Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Lovísa Arnardóttir skrifar 29. október 2026 06:32 Þau voru með ýmsan búnað við æfingar. a Árni Bergsson björgunarsveitarmaður í björgunarsveitinni Brimrúnu á Eskifirði barðist fyrir því, í kjölfar andláts í Stuðlagili í sumar, að björgunarsveitarmenn í Brimrúnu færu á straumvatnsbjörgunarnámskeið. Enginn hafði slík réttindi í landshlutanum í sumar og þurfti því að kalla til sérfræðinga frá Reykjavík þegar karlmaður féll í ána og lést. „
Björgunarsveitin Brimrún á Eskifirði er komin með fimm straumvatnsbjörgunarmenn sem hafa lokið Straumvatnsbjörgun 1 og 2 og eru að fullu útkallshæfir,“ segir Árni og að nú þurfi því ekki lengur að kalla út menn að sunnan í straumvatnsútköll á Austurlandi. „Við biðum í um fjórar eða fimm klukkustundir í sumar eftir aðstoð að sunnan. Ég tók þátt í því útkalli og mér blöskraði að það þyrfti að flytja menn frá Reykjavík í þetta. Það tók gríðarlegan tíma,“ segir hann og bendir á að hægt sé að blása í mann sem hefur drukknað í allt að 90 mínútur og því skipti tíminn sköpum í þessum málum. Klukkustund í Stuðlagil frá Eskifirði Hann segir að frá Eskifirði sé um klukkustundarakstur frá Eskifirði og það sé því töluvert betra en klukkustundirnar fjórar sem tekur að koma að sunnan. Hann segir sveitina reglulega sinna útköllum í ám fyrir austan í Eyvindará og Eskifjarðará auk þess að sinna útköllum í Stuðlagili. Hann segir að ef það kæmu upp álíka aðstæður og í sumar sé sveitin nú miklu betur undirbúin til að takast á við slík slys. „Eftir því sem vatnið er kaldara því lengri tíma hefurðu í björgun,“ segir hann og að miðað sé við að hægt sé að endurlífga mann í um 90 mínútur sem hefur fallið í vatn sem er um sex gráður. Árni segist hafa fleygt sér fjölmörgum sinnum í ána og það snúist að miklu leyti um að læra hvernig er hægt að koma í veg fyrir meiðsli vegna steina.Aðsend Hann segir þau fimm sem fóru á námskeiðið nú öll orðin hæf í straumvatnsbjörgun 1 og 2 og einhverjir stefni á námskeið númer 3. Á hverju námskeiði sé hæfni aukin og á þremur fáist meiri þekking, til dæmis, til að kenna öðrum. „Það er aukin hæfni í hverju námskeiði, þú ferð dýpra ofan í straumvatnsverkefni og því meiri hættulegri verkefni,“ segir hann og að þau séu nú öll fimm hæf í flest útköll. Kennari námskeiðsins er frá björgunarsveit í Ölfusi sem sinnir árlega fjölda verkefna í ám. Árni segir hann hafa gríðarlega þekkingu og þau heppin að fá hann í kennslu. „Fyrst þegar við komum að ánni spurði ég: hvar er best að hoppa? Gústi svaraði bara: „Árni, það eru steinar í öllum ám, þetta er ekki spurning hvort þú meiðir þig, þú þarft bara að læra að meiða þig minna.“ Stífar æfingar í ánni í fjóra daga Námskeiðið stóð í fjóra daga og er að sögn Árna að mestu verklegt. Um tuttugu prósent séu bókleg. „Hitt eru stífar æfingar í ánni, þar sem við erum að setja upp alls konar ímyndaðar aðstæður til að sýna hvernig við björgum og vinnum.“ Æfingin fór fram í Eyvindará og Árni segir að sveitin vinni nú að því að skipuleggja stóra samhæfingaræfingu fyrir sveitirnar á Austurlandi. Hann segir æfingarnar nokkuð fjölbreyttar, þeir skipuleggi ímyndað slys og finni svo öruggustu leiðirnar að slysstað. „Við erum svo alltaf með plan A, B, C og D. Það er alltaf plan á eftir plani,“ segir hann og að á námskeiðinu hafi þau lært að tryggja sitt eigið öryggi, að bjarga sjálfum sér, félögum sínum og svo þeim sem hafa slasast eða lent í ánni. Á æfingunum voru þau með báta og börur og lærðu að nota búnaðinn við þessar aðstæður. „Þú getur ekki strappað slasaðan í böru í ánni, ef hún hvolfist þá drukknar viðkomandi, það þarf að æfa allt ferlið. Þú getur verið í aðstæðum sem eru klettar og það þarf að hífa viðkomandi upp. Þú gætir þurft að síga ofan í ánna og athafna þig þar. Þú ferð ekkert að bakkanum endilega og labbar í ána. Þú gætir þurft að síga ofan í hana og gera þig tilbúinn í ánni fyrir björgun,“ segir hann og að námskeiðið hafi þannig snúist um að undirbúa þau eins og mögulegt er. „Þetta er rosalega stórt námskeið og svo halda áfram stanslausar æfingar til að viðhalda getu og þekkingu.“ Öll skiptust þau á að fara í ána og bjarga svo hinum.Aðsend Geta reiknað mögulega staðsetningu eftir fall í á Hann segir þau einnig hafa lært að reikna hraða á ánni miðað við straum og geti þannig betur reiknað út leitarsvæðið miðað við hvar fólk fellur í á. „Þetta er eitthvað sem við vissum ekki fyrir og núna gætum við aukið líkurnar á að finna einhvern hraðar. Það er engin trygging en við erum kannski búin að stytta leitarbilið um gríðarlegan tíma.“ Árni segir mikilvægt að muna að aðstæður séu alls konar. „Aðstæður geta verið alls konar við íslenskar ár og við lærðum að meta aðstæður. Ef það kemur tilkynning um að einhver hafi fallið niður á ákveðnum stað getum við reiknað hraðann á ánni og þá getum við reiknað sirka hvar hann gæti verið, á hvaða svæði á að leita. Við getum búið til eitthvað viðmið. Þetta eru hellings fræði og athyglisverð.“ Eins og fram kom að ofan var tilefni þess að sækja námskeiðið andlát karlmanns í Stuðlagili í sumar. Stuðlagil hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Austurlandi undanfarin ár. Erlend ferðakona á fertugsaldri lést þegar hún féll í ána í október árið 2024. Þremur og hálfu ári áður komu nærstaddir konu sem féll í klettum við gilið til bjargar.
Stuðlagil Fjarðabyggð Björgunarsveitir Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Sjá meira