Loftslagsmál

Loftslagsmál

Fréttamynd

Allt að fjörutíuföld mengun við skemmti­ferða­skip

Loftmengun í grennd við skemmtiferðaskip í höfn getur mælst 35 til 40 föld miðað við heilsuverndarmörk. Þörf er á uppsetningu innviða svo skipin geti tengst rafmagni þegar þau liggja við höfn og reglusetningu um notkun hreinni eldsneytisgjafa, samkvæmt sérfræðingi.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast

Samkvæmt nýjasta mati stjórnvalda og Loftslagsráðs duga núverandi aðgerðir í loftslagsmálum ekki til að Ísland nái 41% samdrætti í losun fyrir árið 2030. Markmiðið um kolefnishlutleysi árið 2040 er því orðið erfiðara að ná nema gripið verði til frekari aðgerða.

Skoðun
Fréttamynd

Tónlistarhátíðum af­lýst vegna hita

Hitabylgja geisar enn um stóran hluta Evrópu og víða hefur viðburðum verið aflýst vegna hitans. Í Hollandi hefur einni stærstu raftónlistarhátíð heims verið aflýst á föstudag, 26. júní, en þar í landi var í fyrsta sinn gefin út rauð veðurviðvörun vegna hita nú á dögunum.

Erlent
Fréttamynd

Nú­verandi hita­bylgja „sú al­var­legasta sem mælst hefur“

Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn.

Erlent
Fréttamynd

Fjölskylduferð í skemmti­garð tók ó­vænta stefnu í hitabylgjunni

Mikil hitabylgja geisar í Evrópu og eru rauðar veðurviðvaranir í gildi á stórum svæðum vegna hita. Áhrif hitabylgjunnar hafa verið gríðarlega mikil í Frakklandi. Í suðausturhluta landsins fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið í dag. Hitastig á svæðinu mældist 39 gráður á hádegi.

Erlent
Fréttamynd

Leggja bönn á á­fengis­neyslu vegna hitabylgjunnar

Hiti náði fjörutíu gráðum í borginni Bordeaux í dag. Rauðar veðurviðvaranir ná yfir um það bil hálft Frakkland á morgun auk þess sem appelsínugular viðvaranir gilda í stórum hluta landsins. Mikil hitabylgja gengur nú yfir Evrópu meðal annars vegna streymis heits lofts norður á bóginn frá Sahara-eyðimörkinni.

Erlent
Fréttamynd

Olíu­verð lækkar eftir fregnir af sam­komu­lagi

Verð á olíu lækkaði þegar markaðir í Asíu opnuðu í nótt eftir að tilkynnt var um að Bandaríkjastjórn og klerkastjórnin í Íran hefðu náð samkomulagi um að opna Hormússund. Töluverð óvissa ríkir þó enn um hvað samkomulagið felur í sér og hvort það haldi.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Skoða hvernig brott­hvarfi Banda­ríkjanna úr haf­rannsóknum verður mætt

Ísland gæti tekið þátt í nýju samevrópsku verkefni um hafrannsóknir og vöktun eftir að Bandaríkjastjórn ákvað að fjarlægja hundruð mælitækja úr hafinu. Vísindamenn hafa reitt sig á tækin til þess að fylgjast með veltihringrás Atlantshafsins sem óttast er að geti veikst eða hrunið vegna hnattrænnar hlýnunar.

Innlent
Fréttamynd

Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug

Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur birt myndband af frumútgáfu ES-30 rafmagnsflugvélar sinnar í reynsluakstri á flugvellinum í Plattsburgh í norðurhluta New York-ríkis. Slíkar prófanir á jörðu niðri eru þýðingarmikill þáttur í undirbúningi fyrir fyrsta flugið.

Erlent
Fréttamynd

Kalla eftir skýrari stefnu um ETS

Tuttugu stjórnendur úr íslensku atvinnulífi kalla eftir því að stjórnvöld beiti sér af meiri krafti fyrir íslenskum hagsmunum gagnvart viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, ETS-kerfinu. Þeir segja mikilvægt að kerfið taki betur mið af sérstöðu Íslands, samkeppnishæfni fyrirtækja og að aukið gagnsæi verði um tekjur ríkisins af kerfinu.

Viðskipti
Fréttamynd

Fjar­lægja mæli­tæki sem fylgist með AMOC nærri Ís­landi

Mælitæki í Grænlandshafi sem hefur nýst vísindamönnum til þess að fylgjast með styrk veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) er eitt hundraða sem bandarísk stjórnvöld ætla að byrja að fjarlægja á næstunni. Aðgerðin er nýjasti liðurinn í herferð þeirra gegn loftslagsvísindum.

Erlent
Fréttamynd

Tengja „kulda­pollinn“ við Ís­land við veikari AMOC

Einstakt kalt hafsvæði suður af Íslandi virðist tengjast veikari hringrás í hafinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem vísindamenn á Íslandi tóku þátt í. Hún rennir frekari stoðum undir að svonefnd veltihringrás Atlantshafsins veikist.

Innlent
Fréttamynd

Hita­met í maí slegið í Bret­landi

Hitinn náði þrjátíu og fjórum gráðum á selsíus fyrr í dag við Heathrow í nágrenni Lundúna. Er það hæsta hitastig sem mælst hefur í maímánuði í sögu Bretlands.

Erlent