Viðskipti innlent

Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu

Freyja Þórisdóttir skrifar
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Sýn/Arnar

Hagnaður flugfélagsins Icelandair eftir skatta nam tólf milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026 samanborið við sjö milljarða króna á síðasta ári. Þó eru horfur fyrir fjórða ársfjórðung krefjandi og gert er ráð fyrir að afkoma fyrir árið í heild verði neikvæð.

Kemur þetta fram í uppgjöri fyrir ársfjórðunginn en þar er einnig haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra flugfélagsins, að reksturinn sé á réttri leið þrátt fyrir margt sem hafði neikvæð áhrif á afkomuna.

Skili árangri

„Rekstur Icelandair var sterkur í fjórðungnum og við náðum góðum árangri í kjarnastarfseminni þrátt fyrir sögulega hátt eldsneytisverð, óhagstæða gengisþróun og verkfallsaðgerðir sem höfðu neikvæð áhrif á afkomuna. EBIT rekstrarbati, mettekjur og sterk lausafjárstaða sýna að rekstur félagsins er á réttri leið. Á sama tíma eru þær breytingar sem við erum að gera þvert á félagið að skila raunverulegum árangri sem sést víða í rekstrinum,“ er haft eftir honum.

Þá segir einnig að mettekjur á ársfjórðungnum hafi aukist um 12 prósent og séu að fjárhæð 80,5 milljarðar króna en í uppgjörinu er snert á þeim áhrifum sem verkfall Flugvirkjafélags Íslands hafi haft. Þau hafi verið neikvæð og valdið því að afkoman væri 500 milljónum minni en ella.

Ná samningum sé lykilþáttur

„Í ljósi viðvarandi áskorana í rekstrarumhverfinu, hás eldsneytisverðs og óhagstæðrar gengisþróunar fyrir útflutningsfyrirtæki á Íslandi, gerum við ráð fyrir að tap verði á fjórða ársfjórðungi og á árinu í heild,“ er haft eftir Boga en fram kemur í uppgjörinu að gert sé ráð fyrir því að afkoma ársins fyrir árið í heild verði neikvæð sem nemi um 2,5 til 3,7 milljörðum króna.

Því sé áhersla stjórnarinnar fyrst og fremst á að hagræða í rekstrinum, einfalda fyrirtækið og auka skilvirkni.

„Að ná samningum við flugstéttirnar á sjálfbærum grunni og þar með tryggja eftirsótt störf í flugrekstri á Íslandi er lykilþáttur á þessari vegferð,“ kemur þar jafnframt fram.

Á sama tíma sé haldið áfram að gera breytingar á félaginu og sé endurnýjun flotans og undirbúningur við komu A321XLR-vélanna hluti af því.

„Markmið okkar er skýrt: að byggja upp einfaldara og skilvirkara félag sem er vel í stakk búið til að nýta ný tækifæri þegar aðstæður batna. Fjárhagsstaða félagsins er traust og er lausafjárstaðan enn betri en á sama tíma í fyrra, sem er sterkur grunnur til að byggja á,“ er haft eftir Boga.


Tengdar fréttir

„Við erum ekki að byrja á núlli“

Ríkissáttasemjari segir mikilvægt að hafa í huga að ekki sé verið að byrja á núlli í viðræðum Félags íslenskra flugvirkja og Icelandair en fyrsti fundur deiluaðila eftir að verkfallsaðgerðum var aflýst hófst klukkan tíu. 

Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél

„Icelandair hefur átt í góðu samstarfi við Heart Aerospace og fylgst grannt með framvindu verkefna félagsins undanfarin ár,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, spurður um stöðu mála félagsins gagnvart Heart Aerospace.

Play komið í eignasafn Icelandair

Tæplega helmingshlutur í maltneska félaginu Fly Play Europe Holdco ehf. er nú í eigu Icelandair. Félagið er með maltneskt flugrekstrarleyfi. Markmiðið er að auka sveigjanleika félagsins og skapa möguleika á hagræðingu í flugrekstrinum á Íslandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×