„Evrópusambandið treysti sér ekki til þess að gefa svör núna“ Karla- og kvennalandslið Íslands í handbolta eiga fyrirhugaða leiki í undankeppnum EM og HM en óvíst er hvort þessir leikir fara fram á tilsettum tíma. Einnig eiga Valsmenn að leika í EHF-bikarnum í júní en kórónuveiran hefur sett strik í reikninginn þar eins og á fleiri stöðum. Handbolti 7. apríl 2020 20:00
Yfirlýsing frá Þrótti: Engin formleg umræða farið fram innan aðalstjórnar Það hefur gustað í kringum Þrótt í dag eftir að áform voru uppi um að leggja handknattleiksdeild félagsins niður. Staðan er hins vegar önnur segir í tilkynningu á vef félagsins. Handbolti 7. apríl 2020 18:00
Fyrir rúmlega 800.000 krónur getur þú stýrt ÍR í Olís-deildinni ÍR-ingar fara frumlegar leiðir í fjáröflun fyrir næsta tímabil. Handbolti 7. apríl 2020 16:21
Danir flauta tímabilið af | Íslendingalið meistarar Danska handboltatímabilinu er lokið. Íslendingaliðin Aalborg og Esbjerg standa uppi sem meistarar. Handbolti 7. apríl 2020 12:31
Íslandsmeistarar dagsins: Fyrstu titlar kvennaliða Hauka á Ásvöllum og sá rússneski hjá KR Á 7. apríl hafa bæði kvennalið Hauka í handbolta og körfubolta unnið Íslandsmeistaratitilinn og þá endaði karlalið KR í körfubolta ellefu ára bið eftir Íslandsmeistaratitli á þessum degi fyrir þrjátíu árum. Sport 7. apríl 2020 12:30
Segir að handboltinn í Þrótti hafi ekki verið aflagður en það komi til greina Formaður aðalstjórnar Þróttar segir að ekki sé búið að leggja handboltann í félaginu niður, allavega ekki enn. Formaður handknattleiksdeildar Þróttar leggur annan skilning í málið. Handbolti 7. apríl 2020 11:46
Kári heldur áfram að fara á kostum í bílskúrnum og nú gerði hann upp árið 1994 Kári Kristján Kristjánsson, línumaður ÍBV í Olís-deild karla og íslenska landsliðsins, hefur sent inn skemmtileg innslög í Sportið í dag að undanförnu en Kári er í einangrun vegna Covid19-sjúkdómsins. Handbolti 6. apríl 2020 23:00
Formaður HSÍ: Menn voru byrjaðir að kalla eftir ákvörðun Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, var gestur Seinni bylgjunnar í kvöld þar sem hann fór yfir ákvörðun sambandsins að blása allt mótahald af vegna kórónuveirunnar. Handbolti 6. apríl 2020 21:00
Hugsaði það versta en segir verkinn aldrei hafa verið það mikinn Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður í handbolta og leikmaður Álaborgar í dönsku úrvalsdeildinni, segir að hugurinn hafi leitað í það að hann myndi ekki snúa handbolta aftur en segir hins vegar að verkurinn hafi aldrei verið svo mikill. Handbolti 6. apríl 2020 20:00
HSÍ flautar Íslandsmótið af HSÍ hefur ákveðið að blása öll mót á vegum sambandsins af vegna kórónuveirunnar. Þetta staðfesti sambandið á vef sínum í kvöld eftir stjórnarfund sambandsins fyrr í dag. Handbolti 6. apríl 2020 18:57
Íslandsmeistarar dagsins: Fullkomið tímabil, óvæntur Eyjasigur og góður dagur fyrir Hildi og Gróu 6. apríl hefur verið viðburðaríkur dagur hvað varða Íslandsmeistaratitla og tvær körfuboltakonur náðu því að vinna titilinn saman með tveimur mismunandi liðum á þessum degi. Sport 6. apríl 2020 11:52
Dagskráin í dag: Kvöldið í Istanbúl, þegar Terry rann, Guðjón Þórðar og margt fleira Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. Sport 5. apríl 2020 07:00
Alfreð bað dómara um breytingar Alfreð Gíslason og fleiri landsliðsþjálfarar Þýskalands í handbolta hafa nýtt hléið sem er í gangi íþróttum til að funda með 40 dómurum úr þýsku deildunum. Handbolti 4. apríl 2020 17:00
Kári Kristján fer yfir mögnuð fyrstu kynni síns og Kjartans Atla Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur verið í einangrun undanfarið eftir að hafa greinst með COVID-19. Hann lætur það ekki á sig fá og hefur verið reglulegur gestur í Sportið í dag. Handbolti 3. apríl 2020 21:00
