Umfjöllun: KR Íslandsmeistari eftir sannfærandi sigur í Garðabænum KR-ingar eru Íslandsmeistarar í körfubolta karla í þriðja sinn á fjórum árum og í tólfta sinn frá upphafi eftir sannfærandi fjórtán stiga sigur á Stjörnunni í kvöld, 109-95, í fjórða leik liðanna úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla í Ásgarði í Garðabæ. KR vann því úrslitaeinvígið 3-1. Körfubolti 19. apríl 2011 21:04
Brjóta KR-ingar hundrað stiga múrinn áttunda leikinn í röð? KR-ingar geta sett nýtt met í úrslitakeppninni í kvöld skori liðið hundrað stig eða meira í fjórða leik lokaúrslitanna á móti Stjörnunni. KR-ingar geta því ekki aðeins tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn því með því að skora hundrað stig bæta þeir met Keflvíkinga frá 2003. Körfubolti 19. apríl 2011 18:15
Marcus Walker: Mamma er besti vinur minn Marcus Walker er lykilmaður í liði KR sem í kvöld getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta með sigri á Stjörnunni í fjórða leik liðanna í lokaúrslitum Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 19. apríl 2011 16:00
Teitur: Fór aðeins yfir strikið Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, viðurkennir að hann hafi farið yfir strikið í gagnrýni sinni á dómara eftir síðasta leik sinna manna gegn KR í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn um körfubolta. Körfubolti 19. apríl 2011 13:30
Keflavík vann alla titlana í kvennaflokki Keflavík náði sögulegum árangri nú í vetur en liðið er eftir tímabilið handhafi allra Íslandsmeistaratitla í kvennaflokki, frá yngsta flokki til meistaraflokks. Körfubolti 18. apríl 2011 19:45
Frábær seinni hálfleikur tryggði sigurinn KR er komið í 2-1 gegn Stjörnunni í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta eftir sigur á heimavelli í gærkvöldi, 101-81. Körfubolti 18. apríl 2011 07:00
Hreggviður: Það vita það allir á Íslandi að við erum betra liðið "Þessi varnarleikur á eftir að skila okkur Íslandsmeistaratitlinum,“ sagði Hreggviður Magnússon, leikmaður KR, eftir sigurinn í kvöld. KR vann þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn, 101-81, og leiðir einvígið 2-1. Körfubolti 17. apríl 2011 22:29
Marcus og Mamma: Klárum dæmið í næsta leik "Það sem hefur alltaf skilað okkur sigrum er varnarleikur okkar í síðari hálfleik. Um leið og liðið nær að stoppa 2-3 sóknir frá andstæðingnum þá smitað þar frá sér og við eflumst,“ sagði Walker. Körfubolti 17. apríl 2011 22:08
Teitur: Þetta var bara búið í hálfleik "Við spiluðum vel í fyrri hálfleik, en áttum aldrei séns í þeim síðari,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir ósigurinn í kvöld. Körfubolti 17. apríl 2011 21:59
Hrafn: Besta vörn sem ég hef séð frá liðinu "Við hrukkum heldur betur í gírinn í þriðja leikhlutanum,“ sagði Hrafn Krisjánsson, þjálfari KR, eftir sigurinn í kvöld. Körfubolti 17. apríl 2011 21:54
Umfjöllun: KR átti í engum vandræðum með Stjörnuna KR-ingar settust í bílstjórasætið í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld þegar þeir unnu Stjörnuna, 101- 81, í þriðja leik liðanna og leiða því einvígið 2-1. KR keyrði yfir Stjörnuna í þriðja leikhlutanum og voru tuttugu stigum yfir þegar einn leikhluti var eftir. Marcus Walker átti enn einn stórleikinn og skoraði 33 stig. Körfubolti 17. apríl 2011 21:04
Stjörnumenn jöfnuðu metin Stjarnan jafnaðií gær metin í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta með sigri á KR á heimavelli, 107-105. Körfubolti 15. apríl 2011 07:00
Fannar: Mættum allir klárir í kvöld „Þetta var virkilega flottur leikur þar sem tvö góð lið mættust,“ sagði Fannar Helgason, leikmaður Stjörnunnar, eftir sigurinn í kvöld. Körfubolti 14. apríl 2011 22:23
Marvin: Vildum sýna okkar rétta andlit „Við vildum sýna fólki í kvöld að við værum ekki svona lélegir eins og í síðasta leik,“ sagði Marvin Valdimarsson, leikmaður Stjörnunnar, eftir dýrmætan sigur gegn KR-ingum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 14. apríl 2011 22:11
Teitur: Sviðsskrekkurinn er núna farinn „Núna mætti þessi sterka liðsheild okkar sem var búin að koma okkur þetta langt í mótinu,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir sigurinn á KR í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Stjarnan vann KR 107-15 í hörku spennandi leik og jafnaði því einvígið 1-1. Körfubolti 14. apríl 2011 21:52
Umfjöllun: Dramatískur sigur hjá Stjörnunni Það verður ekkert af því að KR sópi Stjörnunni í úrslitaeinvígi Iceland Express-deildar karla. Stjörnumenn svöruðu fyrir sig á heimavelli í kvöld, unnu leikinn, 107-105, og jöfnuðu þar með einvígið í 1-1. Körfubolti 14. apríl 2011 20:55
