Lífið

Top Gun- og Alien-leikari látinn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Skerritt hér lengst til vinstri ásamt David E. Kelley og Kathy Baker á Emmy-verðlaunahátíðinni 1993. 
Skerritt hér lengst til vinstri ásamt David E. Kelley og Kathy Baker á Emmy-verðlaunahátíðinni 1993.  AP/Douglas C. Pizac

Tom Skerritt leikari er látinn, 93 ára að aldri. Skerritt er þekktastur fyrir hlutverk sín í myndum á borð við Top Gun og Alien og hlaut Emmy-verðlaun fyrir leik sinn í þáttunum Picket Fences.

Fjölskylda Skerritts greinir frá andlátinu. 

„Heimurinn þekkti Tom í gegnum einstakan leikferil hans en við þekktum hann fyrir kímnigáfuna, forvitnina, örlætið og þá ást sem hann færði okkur,“ segir í yfirlýsingu fjölskyldunnar. 

Hinn bandaríski Skerritt átti fimm börn með eiginkonu sinni Julie og eiga þau fimm barnabörn og tvö barnabarnabörn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.