Guðmundur leikið sinn síðasta leik í Austurríki Guðmundur Hólmar Helgason, leikmaður West Wien, í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið þar sem handknattleikssambands Austurríkis hefur blásið allar keppnir á sínum vegum af. Handbolti 3. apríl 2020 20:00
Þýsku úrvalsdeildinni í handbolta frestað fram í maí Þjóðverjar stefna á að hefja leik að nýju í úrvalsdeildinni í handbolta þann 16. maí næstkomandi. Mögulega gæti það þó farið svo að deildin verði einfaldlega blásin af. Þetta kom fram á vefsíðu deildarinnar fyrr í dag. Handbolti 3. apríl 2020 18:00
Guðmundur áfram með Melsungen Guðmundur Guðmundsson stýrir þýska úrvalsdeildarliðinu Melsungen að minnsta kosti út næsta tímabil. Handbolti 3. apríl 2020 09:46
Formaður hkd. Hauka: HSÍ ætti að vera löngu búið að aflýsa öllum mótum Formaður handknattleiksdeildar Hauka, Þorgeir Haraldsson, setur mikla pressu á HSÍ að öll mót innan handboltahreyfingarinnar verði flautuð af vegna kórónuveirunnar. Handbolti 3. apríl 2020 08:00
„Stórt félag með mikla starfsemi og þar af leiðandi eru launin há“ Knattspyrnufélagið Valur hefur lækkað laun leikmanna í öllum greinum félagsins vegna ástandsins sem útbreiðsla kórónuveirunnar hefur haft. Launakostnaður Vals er sá langhæsti hjá íþróttafélögum í Reykjavík. Sport 2. apríl 2020 19:00
Hafþór skrifaði undir í gegnum gluggann Orðið „félagaskiptagluggi“ fékk nýja merkingu þegar Hafþór Már Vignisson skrifaði undir samning við Stjörnuna sem fékk handboltamanninn til sín frá ÍR. Handbolti 2. apríl 2020 18:00
Dagskráin í dag: Golfskóli Birgis Leifs og goðsagnir efstu deildar Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. Sport 2. apríl 2020 06:00
Kári missti bragð- og lyktarskyn en heldur í húmorinn í einangrun Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, er engum líkur og hann lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir að hafa nú verið í rúma viku í einangrun ásamt konu sinni og syni vegna COVID-19 sýkingar. Handbolti 1. apríl 2020 23:00
Aðstoðarþjálfarinn tekur við af Kára Handknattleiksdeild Fjölnis hefur gengið frá ráðningu Guðmundar Rúnars Guðmundssonar sem þjálfara meistaraflokks karla næstu tvö árin. Handbolti 1. apríl 2020 19:30
„Við ætlum ekki að vera Titanic“ Ása Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri Stjörnunnar kallar eftir samstöðu innan félagsins á erfiðum tímum vegna kórónuveirufaraldursins og segir Stjörnufólk ætla að komast sameinað í gegnum vandann. Sport 1. apríl 2020 18:50
Kvennalið ÍR áfram starfrækt „ef plönin eru raunhæf“ Handknattleiksdeild ÍR hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir þá ákvörðun sína að leggja niður meistaraflokk kvenna vegna fjárhagsstöðu félagsins. Formaður deildarinnar kveðst opinn fyrir því að endurskoða ákvörðunina. Handbolti 1. apríl 2020 18:00
ÍR selur Hafþór til Stjörnunnar Handboltamaðurinn Hafþór Vignisson gengur í raðir Stjörnunnar frá ÍR eftir tímabilið. Handbolti 1. apríl 2020 15:36
Tímabilið í Austurríki flautað af og Guðmundur Hólmar líklega á heimleið Keppni í austurríska handboltanum hefur verið hætt vegna kórónuveirufaraldursins. Guðmundur Hólmar Helgason hefur því leikið sinn síðasta leik fyrir WestWien. Hann segir líklegra en ekki að hann leiki í Olís-deildinni á næsta tímabili. Handbolti 1. apríl 2020 14:00
Íslandsmeistarar dagsins: Ekkert aprílgabb hjá þessum tveimur liðum Tvö kvennalið hafa tryggt sér Íslandsmeistaratitla 1. apríl og áttu þau það sameiginlegt að liðin náðu titlinum á seiglunni meira en nokkuð öðru. Sport 1. apríl 2020 12:30
Seinni bylgjan: Ágúst og Einar með færeyskukennslu Ágúst Jóhannsson og Einar Jónsson hafa lent í smá vandræðum með færeyskuna í störfum sínum. Handbolti 31. mars 2020 17:00
Leikmenn ÍR ósáttir við að kvennaliðið hafi verið lagt niður: „Ógeðslega sárar og reiðar“ Leikmenn kvennaliðs ÍR eru ósáttir við vinnubrögð handknattleiksdeildar félagsins sem ákvað að leggja kvennaliðið niður. Handbolti 31. mars 2020 15:57