Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. nóvember 2026 10:21 Ísgaurarnir eru sívinsælir og fólk virðist ekki fá nóg af þeim miðað við nýjustu aðsóknartölur. Gamanmyndin Iceguys: The Movie var frumsýnd í síðustu viku og fór beint á toppinn á aðsóknarlista íslenskra bíóhúsa. Tæplega 6.600 gestir sáu kvikmyndina um helgina sem var sýnd í tíu bíósölum. Um 35 þúsund manns hafa séð íslenskar kvikmyndir í bíó í ár og fimm íslenskar kvikmyndir farið yfir fjögur þúsund gesta-múrinn.
Strákahljómsveitin Iceguys, sem samanstendur af Aroni Can, Herra Hnetusmjöri, Rúrik Gíslasyni og bræðrunum Friðriki Dór og Jóni Jónssyni, sendi frá sér þrjár sjónvarpsseríur á árunum 2023 til 2025 á Sjónvarpi Símans. Þeir bundu endi á sögu sveitarinnar með kvikmyndinni Iceguys: The Movie sem var frumsýnd 30. október síðastliðinn. Sjá einnig: Barnaefni fyrir fullorðna Kvikmyndin fjallar um það þegar sveitin ætlar á tónleikaferðalag að hita upp fyrir Backstreet Boys en villist inn í alþjóðlega strákasveitakeppni. Auk ísgauranna fimm fara Sandra Barilli, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Salóme Gunnarsdóttir og Sólmundur Hólm með hlutverk í myndinni. Leikstjórn myndarinnar er í höndum Hannesar Þórs Halldórssonar, Allans Sigurðssonar og Hannesar Arasonar. Eftirspurnin eftir Iceguys-strákunum er töluverð því alls fóru 6.591 bíógestur að sjá myndina sem var sýnd í tíu bíósölum um helgina og skilaði hún því rúmum fimmtán milljónum króna í kassann. Strákarnir hrifsuðu um leið toppsætið af líkamshrollvekjunni Clayface sem rúmlega fjögur þúsund manns eru búnir að sjá. Tónlistarmyndir á toppnum Samkvæmt aðsóknartölum frá Alfreði Ásberg, framkvæmdastjóra Sambíóanna, hafa tæplega 35 þúsund gestir séð nýjar íslenskar kvikmyndir í bíó í ár. Þá eru ótaldir gestir á sérsýningar og afmælissýningar sem nema yfirleitt nokkrum þúsundum. Að sögn Alfreðs eru íslenskar kvikmyndir ekki nema fimm prósent af heildaraðsókn en þegar best hefur látið hefur sú tala verið í kringum tólf til fimmtán prósent. Vinsælasta íslenska kvikmyndin það sem af er ári er söngvamyndin Hvar er draumurinn? í leikstjórn Höskuldar Þórs Jónssonar en rúmlega ellefu þúsund manns fóru að sjá hana í haust. Eftir aðeins eina helgi í bíóhúsum er kvikmynd ísgauranna komin með um tvo þriðju af aðsókn toppmyndarinnar og þarf sennilega ekki nema aðra helgi til að skáka henni. Alfreð Ásberg á von á því að Iceguys: The Movie muni verða langvinsælasta kvikmynd ársins og gengur svo langt að spá því að hún muni gera enn betur en síðasta leikna kvikmyndin frá Hannesi Þór Halldórssyni, Leynilögga, sem rúmlega 41 þúsund manns sáu árið 2021. Sjá einnig: Reimleikar í húsinu eða röskun í heilanum? Þriðja sætið vermir hrollvekjan Röskun eftir Braga Þór Hinriksson með rúmlega sex þúsund gesti. Eftir rúman mánuð í kvikmyndahúsum í vor þá fór hrollvekjan á streymisveituna Sjónvarp Símans þar sem hægt var að horfa á hana í fjórum þáttum. Þuríður Blær fer með aðalhlutverkið í Röskun. Á hæla Röskunar kemur heimildarmyndin Fuglar og menn eftir Mika Kaurismäki, Ingvar Þórðarson og Ragnar Axelsson sem hefur gert ansi gott mót með um 5.200 