Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Eld­flaug Bezos sprakk í loft upp

Eldflaug fyrirtækisins Blue Origin í eigu Jeff Bezos sprakk í loft upp í tilraunaskoti í Flórída í gærkvöldi. Engum starfsmanni var meint af en gríðarstór eldhnötturinn sást víða.

Erlent
Fréttamynd

Samnings­drög sam­þykkt en beðið eftir grænu ljósi for­setans

Samningamenn Bandaríkjanna og Írans eru sagðir hafa samþykkt frumdrög að samkomulagi sem myndi framlengja vopnahlé þeirra á milli um sextíu daga og hefja samningaviðræður um framtíð kjarnorkuáætlunar Írans. Donald Trump Bandaríkjaforseti á enn eftir að samþykkja samkomulagið en hann er sagður deila samningsdrögum með bandamönnum sínum.

Erlent
Fréttamynd

Sak­sóknarar rann­saka konu sem Trump braut á

Kona sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, var árið 2023 dæmdur fyrir að brjóta á kynferðislega er nú til rannsóknar hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. E Jean Carroll höfðaði mál gegn Trump og sakaði hann um nauðgun og ærumeiðingar en það mál endaði á því að honum var gert að greiða henni fimm milljónir dala. Honum var í öðru máli gert að greiða henni 83 milljónir dala.

Erlent
Fréttamynd

Ó­sáttur við skil­yrðin

Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst enn ósáttur við þau samningsskilyrði sem Íranir og Bandaríkjamenn semja nú um. Íranskir ríkismiðlar hafa greint frá meintum samningsdrögum en Hvíta húsið kallar þau hreinan uppspuna.

Erlent
Fréttamynd

Lenda þremur geim­förum á tunglinu á þessu ári

Senda á þrjú ómönnuð geimför til tunglsins á þessu ári og á að nota þau til að leggja grunninn að mönnuðum ferðum þangað og byggingu nýrra bækistöðva á yfirborðinu. Vonast er til þess að þrjú mismunandi lendingarför verði send til tunglsins á árinu og eiga þau að bera tungljeppa og ýmiskonar vísindabúnað þangað.

Erlent
Fréttamynd

Trump-liði vann og Demó­kratar fagna

Ken Paxton, dómsmálaráðherra Texas, velti í gær öldungadeildarþingmanninum John Cornyn úr sessi. Paxton bar sigur úr býtum í forvali Repúblikanaflokksins um tilnefningu til baráttunnar um þingsæti Cornyns en sigurinn ítrekar enn og aftur gífurleg áhrif Donalds Trump, forseta, innan flokksins.

Erlent
Fréttamynd

Bardagabúr rís við Hvíta húsið

Framkvæmdir eru hafnar við svokallað „bardagabúr“ á Suður-flöt Hvíta hússins, þar sem UFC verður með viðburð í sumar í tilefni 250 ára afmælis Bandaríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að um verði að ræða „stærsta viðburð“ í sögu UFC.

Erlent
Fréttamynd

Skugganefndir styðja um­deilda Demó­krata

Pólitískar aðgerðanefndir sem sumar hafa tengsl við innanbúðamenn í Repúblikanaflokknum hafa dælt fúlgum fjár í forvöl innan Demókrataflokksins. Fúlgurnar hafa farið í að bæta stöðu frambjóðenda sem þykja umdeildir innan Demókrataflokksins og ólíklegir til að standa sig vel í almennum kosningum.

Erlent
Fréttamynd

Þegar yfir­völd gengust við fljúgandi furðu­hlutum

Yfirvöld á Vesturlöndum hafa á undanförnum árum gjörbreytt nálgun sinni á fljúgandi furðuhluti. Lengi vel þótti umræðan fóðra langsóttar samsæriskenningar um að yfirvöld leyndu tilvist geimfara frá fjarlægum hnöttum. Ýmsar aðgerðir stjórnvalda til þess að gera lítið úr slíkum grunsemdum, oft með því að gera þær að beinu athlægi, gerðu hins vegar illt verra og mögnuðu upp slíkar kenningar.

Lífið
Fréttamynd

Ás­laug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ráðherra og þingmaður í leyfi, útskrifaðist úr MPA námi frá Columbia háskólanum um helgina. Hún birti mynd af sér í fötum sem líktust þeim sem móðir hennar var í þegar hún útskrifaðist úr námi í Bandaríkjunum fyrir fjórum áratugum.

