Hamfarasvæði aftur í hættu vegna fellibyljarins Jóta Fellibylnum Jóta óx afl í Karíbahafi í dag og er nú orðinn að fimmta stigs fellibyl. Hann virðist nú stefna á hamfarasvæði í Mið-Ameríku sem urðu illa úti í fellibylnum Eta fyrr í þessum mánuði. Erlent 16. nóvember 2020 16:05
Hlýnun lengir líf fellibylja yfir landi Fellibyljir í Norður-Atlantshafi eru tvöfalt lengur missa afl sitt eftir að þeir ganga á land en fyrir fimmtíu árum vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Þannig eru þeir nú færir um að valda enn meiri eyðileggingu á landi en áður. Erlent 11. nóvember 2020 23:30
Tröllaukinn ísjaki stefnir á breska eyju Risavaxinn ísjaki sem brotnaði úr Larsen C-ísbreiðunni á Suðurskautslandinu stefnir nú á Suður-Georgíu, breska eyju í Suður-Atlantshafinu. Jakinn er svipaður að stærð og eyjan og gæti valdið meiriháttar búsifjum fyrir dýrategundir sem þar þrífast. Erlent 10. nóvember 2020 23:35
Bein útsending: Loftslagsvænar framfarir í kjölfar Covid-19 Bein útsending verður hér á Vísi frá málfundi um loftslagsmál á vegum Loftslagsráðs og sendiráðs Bretlands í dag. Fundurinn hefst klukkan 14.30 og stendur til klukkan 16. Samstarf 10. nóvember 2020 11:13
Stefnir í milljarða kostnað vegna Kýótó Íslendingum hefur ekki tekist að standa við skuldbindingar sínar í Kýótóbókuninni en því tímabili lýkur um áramótin þegar nýtt tímabil, kennt við Parísarsamkomulagið, tekur við. Innlent 10. nóvember 2020 07:08
Metfjöldi undirskrifta fyrir rannsókn á fjölmiðlaveldi Murdoch Fleiri en hálf milljón Ástrala hefur skrifað undir áskorun um að stjórnvöld komi á fót nefnd til að rannsaka meinta misnotkun fjölmiðlaveldis Ruperts Murdoch á markaðsráðandi stöðu sinni. Fyrrverandi forsætisráðherra úr röðum Verkamannaflokksins hóf undirskriftasöfnunina. Erlent 5. nóvember 2020 13:10
Bandaríkin formlega gengin úr Parísarsamkomulaginu Bandaríkin eru formlega gengin úr Parísarsamkomulaginu frá og með deginum í dag. Samkomulagið er frá árinu 2015 og kveður á um skuldbindingar ríkja til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Erlent 4. nóvember 2020 08:43
Á leiðinni frá Kyoto til Parísar Árið 2018 komu fyrst fram yfirlýsingar stjórnvalda um kolefnishlutleysi eigi síðar en 2040. Í uppfærðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum fyrir 2018 – 2030 er ekki aðeins gert ráð fyrir að skuldbindandi markmiðum Íslands verði náð heldur stefnt að enn betri árangri. Skoðun 3. nóvember 2020 14:30
Sameinast um þróun fjölnota 2ja-hreyfla rafmagnsflugvélar Ítalski flugvélaframleiðandinn Tecnam og breski hreyflaframleiðandinn Rolls Royce hafa tekið höndum saman um að þróa tveggja hreyfla rafmagnsflugvél. Þau stefna að því að verða fyrst til að koma rafmagnsflugvél af þessari stærð á markað. Viðskipti erlent 1. nóvember 2020 22:19
Boða byltingu í loftslagsmálum Íslenska fyrirtækið Carbon Iceland áformar að reisa lofthreinsiver á Húsavík sem gerir kleift að hreinsa og og binda milljón tonn af koltvísýringi úr andrúmslofti. Stjórnarformaður fyrirtækisins segir um að ræða byltingu í loftslagsmálum. Innlent 30. október 2020 19:01
Kjötlaust tvo daga vikunnar í Danmörku Ekkert kjöt verður á boðstólunum í mötuneytum danskra ríkisstofnanna tvo daga í viku ef ný innkaupastefnastefna danskra stjórnvalda er samþykkt. Erlent 29. október 2020 11:47
Búa sig undir La niña-aðstæður fram á næsta ár Veðurfyrirbrigðið La niña hefur myndast í Kyrrahafi og er búist við því að það hafi sterk áhrif á hita, úrkomu og vindafar víða á jörðina fram á næsta ár. Reiknað er með að fyrirbrigðið hafi mest áhrif í Afríku, Mið- og Suðaustur-Asíu, í Kyrrahafi og í norðanverðri Suður-Ameríku en aðeins óbein áhrif á veðurfar á Íslandi. Erlent 29. október 2020 11:04
Norðurskautið gæti orðið íslaust að sumri innan tuttugu ára Fyrstu niðurstöður viðamesta leiðangurs sögunnar á Norðurskautið voru kynntar á webinar hjá Hringborði norðurslóða, Arctic Circle, í dag. Hann staðfestir miklar breytingar sem muni meðal annars stuðla að aukinni tíðni ofsaveðra um allan heim. Erlent 27. október 2020 19:21
Kallað eftir sjálfbærnileiðtogum - helst í gær... Vísindasamfélagið hefur varað við hrikalegum afleiðingum ef ekki verður gripið strax til róttækra aðgerða til að sporna við áframhaldandi hlýnun jarðar. Skoðun 27. október 2020 14:00
Þrefaldur ávinningur heimavinnu Veirufaraldurinn sem geisað hefur um heimsbyggðina, hefur heldur betur hrist upp í viðhorfi til heimavinnu. Skoðun 27. október 2020 13:31
Afríkuríki þurfa að búa sig betur undir loftslagsbreytingar Afríka verður verst úti í loftslagsbreytingum samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunar Sameinuðu þjóðanna. Heimsmarkmiðin 27. október 2020 12:05
Nýta hátækni úr Svartsengi í norskri metanólverksmiðju Norðmenn hyggjast nýta sér hátækni Carbon Recycling í Svartsengi til að reisa 28 milljarða króna verksmiðju í Norður-Noregi sem fangar útblástur frá kísilmálmvinnslu og breytir honum í umhverfisvænt eldsneyti. Viðskipti innlent 25. október 2020 23:06
Gætu tekið af rafmagn hjá milljón manna til að draga úr eldhættu Orkufyrirtæki í Kaliforníu gæti tekið rafmagn af hjá allt að milljón viðskiptavinum sínum um helgina til að draga úr hættu á frekari gróðureldum. Spáð er sérstaklega eldfimum aðstæðum, þurrki og hvassviðri víða í Kaliforníu fram í næstu viku. Erlent 24. október 2020 10:08
Velti upp þörfinni á sameinuðu efnahags- og loftslagsráðuneyti „Neyðin til að samtvinna aðgerðir í efnahagslífinu og loftslagsmálum orðin svo brýn að maður veltir því fyrir sér hvort umhverfismál og efnahagsmál eigi ekki að heyra undir sama ráðherra,“ sagði Smári McCarthy, þingmaður Pírata, í sérstökum umræðum um loftslagsmál sem fara nú fram á Alþingi. Innlent 20. október 2020 15:55
Raunhæft að Ísland verði óháð bensíni og dísil árið 2050 Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir, formaður starfshóps stjórnvalda um Orkustefnu til næstu 30 ára telur mögulegt að Ísland verði orðið óháð jarðefnaeldsneyti ári 2050. Bílar 17. október 2020 07:01
Kóralrifið mikla hefur minnkað um helming frá 1995 Kóralrifið mikla hefur tapað um helmingi alls kórals síns frá árinu 1995. Skaðann má að mestu rekja til hækkandi hitastigs sjávar og veðurfarsbreytinga af mannavöldum. Erlent 14. október 2020 12:00
Ábyrga leiðin Áskoranir okkar daga kalla á pólitískan kjark og skýra framtíðarsýn. Í heimsfaraldri og atvinnuleysi getur almenningur á Íslandi reitt sig á leiðarljós jafnaðarmanna – og hið sama gildir í glímunni við loftslagsbreytingar. Skoðun 13. október 2020 07:00
Kynna rafknúnar vetnisvélar sem leið til orkuskipta í flugi Dash 8-flugvélum, eins og þeim sem notaðar eru hérlendis í innanlandsfluginu, verður hægt að fljúga á mengunarlausu vetni eftir fjögur ár í stað flugvélabensíns, nái áform bandarísks fyrirtækis fram að ganga. Flugvélaframleiðendur horfa nú til vetnis sem milliorkugjafa fyrir rafknúnar flugvélar. Innlent 12. október 2020 22:12
Íbúar Louisiana búa sig undir enn eitt óveðrið Íbúar Louisiana í Bandaríkjunum undirbúa sig nú fyrir komu annars öfluga fellibyljarins á einungis sex vikum. Búist er við því að fellibylurinn Delta nái þar landi í nótt og er útlit fyrir að hann geti valdið miklum skaða. Erlent 9. október 2020 14:08
Verkfall í Noregi gæti stöðvað fjórðung olíuframleiðslu Framleiðsla á olíu og gasi gæti dregist saman um allt að fjórðung vegna verkfalls starfsmanna í olíuiðnaði í Noregi. Heimsmarkaðsverð á olíu gæti hækkað fyrir vikið. Norska ríkisstjórnin ætlar ekki að grípa inn í verkfallið eins og sakir standa. Viðskipti erlent 8. október 2020 14:34
Frekari hlýnun líkleg til að valda stórfelldum breytingum á fiskveiðum við Ísland Hlýni sjórinn í kringum Ísland um tvær til þrjár gráður ylli það líklega stórfelldum breytingum á útbreiðslu fiska og fiskveiðum á Íslandi. Innlent 7. október 2020 20:30
Delta hefur náð landi í Mexíkó Fellibylurinn Delta hefur náð landi í Mexíkó og þá sem annars stigs fellibylur með um 50 m/meðalvindhraða. Erlent 7. október 2020 12:43
Evrópuþingið samþykkti metnaðarfyllri loftslagsmarkmið Markmið Evrópusambandsins verður að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 60% árið 2030 borið saman við árið 1990 og losunarmarkmið verða lagalega bindnandi samkvæmt frumvarpi sem var samþykkt á Evrópuþinginu í gær. Erlent 7. október 2020 11:42
Delta mun valda usla í Mexíkó og stefna svo á Bandaríkin Fellibylurinn Delta stefnir nú hraðbyri að ströndum Mexíkó og mun ná landi í Bandaríkjunum seinna í vikunni. Erlent 6. október 2020 13:33
Evrópuþingið greiðir atkvæði um metnaðarfyllri loftslagsmarkmið Óljóst er um afdrif frumvarps um að gera loftslagsmarkmið Evrópusambandsins lagalega bindandi í atkvæðagreiðslu sem verður haldin í Evrópuþinginu í kvöld. Erlent 6. október 2020 11:18