Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa heillast af sjálfkeyrandi bílum fyrir um ári og telur mikið á því að græða að uppfæra lög svo að svoleiðis tækni sé möguleg hérlendis. Þá sé öryggið í þessum bílum sjö- eða áttfalt meira en í hefðbundnum akstri og maður upplifi það mjög fljótt að geta slakað á og nýtt tímann í umferðinni í stað þess að þurfa að einbeita sér að akstrinum. Innlent 12.10.2026 22:08
Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Bandaríska leikkonan Selma Blair var í dag handtekin og hefur verið ákærð fyrir í það minnsta tvær líkamsárásir, annars vegar gegn lögreglumanni og hjúkrunarfræðingi, en tvær flugfreyjur hlutu einnig áverka þegar Blair veittist að þeim um borð í flugvélinni. Á hún meðal annars að hafa bitið aðra þeirra og kýlt hina en Alríkislögreglan (FBI) er með málið á sínu borði. Lífið 12.10.2026 20:45
Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Bandarískir alríkisfulltrúar gerðu húsleit á heimili Ilhan Omar, þingkonu Demókrataflokksins, í tengslum við sakamálarannsókn á meintu skjalafalsi. Donald Trump forseti hefur ítrekað sagt að Omar ætti að fara úr landi. Erlent 12.10.2026 13:18
Vill nýjan Úkraínuforseta Bandaríkjaforseti virðist ekki hafa brugðist vel við harðri gagnrýni Úkraínuforseta á dísilsamning Bandaríkjamanna og Rússa og telur að tími sé til kominn að Úkraína fái sér nýjan forseta „sem kunni að gera samninga.“ Erlent 10. október 2026 20:31
Níu létust eftir skotárás Átta voru skotnir til bana í gærkvöldi í borginni Erie í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn svipti sig lífi í kjölfar skotárásarinnar. Erlent 10. október 2026 18:50
„Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist ekki skilja að orð Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, séu túlkuð á neikvæðan hátt og gefur lítið fyrir grein framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar um lygar í aðdraganda ESB-atkvæðagreiðslunnar. Í orðum Rubio hafi falist tækifæri til aukinna viðskipta á milli Íslands og Bandaríkjanna. Innlent 10. október 2026 14:01
Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Samkomulag Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning Rússa á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu er áfall fyrir Evrópu og vatn á myllu stríðsreksturs Rússa í Úkraínu að mati alþjóðastjórnmálafræðings. Erlent 10. október 2026 12:21
Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Fyrsti fellibylur vetrarins á Atlantshafinu í ár gekk á land í gærkvöldi í Flórída og fylgdi honum mikil úrkoma og öflugur vindur að sögn erlendra miðla. Í Flórída og í Alabama ríkjum var þúsundum íbúa fyrirskipað að yfirgefa heimili sín vegna óveðursins. Erlent 10. október 2026 09:56
Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Volódímír Selenskí Úkraínuforseti gagnrýnir harðlega samkomulag Donalds Trump Bandaríkjaforseta um kaup á rússneskri díselolíu. Hann segir samninginn gjöf til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og fjárfestingu í áframhaldandi stríði. Erlent 10. október 2026 08:24
Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, dregur í efa að bandaríska varnarmálaráðuneytið muni standa við áform sín um að sýna aftöku Nidal Hasan í beinni útsendingu. Erlent 9. október 2026 23:18
Trump samdi við Pútín um dísel Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa náð samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu. Erlent 9. október 2026 20:39
Vance biðlar til ungra reiðra manna Af þeim hópum kjósenda sem skiptu hvað mestu máli við að koma Donald Trump aftur til valda voru ungir menn meðal þeirra áhrifamestu. Margir þeirra segjast hins vegar hafa snúið baki við Trump og hafa lýst yfir reiði í garð ríkisstjórnar hans vegna stríðsins gegn Íran, hækkandi verðlags og annarra atriða. Repúblikanar telja þó að hægt sé að ná til þeirra og að gífurlega mikilvægt sé að ná þeim aftur á kjörstað í þingkosningunum í næsta mánuði. Erlent 9. október 2026 19:42
Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Ríkisstjórn Donalds Trump hefur beitt frekari refsiaðgerðum gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum (ICC). Það var opinberað nokkrum klukkustundum eftir að fyrrverandi dómari við dómstólinn fékk friðarverðlaun Nóbels en Marco Rubio utanríkisráðherra segir aðgerðunum ætlað að lama starfsemi dómstólsins. Erlent 9. október 2026 15:13
Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Mikhail Zvinchuk, einn helsti herbloggari Rússlands og stofnandi áhrifamikils miðils sem kallast Rybar, var handtekinn í Svartfjallalandi í morgun. Forsætisráðherra landsins segir hann hafa verið handtekinn eftir viðvaranir um tilraunir til að grafa undan stöðugleika í Svartfjallalandi. Erlent 9. október 2026 11:28
Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Tveimur dögum áður en hann hóf sérstakt átak í því að draga úr reglugerðum varðandi geimferðir einkafyrirtækja og kallaði eftir ríkisstuðningi við slík fyrirtæki, keypti Donald Trump skuldabréf SpaceX fyrir allt að fimm milljónir dala. Hann keypti einnig hlutabréf í Meta fyrir allt að 25 milljónir dala en í heildina framkvæmdi hann 517 viðskiptagjörninga í ágúst. Erlent 9. október 2026 10:18
Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Fulltrúar bandarísku innflytjenda- og tollgæslustofnunarinnar, þekktir sem ICE, skutu mann í New York-borg í gær. Borgarstjóri New York gagnrýnir atvikið og vill að bundinn verði endi á aðgerðir ICE í borginni. Erlent 9. október 2026 06:56
Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Að minnsta kosti 33 eru látnir eftir að rússnesk svifsprengja lenti við hlið nokkurra rútna sem voru fullar af fólki í austanverðri Úkraínu í morgun. Að minnsta kosti 22 og þar af fimm börn dóu þegar eldflaug hæfði fjölbýlishús í annarri borg í Úkraínu í gær. Erlent 8. október 2026 23:52
Ætla að streyma aftöku í beinni Fyrrverandi majór í bandaríska hernum verður tekinn af lífi með aftökusveit í desember. Pete Hegseth varnarmálaráðherra lýsti því yfir í kvöld að aftakan yrði opinber en ráðuneytið ætlar að streyma frá því þegar Nidal Malik Hasan verður skotinn til bana. Erlent 8. október 2026 21:39
Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Tveir menn frá Lettlandi voru handteknir á herstöð í Bretlandi í nótt, þar sem þeir eru sagðir hafa farið gegnum girðingu. Mennirnir eru 36 og 32 ára gamlir og búa þeir báðir í Bretlandi. Erlent 8. október 2026 18:41
Skims opnar í Kringlunni Skims, undirfatamerki í eigu raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian, opnar tímabundið útibú í Kringlunni. Eigendur Mathilda standa að opnuninni en um er að ræða afar vinsælt vörumerki. Viðskipti innlent 8. október 2026 11:17
Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Evrópusambandið, Litáen og Kanada hættu við að taka þátt í ráðstefnu um upplýsingafals eftir að fulltrúar Bandaríkjastjórnar beittu þau þrýstingi. Ástæðan var pallborðsumræður þar sem Bandaríkjunum var lýst sem upplýsingafalsógn. Erlent 8. október 2026 07:55
Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Marco Rubio kallaði í gær eftir því að ríki Evrópu litu aftur til fornra gilda heimsálfunnar. Hann sagði Evrópu þurfa að verja meiru til varnarmála og einnig þyrfti að koma böndum á fólksflutninga til heimsálfunnar. Þetta var meðal þess sem utanríkisráðherrann sagði í ræðu á hinni forfrægu Akrópólishæð í Aþenu í Grikklandi og í ummælum á blaðamannafundi með George Gerapetritis, utanríkisráðherra Grikklands. Erlent 8. október 2026 07:45
Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Árið er 1973. Matvælaverð í Bandaríkjunum fer óðum hækkandi. Richard Nixon bregst við með ríkisstuðningi við landbúnað. Bændur eru hvattir til að rækta eins mikinn maís og pláss leyfir – eða „frá einni girðingu að þeirri næstu“ eins og landbúnaðarráðherra hans orðar það. Ívilnunin dregur hins vegar dilk á eftir sér. Lífið 8. október 2026 07:01
Margaret Hamilton er látin Margaret Hamilton, tölvunarfræðingurinn sem stóð að baki rannsóknum sem áttu þátt í að koma fyrsta manninum til tunglsins, er látin. Hún varð níutíu ára gömul. Erlent 8. október 2026 06:48