttnir með það að halda öðru fram.“ Einnig þurfi fólk að gæta sín þegar kemur að því að leggja fram tryggingafé (e. deposit) en þar getur verið um að ræða háar fjárhæðir. Neytendasamtökin hafi fengið mál inn á sitt borð þar sem neytandi hafi staðið í þeirri trú að hann væri að leggja fram fjárhæð sem væri endurgreiðanleg ef ekki reyndi á trygginguna. „Síðan kemur hann heim, les yfir skjalið sem hann undirritaði á flugvellinum og þá kemur í ljós að þetta er í rauninni ekki endurgreiðanlegt.“ Þannig hafi komið upp tilvik á Ítalíu þar sem fólk telji sig vera að leggja fram tryggingafé en sé í raun að kaupa óendurgreiðanlega tryggingu líkt og þá sem fólk geti verið með í gegnum kreditkortið sitt. Alltaf gott að taka eigin myndir Hvað er besta ráðið við svona aðstæður? „Það er að mörgu að huga. Í fyrsta lagi að lesa hvaða samning þú ert að samþykkja, ganga úr skugga um að þú sért með viðeigandi tryggingar og annað þannig að þú sért þá bara undirbúin þegar þú kemur á staðinn.“ „Síðan er annað sem við sjáum oft koma upp hjá okkur og það er þegar fólk fær allt í einu einhvern reikning þegar það er komið heim úr fríinu fyrir eitthvað tjón sem það áttar sig engan veginn á og hefur engar til dæmis myndir í höndunum til þess að geta sannreynt hvernig ástandið var og svo framvegis. Þannig að ég legg mikla áherslu á að neytendur taki til dæmis myndir af bílnum bæði í upphafi leigutímans og þegar þeir eru að skila bílnum svo þeir hafi eitthvað fast í hendi.“ Þá bendir Una á að ef fólk greiði með kreditkorti sé hægt að láta reyna á endurkröfuferli hjá bönkum. „Síðan erum við líka með evrópska neytendaaðstoð hjá Neytendasamtökunum.“
Ítalía Neytendur Flug Bílaleigur Reykjavík síðdegis Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira