Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Alvarlegur skortur á flugskeytum í bandarískt loftvarnarkerfi leiddi til þess að Úkraínumenn gátu ekki stöðvað neina þeirra rúmlega tuttugu skotflauga sem Rússar skutu á Kænugarð í nótt. Tæplega tuttugu manns létust í árásum næturinnar. Erlent 6. júlí 2026 13:42
Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Vesturlönd hafa gengið í gegnum pólitíska umbrotatíð frá aldamótum. Samspil efnahagslegra og samfélagslegra áfalla hefur skapað frjóan jarðveg fyrir þjóðernispopúlisma þar sem samsæriskenningar á borð við um „útskiptin miklu“ hafa færst úr afkimum internetsins og inn í hjarta stjórnmálanna. Lífið 6. júlí 2026 12:00
Sky ætlar að festa kaup á ITV Breska fjölmiðla- og fjarskiptafélagið Sky hefur samið um kaup á ITV, stærstu einkareiknu sjónvarpsstöð Bretlands. Samruni félaganna á að geta keypt við alþjóðlegar streymisveitur. Viðskipti erlent 6. júlí 2026 10:05
Enn besta lausnin að kaupa Grænland Að kaupa Grænland er að mati Bandaríkjamanna enn besta langtímalausnin til að mæta öryggisþörfum Bandaríkjanna á norðurslóðum. Þetta kom fram í máli ónafngreinds bandarísks embættismanns á blaðamannafundi í Tyrklandi í dag. Samningaviðræður hafa staðið yfir milli Bandaríkjanna og Danmerkur síðustu mánuði. Erlent 5. júlí 2026 21:52
Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Frægustu stjörnurnar voru að sjálfsögðu mættar í eitt stærsta brúðkaup ársins hjá Taylor Swift og Travis Kelce. Mikil leynd var yfir öllu sem tengdist brúðkaupinu en talið er að um þúsund manns hafi verið á gestalistanum. Lífið 5. júlí 2026 09:34
Joey Chestnut gleypti 66 pylsur og vann í átjánda sinn Joey Chestnut og Miki Sudo gjörsigruðu keppinauta sína og vörðu pylsuátsmeistaratitla sína á hinni árlegu keppni á Þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. Sport 4. júlí 2026 22:01
Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Mikið er um dýrðir í Bandaríkjunum í dag þar sem landsmenn fagna þjóðhátíðardegi sínum, kenndum við fjórða júlí. Þá fer þar einnig fram Heimsmeistaramót karla í knattspyrnu. Í landinu geisar þó skæð hitabylgja sem útlit er fyrir að setji strik í reikninginn þegar kemur að fagnaðarhöldum. Erlent 4. júlí 2026 15:31
Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Tónlistarkonan Taylor Swift og fótboltakappinn Travis Kelce gengu í það heilaga í New York-borg í gærkvöldi. Gríðarstór veisla var haldin í Madison Square Garden en mikil leynd var yfir athöfninni. Grínistinn Adam Sandler gaf hjónin saman. Lífið 4. júlí 2026 08:19
„Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Kántrísöngkonan Dolly Parton var ein þeirra sem hlutu styrk frá þeim Taylor Swift og Travis Kelce en stjörnuparið hefur verið saman í um þrjú ár. Þrátt fyrir að það hafi að mestu leyti tekist að halda undirbúningi brúðkaups þeirra úr fjölmiðlaumfjöllun hafa sumar bandarískar fréttastofur greint frá því að hátíðarhöldin hafi hafist í gærkvöldi og að parið gifti sig á næstu dögum. Lífið 3. júlí 2026 17:26
Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Slúðurmiðlar vestanhafs fóru á flug eftir að myndir náðust af leikaranum Tobey Maguire, sem er þekktastur fyrir að leika köngulóarmanninn, í nánum samskiptum við tónlistarkonuna Ice Spice í risapartýi Michaels Rubin í New York. Virtust þau vera að kyssast en í kjölfar fréttaflutnings af málinu hafnaði Ice Spice því og sagðist einungis hafa deilt rafrettu með leikaranum. Lífið 3. júlí 2026 14:05
Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Fyrsti viðburður í brúðkaupshátíð Taylor Swift og unnusta hennar, fótboltakappans Travis Kelce, er sagður hafa farið fram í gær. Fyrsti viðburður var kvöldverður í aðdraganda brúðkaups þeirra um helgina í Madison Square Garden í New York. Lífið 3. júlí 2026 09:07
Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Donald Trump Bandaríkjaforseti tók sér tíma í gær til að gagnrýna bandamenn á samfélagsmiðlinum Truth Social, þar sem hann sagði meðal annars að Bandaríkin hefðu veitt mun meiri fjármunum til Atlantshafsbandalagsins en nokkuð annað ríki án þess að fá nokkuð fyrir. Erlent 3. júlí 2026 06:47
Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Fyrrverandi Ólympíufari á sjötugsaldri var í dag ákærður í tengslum við það sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur kallað skemmdarverk á lauginni við Lincoln-minnismerkið í Washington D.C. Verjendur mannsins segja málið byggt á uppspuna. Erlent 2. júlí 2026 22:24