gesti. Þar á eftir kemur heimildarmyndin Um tímann og vatnið eftir Söru Dosa sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason og hefur farið sigurför um heiminn. Um 4.200 gestir hafa farið að sjá hana í íslenskum bíóhúsum. Rúmlega níu þúsund Íslendingar hafa því farið að sjá þessar tvær heimildarmyndir sem hlýtur að teljast ansi gott. Neðar á listanum eru svo kvikmyndirnar Undir ísnum eftir Kristján Sturla Bjarnason með um fjögur þúsund gesti, Tulipop: Pési prakkari eftir Selinu Wagner með 2.700 gesti og svo loks heimildarmyndin Ferlið hans Bubba eftir Ásgeir Sigurðsson sem um þúsund manns sáu. Inn í talninguna vantar svo aðsóknartölur fyrir kvikmyndina Dimmalimm eftir Mikael Torfason. Bransinn uggandi Íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa verið uggandi undanfarin misseri, lýst yfir neyðarástandi og „áratuga afturför“ í greininni, flótta reynslubolta og frosti hjá Kvikmyndasjóði sem hefur staðið í stað í þrjú ár og rýrnað miðað við verðbólgu. Einungis þrjár leiknar kvikmyndir fengu styrk frá Kvikmyndasjóði á síðasta ári, Eldarnir, Ástin sem eftir er og Víkin og tvær á þessu ári, Röskun og Iceguys: The Movie. Þar eru auðvitað ekki teknir inn í jöfnuna handrits- og framleiðslustyrkir á kvikmyndum sem koma út síðar. Á síðasta ári fóru rúmlega 47 þúsund gestir að sjá íslenskar kvikmyndir (að meðtöldum sérsýningum og afmælissýningum) í bíóhúsum samanborið við rúmlega 102 þúsund gesti árið 2024 og um 147 þúsund gesti árið 2023. Heildartekjurnar í fyrra námu rúmum 87,5 milljónum króna miðað við 212 milljónir króna árið áður og 287,7 milljónir árið 2024. Þegar aðsóknartölurnar eru skoðaðar fimm ár aftur í tímann sést hvernig aðsóknina batnaði eftir Covid og náði hámarki árið 2023 en hefur dregist saman síðan. Aðsókn á íslenskar myndir aftur í tímann 2020 - 69.586 gestir 2021 - 85.406 gestir 2022 - 77.662 gestir 2023 - 146.577 gestir 2024 - 102.451 gestir 2025 - 47.388 gestir 2026 - ? Mest sótta kvikmyndin árið 2025 var Eldarnir en hana sáu fimmtán þúsund gestir og þar á eftir komu Ástin sem eftir er og Guðaveigar með í kringum 7.500 gesti hvor. Toppmyndirnar árið 2024 voru allar betur sóttar en Eldarnir, tæplega 45 þúsund manns fóru að sjá Snertingu, rúmlega 17 þúsund sáu Ljósvíkinga og um tvö hundruð færri sáu Fullt hús. Gamanmyndin Villibráð segir frá vinahópi sem hittist í matarboði og ákveður að fara í stórhættulegan leik.Ari Magg Aðsóknin á íslenskar myndir árið 2023 er hálfmögnuð í baksýnisspeglinum en þá fóru um 56 þúsund manns að sjá Villbráð og á eftir henni komu Kuldi og Napóleonsskjölin með tæplega 30 þúsund gesti hvor. Aðsókn á íslenskar myndir í ár á enn nokkuð í land með að ná síðasta ári en miðað við aðsóknina á Iceguys: The Movie er líklegt að það gerist í þessum mánuði. En jafnvel þó að bjartsýnar spár gangi eftir og ísgaurarnir dragi meira en fjörutíu þúsund gesti í bíó er ólíklegt að aðsóknin í ár komist nálægt árunum 2023 og 2024.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Kvikmyndahús Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Hinsegin ást í loftinu Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira