Annar markvörður Stjörnunnar glímir við eftirköst
Adam Thorstensen markvörður Sjörnunnar hefur ekki leikið handbolta í fjóra mánuði en hann var skotinn niður í ungmennalandsleik gegn Dönum í nóvember. Hann er annar markvörður Stjörnunnar sem glímir við eftirköst eftir að hafa fengið boltann í andlitið.