Skoðun

Við­reisn ein­faldar reglu­verk og minnkar báknið

Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Ný skýrsla Norrænu ráðherranefndarinnar um samkeppnishæfni Norðurlandanna sýnir að við stöndum sterkt og áherslur nýrrar atvinnustefnu Íslands til 2035 ríma vel við tillögur skýrslunnar um hvernig við sækjum fram og aukum verðmætasköpun.

Þegar kemur að reglubyrði fyrir atvinnulífið er Ísland þó í vanda samkvæmt skýrslunni og ljóst er að taka þarf til. Við í Viðreisn höfum lagt ríka áherslu á að ganga rösklega til verks. Með Viðreisn í ríkisstjórn er einföldun regluverks og betri opinber þjónusta við atvinnulífið í skýrum forgangi.

Í atvinnuvegaráðuneytinu vinn ég að breytingum sem munu auðvelda fyrirtækjum reksturinn og bæta hag neytenda. Þar eru sameiningar stofnana og endurskoðun regluverks í forgrunni.

Rekstur fyrirtækja verður einfaldaður

Á dagskránni hjá mér eru breytingar á bókhaldslögum, reglum um ársreikninga og stærðarmörk fyrirtækja, ásamt breytingum á hlutafélagalöggjöf. Þetta eru allt tímabærar breytingar sem létta fyrirtækjum störfin og draga úr kostnaði þeirra við að uppfylla skyldur sínar.

Í ferðaþjónustu hyggst ég vinna að einfaldara regluverki og leggja fram frumvarp þess efnis eftir áramót. Þar gildir sama leiðarljós og annars staðar í ráðuneytinu: skýr verkefni, hagkvæmur rekstur og þjónusta sem nýtist greininni.

Stofnun atvinnuveganna tekur brátt til starfa

Lög um Stofnun atvinnuveganna hafa verið samþykkt og ég hef skipað forstjóra til að leiða undirbúninginn. Stofnunin tekur til starfa 1. janúar 2027 við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Jafnframt flyst matvælaeftirlit heilbrigðisnefnda sveitarfélaga til nýju stofnunarinnar. Með því skapast grundvöllur fyrir samræmdu eftirliti og betri þjónustu um allt land.

Á bak við þetta verkefni liggur áralöng umræða og fjöldi greininga. Nú hefur verið tekin ákvörðun og undirbúningur starfseminnar er kominn af stað. Ég legg áherslu á að ný stofnun byggi á þeirri þekkingu sem fyrir er á starfsstöðvum um land allt og nýti sameiginlega krafta til að bæta þjónustuna. Framundan eru fleiri sameiningar á stofnunum sem heyra undir atvinnuvegaráðuneytið, þar sem betri þjónusta og bætt eftirlit verður leiðarljósið.

Ríkisstjórnin vinnur að einföldun um allt kerfið

Við höfum staðið að breytingu og einföldun eftirlits sem birtist m.a. í lagasetningu um að leggja heilbrigðisnefndir niður frá næstu áramótum. Breytingarnar fela í sér fækkun eftirlitsaðila á sviði matvæla, hollustuhátta og mengunarvarna úr ellefu í tvo og samræmi í við framkvæmd eftirlits um land allt. Atvinnulífið hefur lengi kallað eftir þessum umbótum.

Starfsleyfisskyldu hefur verið létt af 16 flokkum atvinnurekstrar og skráning komið í staðinn. Þá hefur almenn krafa um fjögurra vikna auglýsingatíma vegna tiltekinna starfsleyfa verið felld brott, sem getur flýtt afgreiðslu um allt að fjórar vikur.

Búið er að taka til hendinni í orkumálum og Alþingi hefur samþykkt breytingar á tólf lagabálkum til að einfalda regluverk orkumála, meðal annars með heimild til að sameina afgreiðslu mismunandi leyfa í eina leyfisveitingu. Þessi einföldun heldur áfram í vetur.

Birt hafa verið frumvarpsdrög um einfaldari skipulagsferla í samráðsgátt, meðal annars með tillögu um að stytta lágmarksathugasemdafrest vegna breytinga á gildandi skipulagi úr sex vikum í fjórar. Þar er frekari einföldun í undirbúningi.

Einföldun lýkur aldrei

Einföldun regluverks er eins og tilektin heima - hún klárast aldrei heldur þarf að sinna henni reglulega.

Í anda þess höfum við komið á samráðshópi ríkisins og aðila vinnumarkaðarins. Þar sitja fulltrúar forsætisráðherra, fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra ásamt fulltrúum SA, SI, SVÞ, FA og ASÍ. Hópurinn á að greina tækifæri til frekari einföldunar og leggja til farveg fyrir varanlegt samráð við atvinnulífið um einföldun.

Viðreisn mun áfram beita sér fyrir einföldun í núverandi ríkisstjórn og við erum hvergi nærri hætt.

Höfundur er atvinnuvegaráðherra




Skoðun

Sjá meira


×