Kína

Kína

Höfuðborg: Peking. Mannfjöldi: 1.409,0 milljónir (2025). Flatarmál: 9.596.961 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Auka þrýstinginn á Taí­van veru­lega

Yfirvöld í Taívan segja ferðum skipa Strandgæslu Kína og kínverskra rannsóknarskipa kringum eyjuna hafa fjölgað mjög. Kínverjar séu að auka þrýstinginn á eyríkið verulega og mögulega að undirbúa að setja Taívan í herkví, ef til átaka kemur.

Erlent
Fréttamynd

Tæki­færi fylgi flugi frá Kína en einnig hættur

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirhugaðar flugferðir Air China frá Kína til Íslands breyta miklu. Mögulegt sé að fjöldi kínverskra ferðamanna gæti tvöfaldast á tiltölulega stuttum tíma en þeir mynda nú þegar einn stærsta ferðahópinn hérlendis á vissum árstíma. Á sama tíma muni fjölguninni mögulega fylgja áskoranir, til að mynda í tengslum við fyrirtæki sem fari á svig við íslenskar venjur og regluverk.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sósíal­isti fékk boðs­ferð til Kína

Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest.

Innlent
Fréttamynd

Taívanar líta til Úkraínu og Íran

Yfirvöld í Taívan ætla að fjölga verulega eldflaugum sem ætlað er að granda skipum. Markmiðið er að styrkja varnir eyríkisins gegn mögulegri innrás Kínverja á komandi árum og stendur til að fjölga eldflaugum og flugskeytum verulega. Ráðamenn í eyríkinu vilja læra af átökunum í bæði Úkraínu og Persaflóa, þar sem ríki hafa varist árásum mun öflugri andstæðinga.

Erlent
Fréttamynd

Hafnar á­sökunum um nýtt hernaðar­brölt Japana

Ráðamenn víða um Asíu hyggja á aukna hernaðaruppbyggingu og þá að miklu leyti vegna áhyggja af gífurlegri uppbyggingu í Kína. Kínverjar kalla eftir samstöðu gegn nýju hernaðarbrölti Japana, sem hafna slíkum ásökunum og benda á uppbygginguna í Kína.

Erlent
Fréttamynd

ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði tvö hundruð milljóna evra sekt á kínversku netverslunina Temu fyrir að selja ólöglegan varning í Evrópu í dag. Sektin er sú stærsta frá því að lög um stafræna þjónustu tóku gildi í álfunni.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Níu­tíu látnir eftir sprengingu í kola­námu

Hið minnsta níutíu eru látnir eftir gassprengingu sem varð í kolanámu í norðanverðu Kína í gær. Á annan hundrað hafa verið fluttir til aðhlynningar en björgunaraðgerðir standa enn yfir. Lögregla hefur handtekið yfirmenn í kolanámunni.

Erlent
Fréttamynd

Trump segist munu ræða við for­seta Taí­van

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann hefði í hyggju að ræða við Lai Ching-te, forseta Taívan. „Ég mun tala við hann,“ sagði forsetinn. „Ég tala við alla... Við munum vinna í þessu; Taívan-vandamálinu.“

Erlent
Fréttamynd

Pútín lentur í Peking

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti í dag í Peking í Kína, þar sem hann mun funda með Xi Jinping, kollega sínum. Fundarhöldin munu standa yfir í tvo daga og ætla forsetarnir, samkvæmt rússneskum stjórnvöldum, að ræða efnahagssamvinnu og sameiginlega hagsmuni ríkjanna. Stutt er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti var í opinberri heimsókn í Kína en talsmaður Pútíns segir það ótengt heimsókn Pútíns.

Erlent
Fréttamynd

Varaði Trump við á­tökum vegna Taí­van

Xi Jinpin, forseti Kína, varaði Donald Trump, kollega sinn frá Bandaríkjunum, við átökum milli ríkjanna við upphaf fundar þeirra í morgun. Þá mun Xi hafa sagt Trump að ef hann heldi rangt á spöðunum varðandi Taívan, eyríkið sem Kínverjar gera tilkall til, gæti það leitt til „gífurlega hættulegs ástands“ og „átaka“.

Erlent
Fréttamynd

Trump fer til Kína: „Við erum tvö stór­veldi“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt.

Erlent
Fréttamynd

Telja sam­komu­lag lík­legt á næstu dögum

Utanríkisráðherra Íran segir að ríkisstjórn landsins muni eingöngu samþykkja „sanngjarnt og víðtækt“ friðarsamkomulag við Bandaríkin. Íranir muni standa vörð um lögmætan rétt sinn og hagsmuni. Starfsmenn Hvíta hússins segja samkomulag við Írani aldrei hafa verið líklegra en nú.

Erlent
Fréttamynd

Líkja for­seta Taí­van við rottu vegna Afríkuferðar

Nýr forseti Taívan hóf opinbera heimsókn sína í Esvatíní í Afríku í morgun með því að segja að Taívan hefði rétt á því að eiga í opinberum samskiptum við önnur ríki. Enginn hefði rétt á að koma í veg fyrir það. Ráðamenn í Taívan segja að Kínverjar hafi reynt að koma í veg fyrir ferðina en Kínverjar hafa fordæmt forsetann taívanska sem „rottu“.

Erlent
Fréttamynd

Banna í­búða­kaup til öskugeymslu

Stjórnvöld í Kína hyggjast setja lög til að sporna við því að fjölskyldur fjárfesti í íbúðum til að geyma ösku ástvina sinna fremur en að koma hinum jarðnesku leyfum fyrir í þar til gerðum grafreit.

Erlent