Varnarsamningurinn og fullveldið Í hlaðvarpinu Flekaskil fjalla þau Dagur B. Eggertsson, fyrrum borgarstjóri og alþingismaður, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrum utanríkisráðherra og sendiherra í Lundúnum, um utanríkismál. Umræðuefni fimmta þáttar var varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna 1951. Þetta var eitt heitasta umræðuefnið meðal landsmanna en hefur legið í láginni síðustu áratugi. Þetta er athyglisverður þáttur og þau koma víða við. Þátturinn vekur margar spurningar hjá hlustanda, einkum það sem ekki er sagt. Skoðun 2. júlí 2026 10:35
Muniz skilinn Bandaríski leikarinn og NASCAR-ökuþórinn Frankie Muniz, sem er þekktastur fyrir að leika Malcolm í miðjunni, og eiginkona hans, Paige Price, eru skilin eftir sex ára hjónaband og tíu ára samband. Lífið 2. júlí 2026 10:02
Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Fyrirsætan og áhrifavaldurinn Nara Smith hefur opnað sig um það að tveggja ára dóttir hennar, Whimsy Lou, sé með krabbamein. Dóttirin greindist með krabbamein á seinni hluta síðasta árs en ekki kemur fram um hvers konar krabbamein ræðir. Lífið 2. júlí 2026 09:21
Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Nefnd á vegum Evrópuþingsins sem heimsótti Albaníu á dögunum hefur varað við því að áframhaldandi framkvæmdir við lúxusparadís Jared Kushner, tengdasonar Donald Trump Bandaríkjaforseta, ógni aðildarviðræðum Albaníu við Evrópusambandið. Erlent 2. júlí 2026 06:54
Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Karlmaður og kona voru handtekin í dag eftir að hafa klifið á topp Empire State-byggingarinnar í New York. Maðurinn bað konunnar eftir að þau klifu á toppinn. Erlent 1. júlí 2026 20:51
Weinstein á spítala eftir hjartabilun Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein, sem afplánar sextán ára fangelsisdóm í fangelsi á Rikers-eyju fyrir fjölda kynferðisbrota, hefur verið lagður inn á sjúkrahús vegna hjartabilunar af völdum lungnabólgu. Lífið 1. júlí 2026 17:18
Danny Glover með Alzheimer Bandaríski leikarinn Danny Glover greindi frá því í dag að hann væri kominn með Alzheimer-sjúkdóm og hefði glímt við hann síðustu þrjú ár. Hann segist byrjaður að finna fyrir áhrifum sjúkdómsins á talanda sinn, hreyfingu og minningar. Bíó og sjónvarp 1. júlí 2026 16:10
Söngvari YMCA látinn Victor Willis, bandarískur söngvari diskósveitarinnar Village People sem var geysivinsæl á áttunda áratugnum fyrir slagarann YMCA, er látinn 74 ára að aldri. Tónlist 1. júlí 2026 09:10
Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Leiðangursstjóri á skipi Pauls Watson var annar tveggja manna sem sökkti hvalskipum í Reykjavík og vann skemmdir á hvalstöð á níunda áratugnum. Hann hefur síðan setið inni fyrir eldsprengjuárás en á seinni árum afneitað ofbeldisfullum aðgerðum. Innlent 1. júlí 2026 08:00
Mokgræðir á rafmyntum Donald Trump Bandaríkjaforseti græddi ríflegan milljarð Bandaríkjadala í gegnum rafmyntir í fyrra. Innlent 1. júlí 2026 07:50
Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfesti að börn sem fæðast í Bandaríkjunum séu bandarískir ríkisborgarar, jafnvel þótt foreldrar þeirra dvelji ólöglega í landinu. Hafnaði hann þannig tilskipun Donalds Trump forseta sem átti að afnema ríkisborgararétt þeirra barna. Erlent 30. júní 2026 14:52
Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur staðfest að ríki megi banna trans stúlkum og konum að keppa fyrir skólaíþróttalið. Slík bönn brjóti ekki ákvæði stjórnarskrá um mismunun á grundvelli kyns í skólum. Erlent 30. júní 2026 14:27
Fann ástina og tók sénsinn í New York „Þótt það hafi verið krefjandi að stofna fyrirtæki hefur það líka verið mest gefandi lífsreynslan hingað til. Ég hef lært ótrúlega mikið og er svo þakklát fyrir að hafa tekið áhættuna og trúað á sjálfa mig,“ segir hin 28 ára gamla Klara Sól sem hefur verið búsett í Bandaríkjunum síðastliðin átta ár. Lífið 30. júní 2026 07:02
Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað áfrýjunarbeiðni Donalds Trump Bandaríkjaforseta í máli þar sem hann hefur verið fundinn sekur um ærumeiðingar og kynferðisofbeldi gegn rithöfundinum E. Jean Carroll. Erlent 30. júní 2026 00:11
Lést af völdum alnæmis Daveigh Chase, leikkona og fyrrum barnastjarna, lést úr alnæmi að sögn réttarlæknis. Greint var frá því fyrr í mánuðinum að Chase væri látin þrjátíu og fimm ára að aldri. Lífið 29. júní 2026 21:10
Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra varar Evrópusambandið við hugmyndum um að ný aðildarríki þurfi að bíða eftir fullum atkvæðis- og neitunarvaldsrétti eftir inngöngu í sambandið. Innlent 29. júní 2026 12:54
Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum „Tilfinningin að koma í land og klára þetta sund er ótrúlega mögnuð og á sama tíma er spennufallið mikið. Maður var búinn að hlakka til þessa sunds í langan tíma og hafa mikið fyrir æfingum, það er óneitanlega frábært að klára svona verkefni sem heild,“ segir María Fanndal Birkisdóttir sem tilheyrir sjósundshópnum Valkyrkjunum og var að klára hið margfræga Catalina sund. Lífið 29. júní 2026 10:39