Miðinn á enska bikarúrslitaleikinn hækkar um 22 prósent Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að hækka miðaverðið á úrslitaleik enska bikarsins sem fer fram á Wembley 14. maí síðastliðinn. Dýrasti miðinn á leikinn kostar nú 115 pund eða rúmlega 21 þúsund íslenskar krónur. Enski boltinn 14. apríl 2011 19:00
Fjögur af átta liðum hafa komið til baka eftir skell í fyrsta leik Fjögur af átta liðum sem hafa fengið skell í fyrsta leik í úrslitaeinvígi karla (+20 stiga tap) hafa svarað því með því að jafna einvígið í næsta leik. Stjarnan tekur á móti KR í Ásgarði í kvöld en KR-ingar unnu fyrsta leikinn með 30 stiga mun í DHL-höllinni. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 14. apríl 2011 18:15
Brynjar: Stefnum á að klára einvígið í þrem leikjum KR-ingurinn Brynjar Þór Björnsson segir að það sé stefna KR-liðsins að klára Stjörnuna 3-0 í úrslitaeinvíginu um körfubolta og lyfta bikarnum á heimavelli á sunnudag. Körfubolti 14. apríl 2011 17:30
Teitur: Verðum ekki yfirspenntir í kvöld KR-ingar tóku lærisveina Teits Örlygssonar í Stjörnunni í bakaríið í fyrsta leik liðanna í úrslitum Iceland Express-deildar karla. KR vann leikinn með 30 stigum. Körfubolti 14. apríl 2011 15:30
Ágúst Björgvinsson hættur með Hamarsliðin Ágúst Björgvinsson verður ekki áfram í Hveragerði en hann hefur þjálfað meistaraflokka karla og kvenna hjá Hamar undanfarin tvö tímabil og var þar á undan með karlalið Hamars í tæp tvö tímabil. Körfubolti 13. apríl 2011 20:42
Ólíklegt að Jón Halldór taki við karlaliði Keflavíkur Körfuknattleiksdeild Keflavíkur leitar nú að nýjum þjálfara til að taka við karlaliði félagsins af Guðjóni Skúlasyni sem hætti með liðið í gær. Körfubolti 12. apríl 2011 12:30
Brynjar: Frábær liðsheild skóp þennan sigur "Þetta var bara frábær sigur hjá okkur og sigur liðsheildarinnar,“ sagði Brynjar Þór Björnsson, leikmaður KR, eftir sigurinn í kvöld gegn Stjörnunni. KR valtaði yfir Stjörnuna, 108-78, í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deild karla í körfubolta. Körfubolti 11. apríl 2011 22:38
Teitur: Mætum klárir í næsta leik "Við erum að fara á okkar heimavöll og fáum tækifæri til að gera betur. Í byrjun þriðja leikhluta þá missum við aðeins jafnvægið í okkar leik og þá koma þeir í bakið á okkur, en það var akkúrat það sem við vildum alls ekki,“ sagði Teitur. Körfubolti 11. apríl 2011 22:29
Pavel: Þetta verður ekki svona auðvelt í næsta leik "Þeir eiga eftir að mæta dýrvitlausir í næsta leik,“ sagði Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi KR-inga, eftir sigurinn í kvöld, en Bikarmeistararnir unnu fyrstu orrustuna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deild karla í körfubolta. Körfubolti 11. apríl 2011 22:20
Kjartan: Við vorum bara ekki tilbúnir „Við hreinlega mættum ekki til leiks,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, leikmaður Stjörnunnar, eftir að hafa tapað fyrir KR í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deild karla. Körfubolti 11. apríl 2011 22:09
Hrafn: Keyrðum yfir þá í síðari hálfleik „Ég bjóst ekki við svona stórum sigri en ég var alveg viss um það að við myndum vinna þennan leik,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir sigurinn í kvöld. KR vann Stjörnuna, 108-78, í DHL-höllinni, en þetta var fyrsti leikur liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 11. apríl 2011 22:01
Umfjöllun: KR-ingar tóku Stjörnuna í kennslustund, 108-78 KR-ingar sýndu styrk sinn gegn Stjörnunni í fyrsta leiknum í úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í kvöld. Stjarnan náði að hanga með KR-ingum í fyrri hálfleik en síðari hálfleik settu KR-ingar allt í gang og keyrðu hreinlega yfir lið Stjörnunnar. Lokatölur 108-78 og staðan er 1-0 fyrir KR en þrjá sigra þarf til þess að vinna þetta einvígi. Næsti leikur fer fram á fimmtudaginn á heimavelli Stjörnunnar. Körfubolti 11. apríl 2011 20:52
Keflavík í viðræðum við Sigurð Ingimundarson Körfuknattleiksdeild Keflavíkur stendur uppi þjálfaralaus í kjölfar þess að Guðjón Skúlason hætti með karlalið félagsins í dag. Áður hafði Jón Halldór Eðvaldsson hætt með kvennaliðið. Körfubolti 11. apríl 2011 19:30
Fannar spilar líklega ekki með KR í kvöld Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, verður væntanlega ekki með KR í kvöld gegn Stjörnunni er úrslitarimman um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik hefst. Körfubolti 11. apríl 2011 18:12