San Antonio valtaði yfir Phoenix Það sýndi sig svart á hvítu í gær hve mikilvægur hlekkur Steve Nash er í liði Phoenix Suns, þegar það steinlá á heimavelli sínum fyrir San Antonio Spurs 117-93. Nash gat ekki spilað með Phoenix vegna meiðsla og þykir tap liðsins sýna af hverju talað er um að Nash verði annað árið í röð valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar. Sport 10. mars 2006 14:13
Philadelphia - Denver í beinni Leikur Philadelphia 76ers og Denver Nuggets verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland í kvöld og hefst hann klukkan eitt eftir miðnætti. Þetta verður fyrsti leikur Denver á sjö leikja ferðalagi, en Philadelphia hefur tapað tveimur leikjum í röð. Sport 9. mars 2006 22:29
Bryant eyðilagði heimkomu New Orleans New Orleans Hornets spilaði í nótt fyrsta heimaleik sinn í endurnýjaðri heimahöll sinni í New Orleans síðan fellibylurinn Katrín lagði borgina í rúst í sumar, en því miður fyrir stuðningsmenn heimaliðsins voru það Kobe Bryant og félagar í LA Lakers sem komu í heimsókn. Bryant skoraði 18 af 40 stigum sínum í fjórða leikhluta og tryggði Lakers sigur 113-107. Sport 9. mars 2006 13:45
Houston - Indiana í beinni Viðureign Houston Rockets og Indiana Pacers verður sýnd í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland klukkan 1:30 eftir miðnætti í nótt. Indiana tapaði síðasta leik sínum illa á heimavelli fyrir slöku liði New York, en Houston hefur unnið þrjá leiki í röð og 13 af síðustu 17. Búist er við að Tracy McGrady verði með Houston í kvöld, en hann hefur átt við bakmeiðsli að stríða undanfarið. Sport 8. mars 2006 22:11
Fyrsti heimaleikurinn síðan Katrín reið yfir New Orleans Hornets spilar í kvöld sinn fyrsta leik á heimavelli síðan fellibylurinn Katrín reið yfir borgina þann 29. ágúst á síðasta ári, en liðið hefur spilað megnið af heimaleikjum sínum í Oklahoma City síðan þá. Liðið spilar aðeins þrjá leiki í New Orleans Arena í ár og sex leikir eru fyrirhugaðir þar á næsta tímabili. Sport 8. mars 2006 18:58
Fyrsta sigurganga New York í tvo mánuði Botnlið New York vann í nótt annan leik sinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liði skellti Indiana nokkuð óvænt á útivelli 107-92, en þetta er í fyrsta sinn í tvo mánuði sem New York vinnur tvo leiki í röð og hafa báðir sigrar liðsins komið á útivelli. Jalen Rose skoraði 21 stig gegn sínum gömlu félögum, en þeir Peja Stojakovic og Stephen Jackson skoruðu 20 hvor fyrir Indiana. Sport 8. mars 2006 05:52
Dallas - Portland í beinni Leikur Dallas Mavericks og Portland Trailblazers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland í nótt klukkan 1:30 eftir miðnætti. Dallas hefur tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum eftir að hafa tekið 19-1 rispu á dögunum og líta leikmenn liðsins væntanlega á leikinn við Portland sem kjörið tækifæri til að rétta úr kútnum. Sport 7. mars 2006 23:13
Shaq hélt upp á afmælið með sigri Miðherjinn Shaquille O´Neal hélt upp á 34 ára afmælið sitt í gær með því að skora 35 stig og hirða 12 fráköst í naumum sigri Miami Heat á Charlotte Bobcats 106-105 í framlengdum leik. Shaq skoraði öll 8 stig Miami í framlengingunni. Gerald Wallace skoraði 26 stig og hirti 15 fráköst fyrir Charlotte. Sport 7. mars 2006 15:01
LA Lakers - San Antonio í beinni Það verður góður leikur á dagskrá á NBA TV fyrir hörðustu nátthrafna í kvöld þegar Los Angeles Lakers tekur á móti meisturum San Antonio, en leikurinn hefstu klukkan 3:30 að íslenskum tíma. Leikurinn verður svo sýndur aftur í fyrramálið venju samkvæmt. Sport 6. mars 2006 21:30
