Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Donald Trump hefur beðið aðstoðarmenn sína um að koma á fundi milli hans og Kim Jong Un. Forsetinn vill hitta einræðisherrann strax í haust, gangi það eftir, og segist ætla að sannfæra Kim um að leggja niður kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreu. Erlent 19.8.2026 16:03
Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Forseti Suður-Kóreu kallaði í morgun, þriðjudag, eftir sterku bandalagi við Bandaríkin. Það er eftir að Donald Trump skipaði yfirmönnum bandaríska hersins að draga verulega úr heræfingum með Suður-Kóreu, á þeim grunni að engin ógn stafaði af Norður-Kóreu vegna vinasambands hans og Kims Jong Un og að Suður-Kóreumenn hefðu ekki viljað aðstoða Bandaríkin gegn Íran. Erlent 18.8.2026 23:23
Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað varnarmálaráðuneyti sínu að draga verulega úr samstarfi Bandaríkjahers við Suður-Kóreu. Hann segir enga ógn stafa af Norður-Kóreu þrátt fyrir vígvæðingu alræðisríkisins. Erlent 17.8.2026 08:57
Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Á síðustu misserum hefur farið fram umræða um Sósíalistaflokkinn, hugmyndafræðilega afstöðu innan hans og tengsl ákveðinna einstaklinga við Norður-Kóreu, fyrst og fremst í gegnum Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu. Sú umræða er að mínu mati bæði nauðsynleg og löngu tímabær, ekki síst vegna þess hvernig rómantísering á einræðisríkjum og harðstjórn hefur fengið að lifa í jaðri íslensks stjórnmálaumhverfis án nægilegrar gagnrýni. Skoðun 22. maí 2026 18:30
Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar. Erlent 18. maí 2026 07:58
Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista í borginni, sagði spurningu Einars Þorsteinssonar, fyrrverandi borgarstjóra og oddvita Framsóknar, um Norður-Kóreu heimsókn félagsmanns Sósíalista vera fáránlega. Hún sagði ekki hægt að bendla flokkinn við ríki líkt og Norður-Kóreu, og að spurning Einars væri „strámaður“. Innlent 14. maí 2026 08:27
Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Rússneskt flutningaskip, sem tilheyrði hinum svokallaða „skuggaflota“ bar líklega tvo kjarnakljúfa þegar það sökk undan ströndum Spánar í Miðjarðarhafið. Skipið bar nafnið „Ursa Major“ og sökk seint að kvöldi þann 23. desember 2024 þegar verið var að sigla því, samkvæmt skráningu, til Vladivostok. Erlent 12. maí 2026 16:47
Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Mannréttindasamtökin Transitional Justice Working Group (TJWG) segja aftökum hafa fjölgað verulega í Norður-Kóreu á meðan kórónuveirufaraldurinn stóð yfir. Samkvæmt nýrri skýrslu voru að minnsta kosti 153 teknir af lífi á árunum 2020 til 2024, samanborið við 44 á árunum 2015 til 2019. Erlent 28. apríl 2026 08:43
Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og Kim Ju Ae, dóttir hans og væntanlegur arftaki, heimsóttu á dögunum byssuverksmiðju. Þar prófuðu þau meðal annars nýjar skammbyssur með háttsettum herforingjum i er Norður-Kóreu. Degi áður höfðu þau fylgst saman með tilraunum með nýjar stýriflaugar einræðisríkisins. Erlent 12. mars 2026 09:07
„Valsreiturinn... í Pyongyang“ Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti mynd á Facebook af Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu í höfuðborginni Pyongyang og segir sjást „glöggt“ að Kim-stjórnin hafi „skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi“. Umræður hafa spunnist um líkindi milli norður-kóresku bygginganna við Valsreitinn og Borgartúnið. Lífið 27. febrúar 2026 17:10
Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, segir samband við Bandaríkin mögulegt en aðeins ef Bandaríkjamenn sætta sig við að kjarnorkuáætlun Norðurkóreumanna sé komin til að vera. Erlent 26. febrúar 2026 07:56
Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, ætlar sér að tilnefnda dóttur sína sem formlegan arftaka sinn. Kim Ju Ae hefur fylgt honum eftir í opinberum heimsóknum á undanförnum mánuðum og hefur það þótt til marks um að hann vilji að hún taki við af sér þegar þar að kemur en lítið er vitað um hana. Erlent 12. febrúar 2026 10:30
