Skoðun

Um traust, á­byrgð og fag­mennsku í listsamkeppnum

Markús Þór Andrésson og Anna Rún Tryggvadóttir skrifa

Undanfarin ár hefur Reykjavíkurborg átt í samstarfi við lóðarhafa á uppbyggingasvæðum. Þar hefur verið sett af stað mikilvægt verkefni sem byggir á því að hlutfallslegri fjárhæð framkvæmda og uppbyggingar sé varið til listsköpunar. Þetta samstarf er hlekkur í að tryggja gæði og gott umhverfi í borginni og auka sýnileika myndlistar í borgarlandslaginu.

Fyrir um ári síðan var haldin samkeppni um slíkt listaverk á Orkureit við Grensásveg. Í ferlinu voru fimm listamenn valdir til að fullklára tillögu sem lögð var fyrir dómnefnd. Samkeppnin fór fram samkvæmt samkeppnislýsingu sem unnin var af Reykjavíkurborg og hlaut samþykki stjórnar Sambands íslenskra myndlistarmanna, SÍM.

Í kjölfar niðurstöðu ferlisins sköpuðust umræður um framkvæmdina þar sem aðilar málsins urðu sammála um að formsatriði hefði ekki verið fullnægt; sami fulltrúi verkkaupa sat bæði í forvalsnefnd og dómnefnd en slíkt samræmist ekki samkeppnisreglum SÍM. Reykjavíkurborg hefur viðurkennt þetta og beðið listamenn sem tóku þátt afsökunar. SÍM hefur sömuleiðis viðurkennt að trúnaðarmanni hafi á sínum tíma yfirsést að benda á að þetta frávik. Reykjavíkurborg og SÍM þykir þetta miður, hafa tekið málið til sín og vinna að því að skerpa á og bæta verkferla við samkeppnir.

Í samtölum við þátttakendur í samkeppninni um Orkureit kom fram gagnrýni á aðra þætti framkvæmdarinnar, einkum þá staðreynd að ekki sé ljóst hvaða ferli taki á umkvörtunum listamanna. Þá þótti gæta innbyrðis ósamræmis í upplýsingagjöf af hálfu borgarinnar hvað varðar tilhögun samkvæmt samkeppnislýsingu þar sem vísað var til að farið yrði að samkeppnisreglum SÍM. Samhliða því að þetta mikilvæga verkefni festir sig í sessi yfirfer Reykjavíkurborg þá verkferla sem stuðst hefur verið við í samkeppnum er varða listsköpun á uppbyggingarsvæðum. SÍM hefur einnig lagst í úttekt á samkeppnisreglum sínum til þess þær verði betur til þess fallnar að takast á við mál af þessu tagi í framtíðinni.

Traust á samkeppnisferlum byggir á því að reglur séu virtar og að allir þátttakendur sitji við sama borð. Fulltrúar Reykjavíkurborgar og SÍM þakka fyrir opinskáa og heiðarlega umræðu við þátttakendur.

Almenningi er bent á að fylgjast með fjölgun listaverka í almannarými á uppbyggingarsvæðum. Yfirlit yfir þau verkefni sem þegar hafa hlotið brautargengi má finna á vefsvæði Reykjavíkurborgar undir “listaverk á uppbyggingasvæðum.” Nú þegar hafa fjölmörg ný verk orðið til og fleiri munu líta dagsins ljós á næstunni.

Markús Þór er safnstjóri Listasafns Reykjavíkur. Anna Rún er formaður SÍM.




Skoðun

Sjá meira


×