Lífið
Fréttamynd

Ru­bio von­góður um vopna­hlé

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að samkomulag við Íran gæti náðst í dag, mánudag. Hann segir samninganefndir landanna tveggja komnar með eitthvað bitastætt á samningaborðið en vinna sé þó enn yfirstandandi. Rubio er þessa stundina staddur í opinberri heimsókn á Indlandi.

Erlent
Fréttamynd

Trump vill ekki flýta sér

Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning.

Erlent
Fréttamynd

Meintur byssu­maður 21 árs góð­kunningi leyni­þjónustunnar

Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa nafngreint meintan byssumann sem var felldur af öryggissveitum Bandaríkjaforseta í gær eftir að hafa hleypt af skotum við Hvíta húsið. Lögreglan hefur oft áður haft afskipti af honum fyrir utan Hvíta húsið en hann er talinn hafa átt við geðræn vandamál að stríða.

Erlent
Fréttamynd

Mjakist nær sam­komu­lagi

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn og Írana „færast mun nær“ samkomulagi um að binda enda á stríðið í Miðausturlöndum. Báðir aðilar eru varkárir í yfirlýsingum en teikn um árangur hafa einnig borist frá Teheran.

Erlent
Fréttamynd

Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum

Dregið gæti til tíðinda í friðarviðræðum Bandaríkjamanna og Írans á næstu klukkustundum eða næstu dögum, að sögn utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Pakistanskir milligöngumenn segja að árangur hafi náðst í samræðum sínum við Írana í dag.

Innlent
Fréttamynd

Skikkaðir í ein­angrun fram að HM

Landsliðsmenn Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó þurfa að einangra sig fram að fyrsta leik liðsins á HM í fótbolta vegna ebólu í ríkinu. Þetta segir Andrew Giuliani, yfirmaður starfshóps Hvíta hússins sem sér um komandi heimsmeistaramót.

Fótbolti
Fréttamynd

Vilja skipa erind­reka en vita ekki hvert erindið er

Ráðamenn í Evrópu eru með til skoðunar að skipa sérstakan erindreka gagnvart Rússlandi sem koma á að friðarviðræðum um Úkraínu. Þessi erindreki myndi þá eiga í viðræðum við ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Fyrst þurfa Evrópumenn þó að komast að samkomulagi um hvað erindrekinn á að segja.

Erlent
Fréttamynd

Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Banda­ríkin

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að bandarískum hermönnum í Evrópu muni fækka. Um það sé skilningur meðal aðildarríkja NATO en framkvæmdastjóri bandalagsins segir að hin ríka Evrópa hafi reitt sig of mikið á Bandaríkin í varnarmálum og að það muni breytast á næstu árum.

Erlent
Fréttamynd

Nýjasta sumartrendið í boði Travolta

Leikstjórnarfrumraun Johns Travolta var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes um síðustu helgi og hlaut Hollywood-stjarnan heiðursverðlaun hátíðarinnar. Það sem vakti þó helst athygli var útlit Travolta: vandlega snyrt skegg, spangargleraugu og alpahúfur í ýmsum litum. Travolta útskýrði valið á alpahúfunni sem gæti vel orðið nýjasta sumartrendið.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Birta loks um­deilda „krufningu“ á fram­boði Harris

Forsvarsmenn Landstjórnar Demókrataflokksins (DNC) birtu í gær umdeilda skýrslu þar sem rýna átti í hvað fór úrskeiðis hjá flokknum í síðustu forsetakosningum. Ken Martin, stjórnandi DNC, hefur setið á skýrslunni um langt skeið en hún þykir ekki vel unnin og hafa tafir á birtingu hennar leitt til deilna innan flokksins. Martin sjálfur þykir ekki í öruggri stöðu.

Erlent
Fréttamynd

Fljúga dag­lega til Washington D.C. í sumar

United Airlines hóf í dag beint flug til Keflavíkurflugvallar frá Washington D.C. og var af því tilefni tekið vel á móti farþegum við komuna til Keflavíkurflugvallar. Í sumar mun United Airlines fljúga daglega á milli KEF og Dulles flugvallar. sem fjölgar valkostum ferðalanga, bæði hvað varðar þægindi og flugtengingar.

Viðskipti innlent