Fyrsta barn ársins fæddist í sjúkrabíl í Eyjafirðinum Fyrsta barn ársins, eftir því sem fréttastofa kemst næst, kom í heiminn í sjúkrabíl í Eyjafirði klukkan 0:23 í nótt. Innlent 1. janúar 2022 07:48
„Gæðastundirnar eru svo miklu fleiri“ Fyrr á þessu ári hætti Jóhann K. Jóhannsson í fréttamennsku, réði sig sem slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð og fluttist með fjölskyldunni til Siglufjarðar. Atvinnulíf 31. desember 2021 10:01
Snjóflóðahætta á Tröllaskaga eftir mikla ofankomu Óvissuástandi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Tröllaskaga. Töluverð snjókoma hefur verið í nótt. Innlent 28. desember 2021 10:09
Dúxaði Menntaskólann á Tröllaskaga: „Skipulagið númer eitt, tvö og þrjú“ Guðrún Júlíana Sigurðardóttir gerði sér lítið fyrir og dúxaði Menntaskólann á Tröllaskaga með frábærum árangri. Hún hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi auk viðurkenninga fyrir ágætiseinkunn í dönsku, íslensku, spænsku, félagsgreinum, lýðheilsu og stærðfræði. Innlent 19. desember 2021 15:41
Yngsti æðarbóndi landsins ætlar að koma æðardúnsvefnpokanum á kortið Árni Rúnar Örvarsson er yngsti æðarbóndi landsins. Hann fer fyrir nýsköpunarfyrirtækinu Icelandic Eider sem stefnir að því að verða fyrsta fyrirtækið í heiminum til að fjöldaframleiða æðardúnsvefnpoka. Viðskipti innlent 7. desember 2021 09:01
Fyrsti skíðadagurinn á Siglufirði í fallegu veðri Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði opnar í dag í fyrsta sinn í vetur. Forstöðumaður svæðisins segist hafa fundið fyrir mikilli tilhlökkun meðal bæjarbúa og dagurinn sé fullkominn til skíðamennsku. Innlent 4. desember 2021 14:36
Kölluð út vegna foktjóns og hjólhýsis sem fór á hliðina Björgunarsveitir og lögregla hafa sinnt um tuttugu verkefnum á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna vonskuveðurs sem gengur yfir landið. Innlent 13. nóvember 2021 17:56
Kaffi og grobbsögur það besta við Himnaríki Það er allur gangur á því hvenær og auðvitað hvort menn komast til himnaríkis, ef þeir á annað borð trúa á slíkt fyrirbæri. En á Siglufirði er að finna Himnaríki, sem er óneitanlega raunverulegt og það er opið hverjum þeim sem vill kíkja við í kaffi, laga bílinn sinn eða hreinlega spjalla um þjóðmálin. Lífið 9. nóvember 2021 07:00
Freyja komin til Reykjavíkur Varðskipið Freyja, nýjasta fley Landhelgisgæslunar, kom til Reykjavíkur í fyrsta sinn síðdegis eftir siglingu frá heimahöfn sinni á Siglufirði. Þar hafði komu hennar til landsins verið fagnað með viðhöfn á laugardag. Innlent 8. nóvember 2021 21:10
„Að flagna er fararheill“ sagði forsetinn um Freyju Koma varðskipsins Freyju í flota Landhelgisgæslunnar gjörbreytir björgunar- og öryggismálum Gæslunnar, að mati forstjóra hennar. Skipið muni gegna mikilvægu hlutverki í öryggi á norðurslóðum. Forseti Íslands og margmenni tóku á móti Freyju þegar hún sigldi í heimahöfn sína í fyrsta skipti á Siglufirði í dag. Innlent 6. nóvember 2021 21:51
Nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar marki tímamót í öryggisgæslu á Norðurslóðum Nýtt varðskipt bætist við flota Landhelgisgæslunnar í fyrsta sinn í áratug. Forstjóri Gæslunnar segir nýja varðskipið marka tímamót í þátttöku Íslands í öryggisgæslu á Norðurslóðum. Innlent 6. nóvember 2021 12:12
Freyja kemur til landsins eftir langa bið Varðskipið Freyja mun koma í höfn á Siglufirði á hádegi í dag. Það verður í fyrsta sinn sem skipið leggst að bryggju í íslenskri lögsögu. Innlent 6. nóvember 2021 07:55
Nýja varðskipið lagt af stað til Siglufjarðar Freyja, nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar, lagði af stað til Íslands frá Rotterdam í Hollandi í dag. Skipið er væntanlegt til Sigulufjarðar á laugardag en það á að leysa varðskipið Tý af hólmi. Innlent 2. nóvember 2021 17:22
Viðvarandi óvissustig á Siglufjarðarvegi vegna jarðskriðs Viðvarandi óvissustigi hefur verið lýst yfir á Siglufjarðarvegi vegna jarðskriðs og hættu á grjóthruni allt árið um kring. Fyrrverandi eftirlitsmaður segir aldrei muni vera hægt að laga veginn almennilega, finna verði varanlegri lausn. Innlent 30. október 2021 18:15
Undirbúa heimsiglinguna frá Rotterdam Landhelgisgæslan fékk formlega afhent nýja varðskipið Freyju á fimmtudaginn. Áhöfn skipsins vinnur nú að því að undirbúa heimsiglinguna frá Rotterdam, þar sem skipið var í slipp. Innlent 30. október 2021 09:30
Útköll björgunarsveita í gærkvöldi bundin við Siglufjörð og Skagafjörð Björgunarsveitir voru kallaðar út á Siglufirði og í Skagafirði vegna ýmissa fokverkefna í gærkvöldi. Óveður var víða á landinu í gærkvöldi, en Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að björgunarsveitir hafi ekki verið kallaðar út annars staðar á landinu. Innlent 8. október 2021 08:29
Rignir inn í öll herbergi á efstu hæð: „Þú keppir ekki við kára“ „Ég tek þessu bara af æðruleysi og reyni að sjá spaugilegu hliðarnar á þessu,“ segir Brynja Baldursdóttir listakona á Siglufirði, sem missti í kvöld efsta lagið af þakinu á húsinu sínu, sem hún var nýbúin að láta skipta um, í stormi sem gengur yfir fjörðinn. Nú rignir beint inn á efstu hæðina hennar. Innlent 7. október 2021 22:36
Dældu rigningarvatni upp úr húsum á Ólafsfirði Á sjöunda tug björgunarliða hafa staðið í ströngu við að dæla rigningarvatni upp úr húsum á Ólafsfirði. Slökkviliðsstjóri segir rigninguna þá mestu á svæðinu í manna minnum. Innlent 3. október 2021 21:39
Óhugnanlegt að hlusta á skriðurnar á meðan fjölskyldan var innlyksa Bóndi sem varð innlyksa þegar skriður féllu á vegi beggja megin við bæ hennar segir að það hafi verið óhugnalegt að hlusta á aurskriðurnar falla nálægt bænum í gærkvöldi. Fjölskyldan var sótt með þyrlu og bær hennar rýmdur. Innlent 3. október 2021 12:13
124 mm úrkoma á Ólafsfirði:„Allt sem er komið nálægt 100 mm telst mikið“ Úrkoman í Ólafsfirði síðastliðin sólarhring hefur mælst 124 millimetrar sem telst mikið. Dregið hefur úr úrkomu en viðvaranir vegna mögulegra skriðufalla eru enn í gildi. Innlent 3. október 2021 10:17
„Menn eru búnir að vera í alla nótt að dæla“ Slökkvilið Fjallabyggðar og björgunarsveitir hafa verið að störfum frá því í gærkvöldi á Ólafsfirði vegna úrhellis. Flætt hefur inn í hús í bænum. Innlent 3. október 2021 09:02
Rýma sveitabæi í Útkinn vegna úrkomu og skriðuhættu Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissutigi á Tröllaskaga vegna úrkomu á Norðurlandi eystra. Nokkrir sveitabæir í Þingeyjarsveit hafa verið rýmdir vegna úrkomu og skriðuhættu. Innlent 3. október 2021 07:32
Almannavarnir funda með Veðurstofu: Gular viðvaranir í gildi á Norðurlandi vegna úrkomu Gefnar hafa verið úr gular viðvaranir fyrir Strandir og Norðurlandland vestra, og Norðurland eystra vegna mikillar úrkomuspár. Viðvaranir tóku gildi klukkan níu í kvöld og gilda til hádegis á morgun. Varað er við auknum líkum á grjót- og aurskriðum. Innlent 2. október 2021 23:44
Mikill vatnselgur myndaðist á Siglufirði Slökkviliðs- og björgunarsveitarmenn aðstoðuðu íbúa í nokkrum húsum þar sem vatn flæddi inn á Siglufirði í lægðinni sem gekk yfir landið í gær. Annar var tíðindalaust hjá björgunarsveitum á landinu eftir klukkan 22:00 í gærkvöldi. Innlent 29. september 2021 09:06
Róbert setur hótelið og aðrar eignir tengdar ferðaþjónustu á Sigló á sölu Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði, hefur ákveðið að setja allar eignir sínar tengdar ferðaþjónustunni í bænum á sölu. Viðskipti innlent 22. september 2021 07:49
Gera Freyju út frá Siglufirði Landhelgisgæsla Íslands hefur gert samning um kaup á varðskipinu Freyju af Offshore Support GmbH. Skipið var smíðað árið 2010 og hefur undanfarin ár verið notað til að þjónusta olíuiðnaðinni. Það verður gert út frá Siglufirði. Innlent 21. september 2021 17:42
Þekja hlíðina með stálgirðingum til varnar snjóflóðum Vinna við snjóflóðavarnir hefur verið í fullum gangi í allt sumar fyrir ofan Siglufjörð. Snjóflóðahættan minnti rækilega á sig síðastliðin vetur. Innlent 19. september 2021 14:00
Stíflur hafa myndast í göngunum sem tengja Fjallabyggð við umheiminn Í sumar hafa stíflur myndast í einbreiðu göngunum sem tengja Fjallabyggð við umheiminnn vegna mikillar umferðar. Heimamenn vilja ný göng á dagskrá sem fyrst. Innlent 17. september 2021 19:53
Fór í heimildarleysi inn til konu sem sakaði hann um nauðgun Karlmaður um fimmtugt hefur verið dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að hafa farið óboðinn inn á heimili á Siglufirði að morgni dags í maí fyrir rúmu ári. Innlent 15. september 2021 14:13
Siglfirðingar með fótinn á gjöfinni þegar kemur að ferðaþjónustunni Siglufjörður hefur komist rækilega á kortið sem áfangastaður ferðamanna undanfarin ár. Þar á bæ er stefnt á enn frekari uppbyggingu fyrir ferðamenn. Innlent 10. september 2021 22:15