Erlent

„Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Christa Pike var flutt á sjúkrahús eftir að aftaka hennar mistókst.
Christa Pike var flutt á sjúkrahús eftir að aftaka hennar mistókst. AP/Fangelsismálayfirvöld í Tennessee og George Walker

Fanginn Christa Pike hefur loks tjáð sig opinberlega eftir að aftaka hennar mistókst í september. Það hefur ekki liðið það augnablik frá atvikinu þar sem hún hefur ekki upplifað sársauka. Hún segist hafa vaknað ringluð og í sársauka. 

Eins og greint hefur verið frá misheppnaðist aftaka Pike í Tennesse-ríki í september. Hún var flutt á sjúkrahús í flýti og raknaði úr rotinu í byrjun október. Þegar reynt var að taka hana af lífi með pentóbarbítal í æð tókst það ekki. Hún hafði verið sprautuð með tveimur skömmtum af lyfinu sem á að vera banvænt og dró það hana ekki til dauða.

Pike er fimmtug en hún var árið 1996 dæmd til dauða fyrir aðkomu hennar að morði á skólafélaga hennar. Pike var þá um átján ára þegar hún ásamt kærasta sínum pyntaði og drap Colleen Slemmer, sem þá var nítján ára. Pike var illa leikin eftir aftökuna misheppnuðu en hefur verið útskrifuð af spítala og færð aftur í fangelsi.

Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá því að lögmenn Pike hafi birt skriflega yfirlýsingu hennar í dag.

„Það hefur ekki verið sú stund frá þessu kvöldi sem ég hef ekki upplifað sársauka. Ég finn til í líkamanum, í handleggjunum, í höndunum og í hálsinum. Ég á enn erfitt með að tala. Sársaukinn er ekki aðeins líkamlegur. Það er einnig sársauki í huga mínum og sál.“

Lögmenn Pike hafa áður sagt hana hafa þjáðst af lungnabólgu og bólgu í handleggjum í kjölfar aftökunnar. Þá var hún ófær um að kyngja til lengri tíma. 

„Ég er að jafna mig og ég veit að ég er að verða sterkari. Bati er þó ekki það sama og að vera í lagi. Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt. Ég er verulega ósátt við það vanhæfi sem hefur sett of marga í þessa hræðilegu stöðu.“

Fangelsismálayfirvöld í Tennesse neituðu að veita viðbrögð þegar BBC leitaðist eftir því. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×