Norður-Kórea er ekki með á ÓL og heldur sína eigin vetrarleika Norður-Kóreubúar munu ekki ganga inn á leikvanginn í kvöld með öðrum þjóðum heims þegar Vetrarólympíuleikarnir verða settir í Mílanó og Cortina á Ítalíu. Sport 6. febrúar 2026 13:00
Svíar líta til kjarnorkuvopna Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna. Erlent 27. janúar 2026 22:50
Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Yfirvöld í Norður-Kóreu sögðu frá því í morgun að gerð hefði verið tilraun með langdræga stýriflaug sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Tveimur slíkum var skotið á loft í gær, nokkrum dögum eftir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skoðaði kjarnorkuknúinn kafbát sem verið er að smíða þar. Erlent 29. desember 2025 14:26
Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Forsvarsmenn Sósíalistaflokksins hafa ausið ríki með gerræðislegt stjórnarfar eins og Kína, Norður-Kóreu og Rússland lofi á undanförnum misserum. Formaðurinn segir það bull að Ísland sé hluti af lýðræðisríkjum í heiminum og að „sjúkir“ fjölmiðlar ljúgi upp á óvini Bandaríkjastjórnar. Innlent 29. desember 2025 08:00
Til í viðræður en mun aldrei láta kjarnorkuvopnin af hendi Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segist opinn fyrir nýjum viðræðum við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Með þeim skilyrðum að Bandaríkjamenn hætti að krefjast þess að Kim láti kjarnorkuvopn sín af hendi. Það segist hann aldrei ætla að gera. Erlent 22. september 2025 12:18
„Selir“ skutu óvopnaða borgara í leyniaðgerð í Norður-Kóreu Bandarískir sérsveitarmenn skutu óvopnaða Norður-Kóreumenn til bana í misheppnaðri leyniaðgerð í upphafi árs 2019. Þar voru þeir til að koma fyrir hlerunarbúnaði sem vonast var til að gæti verið notaður til að hlera samskipti Kims Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, þegar Bandaríkjamenn voru í viðræðum við hann um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins. Erlent 5. september 2025 11:56
Tók dóttur sína og erfingja með til Kína Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, er nú staddur í Kína þar sem hann hefur fundað með öðrum þjóðarleiðtogum og þá helst þeim Xi Jinpin og Vladimír Pútín, forsetum Kína og Rússlands. Kim tók dóttur sína, Kim Ju Ae með sér til Kína, sem sérfræðingar segja benda til þess að hann sjái hana sem erfingja sinn. Erlent 3. september 2025 11:13
Kína sendir skilaboð til Bandaríkjanna og Trump svarar um hæl „Mannkynið stendur í dag frammi fyrir valinu milli friðar eða stríðs, samtals eða átaka, ávinnings eða taps beggja aðila,“ sagði Xi Jinping, forseti Kína, þegar hann ávarpaði 50 þúsund manns á Torgi hins himneska friðar í gær. Erlent 3. september 2025 06:58
Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Þúsundir Norður-Kóreumanna hafa verið sendir til Rússlands, þar sem þeir segja komið fram við þá eins og þræla. Þar eru þeir látnir vinna við húsasmíðar og í verksmiðjum, svo eitthvað sé nefnt, og eru þeir látnir vinna gífurlega langa daga og nánast án frídaga. Erlent 12. ágúst 2025 16:36
Ætla að breyta heræfingum eftir skammir frá systur Kims Kim Yo Jong, hin áhrifamikla systir Kims Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur hafnað tilraunum nýs forseta Suður-Kóreu til að hefja viðræður ríkjanna á milli. Hún segir að þó ný ríkisstjórn hafi tekið við í suðri marki það litlar breytingar vegna fjandskapar í garð Norður-Kóreu og bandalags Suður-Kóreu og Bandaríkjanna. Erlent 28. júlí 2025 11:39
Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur lofað Rússum skilyrðislausan stuðning sinn í innrásarstríði þeirra við Úkraínu. Erlent 13. júlí 2025 07:53
Kim reiður yfir misheppnaðri sjósetningu Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur látið handtaka fjóra embættismenn sem sagðir eru bera ábyrgð á því að nýju herskipi hvolfdi við sjósetningu. Skipið er sagt vera í viðgerð en sérfræðingar segja gervihnattamyndir benda til þess að skemmdirnar séu umfangsmiklar. Erlent 26. maí 2025 10:33