Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Áformað er að rífa kaffiskúr leigubílstjóra við Leifsstöð sem var lokað í júní í fyrra eftir deilur um aðgang að aðstöðunni og bænahald þar. Leigubílstjórar hafa nú afdrep inni í flugstöðinni, meðal annars í mötuneytinu. Innlent 26.10.2026 13:01
„Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sveitarstjóri Múlaþings segir að viðbót við Loftbrú, sem innviðaráðherra greindi frá í gær, sé ekki það sem verið sé að kalla eftir. Ekki geti allir búið í Reykjavík og jafna verði aðgengi íbúa landsbyggðar að þjónustu. Innlent 26.10.2026 11:49
Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Fyrr á þessu ári sagði Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, að ekkert yrði hróflað við Loftbrúnni nema að loknu samráði við íbúa landsbyggðarinnar. Ráðherra virðist þó hafa gleymt þessu loforði sínu þegar hann mundaði niðurskurðarkutann í enn eitt skiptið í liðinni viku og tilkynnti þá einhliða ákvörðun að skorin verður feit og pattaraleg sneið af Loftbrúarkökunni um áramótin. Skoðun 26.10.2026 07:32
Afkoman yfir væntingum en horfurnar versna með hækkandi eldsneytisverði Árangur af umfangsmiklum breytingum á rekstri Icelandair er þegar farinn að skila sér í ávinningi upp á nærri tuttugu milljarða á ársgrundvelli, að sögn stjórnenda flugfélagsins, sem segja undirliggjandi afkomu sterkari en nýjar uppgjörstölur gefa til kynna. Rekstrarhagnaður Icelandair var talsvert yfir væntingum sumra greinenda, en þrátt fyrir verulegan afkomubata á háannatíma flugfélagsins stefnir í mikið tap á síðustu mánuðum ársins vegna hækkandi eldsneytisverðs og sterkrar krónu. Innherji 23. október 2026 10:33
Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Hagnaður flugfélagsins Icelandair eftir skatta nam tólf milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026 samanborið við sjö milljarða króna á síðasta ári. Þó eru horfur fyrir fjórða ársfjórðung krefjandi og gert er ráð fyrir að afkoma fyrir árið í heild verði neikvæð. Viðskipti innlent 22. október 2026 17:29
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Erlendur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þar sem talið er að hann myndi ella reyna að koma sér undan réttvísinni. Hann var ákærður í fyrra fyrir að hafa nauðgað andlega fatlaðri konu árið 2022 en eftir útgáfu ákæru fannst hann hvergi, þangað til að hann var gripinn í Leifsstöð á sunnudaginn. Hann hefur þegar játað nauðgunina og borið fyrir sig að hafa misst rökhugsun og ekki getað hætt samræði við konuna þrátt fyrir að hún biði hann um það. Innlent 22. október 2026 14:07
Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Í síðustu viku hélt hópur fornleifafræðinga til afskekktrar eyjar í Kyrrahafi. Vonuðust þeir til að leysa eina stærstu ráðgátu flugsögunnar: Hvað varð um Ameliu Earhart, sem hvarf sporlaust árið 1937 er hún reyndi að fljúga umhverfis jörðina? Unnendur hulinna leyndardóma þurfa þó ekki að örvænta. Dularfullur hlutur, sem hafði sést á gervihnattarmynd af lóni á eyjunni, reyndist ekki vera flugvél heldur trjábolir. Lífið 22. október 2026 07:01
Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum segir mál flugfarþega sem taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur í uppfærslu á fyrsta farrými en greiddi í raun sexfalt hærri fjárhæð því miður ekki koma sér á óvart. Að mörgu þurfi að huga þegar komi að ferðalögum erlendis og þar þurfi ekki síst að lesa vel yfir skilmála hjá bílaleigum. Til að mynda hafa komið upp mál á Ítalíu þar sem fólk telur sig vera að leggja fram tryggingafé en er að kaupa óþarfa óendurgreiðanlega tryggingu. Viðskipti innlent 22. október 2026 00:08
Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskiptavinur flugfélags sem taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur í að uppfæra á fyrsta farrými en greiddi sexfalt hærri fjárhæð fær ekki endurgreitt. Úrskurðarnefnd sagði engin gögn til um fjárhæðina sem hann bauð auk þess sem hann hefði síðan nýtt sér þjónustuna þrátt fyrir að hann vissi hvað hún kostaði. Viðskipti innlent 20. október 2026 08:58
Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Bandaríska Hollywood-stjarnan Donnie Wahlberg segir flugmenn einkaflugvélar hafa bjargað lífi hans þar sem ekki fór verr þegar flugvélin rann út af flugvellinum við ætlaða brottför í Las Vegas um helgina. Lífið 19. október 2026 21:44
Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Beint flug milli Ísraels og Íslands er fyrirhugað frá júní á næsta ári. Ísraelska flugfélagið Arkia hefur bætt Keflavík við áfangastaði sína og auglýsir beinar ferðir hingað til lands á eigin vef. Viðskipti innlent 19. október 2026 11:04
Play komið í eignasafn Icelandair Tæplega helmingshlutur í maltneska félaginu Fly Play Europe Holdco ehf. er nú í eigu Icelandair. Félagið er með maltneskt flugrekstrarleyfi. Markmiðið er að auka sveigjanleika félagsins og skapa möguleika á hagræðingu í flugrekstrinum á Íslandi. Viðskipti innlent 19. október 2026 09:57
Neyðarlending eftir sprengjuhótun Flugvél Austrian Airlines á leið frá Ísrael til Austurríkis þurfti óvænt að lenda á flugvelli í Búlgaríu eftir sprengjuhótun. Málið er nú til rannsóknar. Erlent 19. október 2026 06:56
Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Eigandi eina hótelsins í Kulusuk á Grænlandi hefur skellt í lás og ákveðið að hafa lokað í allan vetur. Ástæðuna segir hann vera þá að enginn stuðningur fáist frá landsstjórninni eftir að Icelandair hætti flugi milli Íslands og Kulusuk yfir vetrarmánuði. Innlent 18. október 2026 22:02
Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Meira en vika er liðin síðan tuttugu og fimm létust eftir að flugvél nígeríska flughersins fórst en enn er leitað að braki úr vélinni og leifum hinna látnu. Aðstæður á svæðinu hafa gert björgunarstarfsfólki erfitt fyrir en flugvélin brotlenti í mýrlendi á afskekktu svæði í suðvesturhluta Nígeríu. Um borð voru nítján hermenn og sex óbreyttir borgarar. Erlent 16. október 2026 21:43
Fljúga daglega til Boston Bandaríska flugfélagið Delta tilkynnti í dag að það ætli að hefja áætlunarflug milli Boston Logan-flugvallar og Keflavíkurflugvallar í apríl á næsta ári. Flugið verður í boði fram í lok október. Viðskipti innlent 16. október 2026 16:49
Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, varar við því að ófullnægjandi mönnun landamæraeftirlits á Keflavíkurflugvelli geti grafið undan tengiflugi félagsins og leitt til færri áfangastaða og ferða. Fjölmargir farþegar hafi misst af flugi í sumar vegna biðraða. Innlent 16. október 2026 13:32
Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Nýtt hátæknieldhús var formlega opnað í á athafnasvæði Icelandair á Keflavíkurflugvelli í gær. Eldhúsið er búið nýjustu tækni en vélmenni sjá um að útbúa matarbakka og ferja þá í veitingavagna. Viðskipti innlent 15. október 2026 08:01
Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Air Atlanta hefur dregið gríðarlega úr umsvifum sínum í Sádíu-Arabíu undanfarna mánuði að sögn framkvæmdastjóra vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Hann segir félagið fylgjast grannt með stöðunni í landinu eftir mannskæðar eldflaugaárásir Húta sem beinst hafa gegn flugvöllum í landinu. Innlent 13. október 2026 17:13
Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Ástralska flugfélagið Qantas neyddist til að kyrrsetja eina af vélum sínum í Róm eftir að veggjalýs fundust í farþegarými vélarinnar. Vélin hafði komið til Rómar frá Perth í Ástralíu. Erlent 13. október 2026 07:14
Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Bandaríska leikkonan Selma Blair var í dag handtekin og hefur verið ákærð fyrir í það minnsta tvær líkamsárásir, annars vegar gegn lögreglumanni og hjúkrunarfræðingi, en tvær flugfreyjur hlutu einnig áverka þegar Blair veittist að þeim um borð í flugvélinni. Á hún meðal annars að hafa bitið aðra þeirra og kýlt hina en Alríkislögreglan (FBI) er með málið á sínu borði. Lífið 12. október 2026 20:45
Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. Innlent 12. október 2026 11:43
Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Hópur vísindamanna er nú á leið til Nikumaroro-eyju á Kyrrahafi í þeirri von um að leysa ráðgátuna um Ameliu Earhart. Earhart hvarf sporlaust þegar hún gerði tilraun til þess að verða fyrst allra að fljúga umhverfis jörðina árið 1937. Erlent 11. október 2026 23:45
Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Hútar vara ferðalanga og flugfélög við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu í fyrstu yfirlýsingu sinni eftir mannskæða árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad höfuðborg Sádí-Arabíu í gær þar sem tólf létust og 309 manns særðust. Um er að ræða þriðju árásina á sádí-arabíska flugvelli í vikunni. Erlent 11. október 2026 10:55