Skoðun

Að­gerða­leysi fjár­mála­ráð­herra kemur er­lendum tæknirisum til góða

Guðmundur Halldór Björnsson skrifar

Í desember 2025 kynntu stjórnvöld aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla. Þar var staða íslenskra fjölmiðla dregin skýrt fram:

„Íslenskir fjölmiðlar eiga undir högg að sækja. Fyrir vikið á íslenskt samfélag undir högg að sækja.“

Þessu mati er ég sammála. Sterkir og sjálfstæðir fréttamiðlar skipta samfélagið máli. Þeir veita stjórnvöldum og atvinnulífi aðhald og stuðla að upplýstri samfélagsumræðu.

Ein aðgerð áætlunarinnar sneri að skattlagningu alþjóðlegra tæknifyrirtækja. Verkefnið var á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytisins og tillögur áttu að liggja fyrir vorið 2026. Miðað við umfang erlendra tæknirisa á íslenskum auglýsingamarkaði er þetta einn mikilvægasti liður áætlunarinnar. Nú er komið haust og ljóst að tillögurnar koma ekki fyrir þingið á þessu ári.

Mynd úr aðgerðaráætlun stjórnvalda:

Hvorki greining né tillögur

Ég óskaði eftir upplýsingum frá ráðuneytinu um stöðu verkefnisins. Svarið var á þá leið að ekki hafi farið fram heilstæð greining á skattlagningarleiðum. Hvorki liggi fyrir mat á mögulegum tekjum ríkissjóðs né tillögur um ráðstöfun þeirra. Orðrétt segir:

„Ekki hafa verið unnin minnisblöð, greiningar eða tillögur vegna aðgerðarinnar.“

Ráðuneytið upplýsir jafnframt að frumvarp um slíka skattlagningu sé ekki á þingmálaskrá og ekki sé unnt að segja hvort eða hvenær það verði lagt fram. Ekkert liggur því fyrir um framlagningu málsins á þessu ári eða á vorþingi 2027.

Stjórnvöld lögðu ríka áherslu á að styrkja íslenska fjölmiðla. Að enn liggi hvorki fyrir greiningar né tillögur í þeim efnum samræmist engan veginn því sem boðað var. Hvað skýrir þessa töf á einum mikilvægasta lið aðgerðaáætlunarinnar þegar önnur ríki hafi þegar byrjað að skattleggja tæknirisana og það fyrir mörgum árum?

Önnur ríki hafa þegar farið þessa leið

Í Austurríki hefur frá ársbyrjun 2020 verið lagður 5% skattur á tilteknar stafrænar auglýsingatekjur stórra alþjóðlegra fyrirtækja sem tengjast notendum í landinu. Frakkland leggur 3% skatt á tiltekna stafræna þjónustu, meðal annars markvissar netauglýsingar, og Bretland 2% skatt á tilteknar tekjur samfélagsmiðla, leitarvéla og netmarkaðstorga. Gildissvið og tekjumörk eru ólík, en þessi ríki sýna að sértæk skattlagning slíkrar starfsemi er þegar í framkvæmd.

Hvað gæti þetta þýtt fyrir Ísland?

Samkvæmt Hagstofu Íslands runnu tæpir 15 milljarðar króna til erlendra miðla vegna auglýsingakaupa árið 2024, eða 51% alls auglýsingafjár. Til viðmiðunar jafngilda 5% af 15 milljörðum um 750 milljónum króna á ári.

Þetta er sett upp sem einfalt reiknidæmi en ekki mat á væntum skatttekjum. Hluti auglýsingafjárins fer í markaðssetningu utan Íslands og tekjurnar myndu ráðast af gildissviði skattsins, tekjumörkum og útfærslu. Engu að síður gefur stærðargráðan fullt tilefni til að leggja áherslu á að vinna greininguna og að hefja skattlagningu. Það er ljóst að erlendir tæknirisar á borð við Meta og Alphabet taka til sín stóran hluta íslensks auglýsingafjár án þess að standa undir íslenskri fréttamennsku, dagskrárgerð og menningarumfjöllun með sama hætti og innlendir fjölmiðlar.

Ljúka þarf vinnunni

Það er eðlilegt að stjórnvöld gefi sér tíma til að vanda skattabreytingar. Þegar boðaður skilafrestur er liðinn verður hins vegar að vera hægt að upplýsa hvað hefur verið gert, hvað stendur út af og hvenær niðurstöðu er að vænta.

Íslenskir fjölmiðlar taka rekstrarákvarðanir á hverjum degi við erfiðar aðstæður. Þeir þurfa að geta treyst því að boðuðum aðgerðum stjórnvalda sé fylgt eftir.

Tími aðgerða er löngu kominn.

Höfundur er framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Sýn.

Vísir er í eigu Sýnar. 




Skoðun

Sjá meira


×