

Allt um heilsu, hreyfingu og hollan mat
Góður nætursvefn er okkur lífsnauðsynlegur, við eyðum jú þriðjungi ævinnar í rúminu eða um 26 árum að meðaltali. Rúmið á því að vera okkar griðarstaður en getur þó verið algjör andstæða þess. Ýmislegt óskemmtilegt getur nefnilega leynst í rúminu og jafnvel haft áhrif á heilsuna.
Tinna Rún Svansdóttir býr í Basingstoke í Suður-Englandi ásamt kærastanum sínum Spencer og syni þeirra Mason Birni. Hún flutti út í október 2015 meðal annars til þess að vera nær ástinni og upplifði flutningana eins og að byrja upp á nýtt.
„Þetta minnti mig á neysluumhverfi. Þetta var bara sjúkt.“ Í Kompás segja viðmælendur frá kynnum sínum af manni sem þóttist vera hæfur leiðbeinandi til að stjórna kakóathöfnum, en reyndist svo vera ofbeldismaður í leit að athygli.
Geðfræðslufélagið Hugrún fer af stað með hlaðvarpið Hugvarpið. Hlaðvarpið svipar til geðfræðslunnar sem félagið stendur fyrir og fjallar um geðheilsu, geðraskanir og úrræði sem standa til boða en fyrsti þátturinn kemur út á morgun.
„Ég vissi ekkert hvernig framleiðsla á koddum fer fram. Það tók mig nokkur ár að þróa hugmyndina, finna rétta efnið og réttu samstarfsaðilana því ég var harð ákveðinn í því að nota hágæðaefni og innlenda framleiðslu."
Þórunn Eva G. Pálsdóttir er konan á bak við góðgerðarfélagið Mia Magic sem einbeitir sér að því að gleðja langveik börn og foreldra þeirra ásamt því að fræða aðra. Sjálf er hún móðir tveggja langveikra drengja en þeir eru báðir með genagalla á ónæmiskerfinu.
Leikkonan Hilary Duff situr fyrir nakin á forsíðu maí tölublaðs tímaritsins Women's Health. Hún fagnar líkama sínum og segist vera sérstaklega þakklát honum fyrir að hafa gengið með börnin hennar þrjú.
Kompás ræddi við fjölda fólks sem hefur orðið fyrir ofbeldi, svikum og misbeitingu í andlega heiminum við það eitt að reyna að leita sér aðstoðar í góðri trú.
Rúnar Pierre Heriveaux er yfirkokkur á veitingastaðnum Óx á Laugavegi 28 en þessi einstaki staður hefur meðal annars hlotið meðmæli frá Michelin. Rúnar, sem hefur mikla ástríðu fyrir matargerð, hlaut titilinn kokkur ársins síðastliðna helgi og hefur það verið markmið hans frá því hann byrjaði í kokkinum. Rúnar Pierre Heriveaux er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.
Svefnráðgjöf, námskeið og fleira er liður í innleiðingu Samkaupa á svefnstjórnun til að auka á vellíðan starfsfólks.
Hjólað í vinnuna var sett í tuttugasta sinn í morgun. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) stendur fyrir verkefninu sem tekur þrjár vikur.
Rannsóknir hafa sýnt að svefnleysi er að kosta atvinnulífið háar upphæðir á ári. Reyndar svo háar að allar tölur mælast í tugum milljarða. Já, ósofið starfsfólk er hreinlega að kosta atvinnulífið marga milljarða á ári.
Fimmta árið í röð býður Brauð&Co upp á að kaupa brjóstasnúðinn. Hann er aðeins í boði vikuna 2.-8. maí en ágóðinn rennur óskiptur til Göngum Saman sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini.
Líkamsmeðferðarstofan The House of Beauty er ein sinnar tegundar á Íslandi og hlaut nýverið verðlaun sem besta líkamsmeðferðarstofan árið 2022 hjá World Salon Awards. Nú fagnar stofan 4. ára afmæli í dag þann 1. maí og af því tilefni býður The House of Beauty upp á veglegan afslátt, ráðgjöf og léttar veitingar.
Aníta Briem hefur verið viðriðin leiklistina frá því hún var níu ára gömul. Hún á að baki sér fjölmörg verkefni bæði hér heima og erlendis. Á undanförnum árum hefur hún verið að gera það virkilega gott á Íslandi og fór meðal annars með hlutverk í sjónvarpsseríunni Ráðherrann árið 2020, kvikmyndinni Skjálfta sem kom út fyrr á árinu og hinni ný frumsýndu Berdreymi. Nú vinnur hún að sjónvarpsseríu sem hún skrifaði. Þessi hæfileikaríka listakona elskar bækur og tónlist og segir engan dag í sínu lífi eins. Aníta Briem er viðmælandi vikunnar hjá Innblæstrinum.
Gott skap smitar. Vont skap smitar. En fátt er þó meira smitandi á vinnustaðnum en skap stjórnandans.
Rannsakendur við sálfræðideild Háskóla Íslands feta ótroðnar slóðir og kortleggja nú notkun landsmanna á hugvíkkandi efnum. Þúsundir erlendra rannsókna og fræðigreina hafa verið skrifaðar úti í heimi um notkun hugvíkkandi efna í meðferðarskyni en rannsakendurnir segja þetta umfjöllunarefni enn vera á jaðrinum hér á landi.
Jane Fonda sem er þessa dagana að slá í gegn í þáttunum Grace og Frankie ásamt Lily Tomlin sagði í viðtali að það hræði sig ekki að vera nær dauðanum nú þegar hún er orðin áttatíu og fjögurra ára gömul.
Anna Eiríksdóttir skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu á Vísi. Í pistli dagsins deilir hún hugmyndum af uppskriftum fyrir hafragraut. Við gefum henni orðið.
Rannsóknir sýna að hlátur á vinnustöðum er mjög mikilvægur til þess að hópar nái sem bestum árangri.
Árni Páll Árnason er listamaður og rappari, þekktur undir listamannsnafninu Herra Hnetusmjör, og á að baki sér ótal marga smelli á borð við „Upp Til Hópa“ og „Já ég veit“. Árni er mikill fjölskyldumaður, tveggja barna faðir og nýtur lífsins edrú, eins og kemur gjarnan fram í textum hans. Árni Páll er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.
„Viðtökurnar hafa verið frábærar. Hér á landi er mikill áhugi á útivist og hreyfingu og 4F býður verð á útivistar- og íþróttafatnaði sem hefur ekki áður sést á íslenskum markaði.
Gríðarleg eftirspurn er í svokallaða mömmuþjálfun þar sem nýbakaðar mæður æfa saman í hóp. Þær segja nauðsynlegt að komast út af heimilinu í fæðingarorlofi og svitna svolítið með öðrum mæðrum.
Guðrúnu Ýr Eyfjörð, GDRN, er margt til listanna lagt en ásamt því að vera ein ástsælasta söngkona landsins er hún einnig leikkona sem fór með aðal hlutverk í Netflix seríunni Katla. Guðrún, sem er ófrísk af sínu fyrsta barni, hlakkar mikið til framtíðarinnar en passar að vera hamingjusöm í nú-inu. GDRN er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.
Anna Eiríksdóttir þáttastjórnandi Hreyfum okkur saman mun skrifa reglulega pistla um ýmislegt tengt hreyfingu, heilsu og mat hér á Lífinu á Vísi.
Vinkonurnar í The Home Edit eru þessa dagana að fara í gegnum stærsta verkefnið sitt til þessa eftir að Clea Shearer greindist með brjóstakrabbamein. Clea greindi frá fréttunum á samfélagsmiðli sínum og fyrirtækisins fyrir fjórum dögum og skrifaði þar:
Hugbúnaðarfyrirtækið Alvican hefur undanfarin ár þróað nýjar lausnir í velferðartækni sem auka lífsgæði eldri borgara, snjallan öryggishnapp og hugbúnað sem vaktar daglegt hegðunarmunstur og skynjar frávik svo bregðast megi við. Eftirspurnin er mikil, yfir fjögur hundruð prósenta aukning varð í áskriftum að Alvican á liðnu ári.
Clearlii vítamín daglinsur draga úr augnþreytu og þurrki og veita aukin þægindi. Clearlii vítamín linsur eru heilsuvara vikunnar á Vísi.
Álfgrímur Aðalsteinsson er lífskúnstner sem sérhæfir sig í skapandi verkefnum og hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum undanfarin misseri. Hann elskar list af öllu tagi og finnst pizza svo góð að hann lét húðflúra pizzusneið á fótinn sinn. Álfgrímur er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.
Niðurstöður rannsókna sýna að mjög stór hópur fólks vill ekki, þorir ekki eða forðast að kúka í vinnunni. Kannast þú við þetta?