Tíundi sigur Phoenix í röð Phoenix Suns er heitasta lið NBA deildarinnar í dag eftir að liðið vann tíunda leik sinn í röð í nótt gegn Dallas á útivelli 115-107. Þetta var annað tap Dallas í síðustu þremur leikjum, en áður hafði liðið verið á mikilli sigurgöngu. Sport 6. mars 2006 17:10
Ótrúlegur sigur Miami á Atlanta Kobe Bryant skoraði 40 stig fyrir Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, þegar liðið lagði Detroit, 105-94. Miami Heat vann sinn áttunda leik í röð með naumum sigri á Atlanta Hawks, 95-93. Miami átti frábæran endasprett og náði að tryggja sér sigurinn á ótrúlegan hátt með 1.8 sekúndu eftir á klukkunni, eftir að hafa verið 17 stigum undir. Sport 5. mars 2006 13:41
16. heimasigurinn í röð hjá Dallas 10 leikir voru í NBA körfuboltanum í gærkvöldi. Allen Iverson skoraði 43 stig þegar Philadelfia vann Washington, 119-113. Dallas Mavericks vann 16. heimaleik sinn í röð í gærkvöldi. Í gærkvöld stóðu leikmenn Charlotte Bobcats lengi í Dallas-mönnum. En Þjóðverjinn, Dirk Nowitzki, tók til sinna ráða en hann var stigahæstur hjá Dallas, skoraði 26 stig. Sport 4. mars 2006 14:12
Dallas - Charlotte í beinni Leikur Dallas Mavericks og Charlotte Bobcats verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan 01:30 í nótt. Fyrirfram mætti reikna með stórsigri Dallas, því Charlotte hefur aðeins unnið 6 útileiki í allan vetur en Dallas hefur aðeins tapað 4 leikjum á heimavelli. Sport 3. mars 2006 22:29
San Antonio vann toppslaginn Meistarar San Antonio Spurs sýndu að þeir eru ekki dauðir úr öllum æðum í nótt þegar liðið skellti heitasta liði deildarinnar Dallas Mavericks í uppgjöri tveggja efstu liða Vesturdeildarinnar 98-89 á heimavelli sínum. Liðin eru nú hnífjöfn á toppi deildarinnar með 45 sigra og 12 töp. Sport 3. mars 2006 14:33
Chicago - Cleveland í beinni Það má sannarlega búast við skemmtilegum körfubolta í beinni útsendingu á NBA TV í kvöld þegar Chicago Bulls og Cleveland Cavaliers leiða saman hesta sína. Leikmenn Cleveland mæta væntanlega eins og öskrandi ljón til leiks í kvöld, því liðið hefur tapað fimm leikjum í röð. Leikurinn er á besta tíma og hefst klukkan tólf á miðnætti. Sport 2. mars 2006 22:00
Iverson skoraði 40 stig Allen Iverson verður ekki boðið að taka þátt í æfingabúðum þar sem valið verður í landslið Bandaríkjanna fyrir HM og Ólympíuleikana í körfubolta og í gær svaraði hann því á sinn hátt þegar hann skoraði 40 stig og gaf 10 stoðsendingar í sigri Philadelphia á Houston, þrátt fyrir að vera með flensu. Sport 2. mars 2006 16:47
Hinrich með stórleik Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Chicago Bulls lagði Minnesota Timberwolves 111-100 á heimavelli sínum, en sigurinn var kostnaðarsamur þar sem liðið missti tvo menn útaf meidda eftir samstuð. Sport 1. mars 2006 14:37
Detroit lagði Cleveland Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Detroit Pistons lagði Cleveland Cavaliers 90-78. Chauncey Billups skoraði 21 stig og gaf 8 stoðsendingar í liði Detroit, en LeBron James skoraði 22 stig fyrir Cleveland. Þetta var 5. sigur Detroit í röð. Sport 27. febrúar 2006 15:16
Arenas jarðaði New York Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Gilbert Arenas fór hamförum í liði Washington þegar það burstaði New York Knicks, Shaquille O´Neal var sjóðandi heitur gegn Seattle og Phoenix lagði Charlotte á heimavelli í hreint út sagt frábærum körfuboltaleik í beinni útsendingu á NBA TV. Sport 26. febrúar 2006 08:29
