Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Í Stúkunni á mánudagskvöldið voru ungir leikmenn Breiðabliks til umræðu en Blikarnir unnu flottan sigur á ÍA í síðustu umferð, 2-1. Þór Andersen Willumsson skoraði sigurmark Blika í leiknum og Dagur Örn Fjeldsted var einnig frábær í leiknum. Íslenski boltinn 8.7.2026 13:33
Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Breiðablik hefur fengið góðan liðsstyrk því félagið hefur samið við sænska knattspyrnufélagið Brommapojkarna um að Hlynur Freyr Karlsson leiki með Kópavogsliðinu út þessa leiktíð. Íslenski boltinn 8.7.2026 12:18
Sautján ára hetja Breiðabliks: Kemur þegar maður trúir á Guð og sig sjálfan Þór Andersen Willumsson reyndist hetja Breiðabliks þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á ÍA í þrettándu umferð Bestu deildarinnar í fótbolta á ELKEM vellinum á Akranesi í gær. Fótbolti 5.7.2026 10:29
Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Íslenski boltinn 4.7.2026 13:17
Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Íslenski boltinn 30.6.2026 10:31
„Harka, hugrekki og massífir“ „Tilfinningin er eins góð og hún getur verið. Þetta var bara ótrúlega góður sigur. Grunngildin voru í lagi, við mættum massífir og planið gekk upp á tíu,“ sagði Viktor Karl Einarsson, fyrirliði Breiðabliks, eftir 3-0 sigur á heimavelli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn Víkingum. Íslenski boltinn 28. júní 2026 16:30
Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 3-0 | Blikar í bikarúrslit Breiðablik er komið í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrsta sinn síðan 2018. Varð það ljóst eftir 3-0 sigur gegn Víkingum á Kópavogsvelli í dag. Íslenski boltinn 28. júní 2026 15:50
Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Arnar Bjarki Gunnleifsson varð næstyngstur til að skora í efstu deild á dögunum en um leið og hann skoraði í öðrum leiknum í röð þá sló hann aldursmetið sem var í eigu Eiðs Smára Guðjohnsen. Íslenski boltinn 26. júní 2026 22:31
Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Víkingur vann sinn tólfta leik í Bestu deild karla í röð þegar liðið bar sigurorð af Breiðabliki á Kópavogsvelli í gær, 1-4. Víkingar eru með níu stiga forskot á toppi deildarinnar. Íslenski boltinn 26. júní 2026 11:00
Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Höskuldur Gunnlaugsson, leikmaður Breiðabliks, var að vonum svekktur eftir 4-1 tap gegn Víkingi á Kópavogsvelli í kvöld. Blikar voru lengi vel inni í leiknum en gestirnir refsuðu grimmilega þegar heimamenn riðluðust í sínum leik. Íslenski boltinn 25. júní 2026 21:46
Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Íslandsmeistarar Víkings styrktu stöðu sína á toppi Bestu deildar karla í kvöld með frábærum 4-1 sigri gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli. Víkingar hafa nú unnið tólf deildarleiki í röð eftir jafnteflið við Blika í 1. umferð. Íslenski boltinn 25. júní 2026 20:53
„Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, er bjartsýnn fyrir leikinn gegn Víkingum í kvöld. Stórleikir eru skemmtilegustu leikirnir og eru leikmennirnir fullir tilhlökkunar. Fótbolti 25. júní 2026 15:08
Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Sérstakur þáttur Sýnar Sports um Norðurálsmótið verður frumsýndur á Sýn Sportklukkan 18 í kvöld. Andri Már Eggertsson skellti sér á Skagann um síðustu helgi og fylgdist með yngstu iðkendum knattspyrnunnar leika listir sýnar. Íslenski boltinn 25. júní 2026 06:00
„Það er stórt“ að skáka Eiði Smára Arnar Bjarki Gunnleifsson opnaði markareikning sinn í Bestu deildinni í sigri Blika á KA-mönnum og varð um leið næstyngsti markaskorarinn í sögu efstu deildar á Íslandi. Íslenski boltinn 23. júní 2026 11:00
Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Breiðablik er aftur komið á topp Bestu deildarinnar eftir sigur á ÍBV í Eyjum í kvöld, en FH á þó leik til góða og getur endurheimt toppsætið. ÍBV hefur ekki unnið leik í Bestu deildinni frá því 10. maí og er ljóst að þær þurfa að bíða eitthvað lengur eftir næsta sigri. Íslenski boltinn 22. júní 2026 17:18
Einum mánuði yngri en Eiður Smári Arnar Bjarki Gunnleifsson varð í gær næstyngsti markaskorari efstu deildar karla í fótbolta frá upphafi þegar hann skoraði fyrir Breiðablik í 3-1 sigri á KA. Íslenski boltinn 22. júní 2026 12:01
Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 22. júní 2026 09:42
Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Stórleikur Blika og Víkings í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta er settur á klukkan tvö á sunnudaginn kemur. Stuðningsmenn félaganna eru allt annað en sáttir og hafa nú sent frá sér áskorun til Knattspyrnusambands Íslands og Ríkissjónvarpsins. Íslenski boltinn 22. júní 2026 08:28
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Hér fer fram bein textalýsing frá leik Breiðabliks og KA í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli klukkan sex. Íslenski boltinn 21. júní 2026 21:51
Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Íslandsmeistarar Víkings unnu toppslaginn gegn KR, Emil Atlason skoraði þrennu í hreint út sagt sturluðum leik í Garðabæ, og Skagamenn unnu dýrmætan sigur á Val. Öll mörkin má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 17. júní 2026 09:34
Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Stjarnan og Breiðablik gerðu átta marka jafntefli í ótrúlegum fótboltaleik í Garðabænum í kvöld. Leikar enduðu 4-4 þar sem Emil Atlason gerði þrennu meðal annars. Íslenski boltinn 16. júní 2026 21:10
Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Bestu mörkin voru á dagskrá eftir áttundu umferð Bestu deildar kvenna í gær og ræddu þar Jóhann Fjalar Skaptason, Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Magnús Haukur Haraldsson um stöðu Blika eftir að hafa misst efsta sæti deildarinnar. Fótbolti 14. júní 2026 13:16
Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Hér fer fram textalýsing frá leik Breiðabliks og Stjörnunnar í áttundu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli klukkan 14:00. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland . Fótbolti 13. júní 2026 13:18
Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Það verður risaleikur í undanúrslitum Mjólkurbikars karla og það er líka ljóst að Lengjudeildarlið mun spila í bikarúrslitaleiknum í ár. Íslenski boltinn 12. júní 2026 22:28
Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Breiðablik tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir 3-0 útisigur á Lengjudeildarliði Ægis í Þorlákshöfn í átta liða úrslitum keppninnar. Íslenski boltinn 12. júní 2026 19:22
Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslandsmeistaraparið og knattspyrnufólkið Barbára Sól Gísladóttir og Karl Friðleifur Gunnarsson sögðu frá miklum gleðifréttum á samfélagsmiðlum sínum. Íslenski boltinn 11. júní 2026 21:29