Clippers vann grannaslaginn Los Angeles Clippers vann í nótt góðan sigur á grönnum sínum í Los Angeles Lakers 102-93 í NBA deildinni í körfubolta. Kobe Bryant skoraði 39 stig fyrir Lakers, en Elton Brand skoraði 32 stig og hirti 11 fráköst en hann skoraði megnið af stigum sínum í síðari hálfleik. Sport 25. febrúar 2006 13:44
Memphis - San Antonio í beinni Það verður sannkallaður hörkuslagur í beinni útsendingu á NBA TV í nótt þegar Memphis Grizzlies tekur á móti meisturum San Antonio Spurs og hefst leikurinn klukkan eitt eftir miðnætti. Sport 24. febrúar 2006 19:45
Earl Watson kominn aftur til Seattle Nokkur lið notuðu tækifærið í gærkvöldi og sópuðu til í herbúðum sínum áður en félagaskiptaglugginn lokaði. Þar bar hæst að bakvörðurinn Earl Watson fór frá Denver til Seattle þar sem hann lék áður og þá fékk Denver til sín framherjann Ruben Patterson frá Portland. Sport 24. febrúar 2006 17:13
Félagsmet hjá Dallas Dallas setti í nótt félagsmet þegar liðið vann Memphis 97-87, en þetta var 13. sigurleikur liðsins í röð á heimavelli. Dirk Nowitzki skoraði 31 stig fyrir Dallas, en Pau Gasol og Bobby Jackson skoruðu 18 stig hvor fyrir Memphis. Sport 24. febrúar 2006 15:56
Marion skoraði 44 stig fyrir Phoenix Framherjinn Shawn Marion hjá Phoenix setti persónulegt met í nótt þegar hann skoraði 44 stig í sigri liðsins á Boston 103-94. Marion var í miklu stuði í leiknum og auk þess að skora 44 stig, hitti hann úr 15 af 22 skotum sínum utan af velli, nýtti öll 10 vítaskot sín, hirti 15 fráköst, stal 4 boltum og varði 3 skot. Sport 23. febrúar 2006 11:27
Steve Francis til New York Félagaskiptaglugginn í NBA deildinni lokast aðfararnótt föstudagsins og eins og búast mátti við hefur lið New York Knicks nú riðið á vaðið og fengið til sín enn eina skyttuna. Þetta er bakvörðurinn Steve Francis sem liðið fékk frá Orlando Magic og lét í staðinn þá Trevor Ariza og Penny Hardaway. Sport 23. febrúar 2006 02:26
Carter skoraði 45 stig Vince Carter skoraði 45 stig, þar af 14 síðustu stig New Jersey Nets í sigri liðsins á Milwaukee í NBA körfuboltanum í nótt 89-85. Jason Kidd var einnig frábær í liði New Jersey og náði enn einni þrennunni með 12 stigum, 13 stoðsendingum og 12 fráköstum, en þetta var í 71. sæti sem Kidd nær þrennu á ferlinum. Sport 22. febrúar 2006 14:11
Utah - Boston í beinni Deildarkeppnin í NBA hefst aftur í nótt eftir hlé vegna stjörnuleiksins og verður leikur Utah Jazz og Boston Celtics í beinni útsendingu á NBA TV klukkan 2 eftir miðnætti í nótt. Sport 21. febrúar 2006 21:28
Jón Arnór bikarmeistari með Napoli Landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson varð í gærkvöld ítalskur bikari með liði sínu Napoli þegar það bar sigurorð af Roma í úrslitaleik 85-83. Jón skoraði 9 stig í leiknum. Sport 20. febrúar 2006 15:01
James fór fyrir Austurliðinu LeBron James varð í nótt yngsti leikmaðurinn í sögu NBA til að vera kjörinn besti leikmaður Stjörnuleiksins þegar hann skoraði 29 stig og leiddi lið Austurstrandarinnar til sigurs gegn Vesturliðinu 122-120, eftir að Austurliðið hafði lent 21 stigi undir á tímabili í leiknum. Sport 20. febrúar 2006 06:01
Robinson sýndi bestu tilþrifin Nate Robinson, nýliði New York Knicks, sigraði í troðslukeppni NBA sem haldin er árlega í kringum Stjörnuleikinn sem fer fram í Houston í nótt. Leikurinn hefst klukkan 1.30 og verður í beinni útsendingu á Sýn. Sport 19. febrúar 2006 16:24
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti