Jafntefli hjá HK HK gerði í kvöld 31-31 jafntefli við ítalska liðið Pallomano Conversano frá Ítalíu í fyrri leik liðanna í í undankeppni EHF-keppninnar í handbolta. Árni Þórarinsson og Augustas Strazdas skoruðu sex mörk hvor fyrir Kópavogsliðið. Leikurinn telst heimaleikur HK, en þau mætast aftur í Digranesi á morgun. Handbolti 5. október 2007 21:57
Fram á toppnum í N-1 deildunum Karlalið Stjörnunnar tapaði í kvöld sínum fyrsta leik í N1 deildinni í handbolta þegar liðið lá 31-28 fyrir Fram á heimavelli sínum Mýrinni og því eru Framarar komnir í toppsætið. Kvennalið Fram er einnig komið á toppinn eftir stórsigur í kvöld. Handbolti 3. október 2007 22:58
HK og Valur mætast í kvöld Íslandsmeistarar Vals taka á móti HK í kvöld og geta þar með unnið sinn fyrsta sigur á leiktíðinni. Handbolti 2. október 2007 13:12
Aron: Hefur verið góð byrjun á mótinu Aron Kristjánsson hefði viljað tvö stig í kvöld en var sáttur úr því sem komið var. Handbolti 27. september 2007 22:26
Sigurbergur tryggði Haukum jafntefli Sigurbergur Sveinsson tryggði Haukum jafntefli gegn Fram í N1-deild karla með „buzzer“-marki í leikslok. Handbolti 27. september 2007 21:57
Ekkert óðagot á Valsmönnum "Það er enginn draumur að byrja svona og við verðum bara að fara að hala inn stig - það er það eina sem dugir," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, í samtali við Vísi í dag. Handbolti 26. september 2007 13:50
Haukar rúlluðu yfir Eyjamenn Þrír leikir fóru fram í N1-deild karla í dag en að loknum tveimur umferðum eru Haukar, Fram og Stjarnan enn ósigruð. Handbolti 22. september 2007 18:48
Máli Sigfúsar lokið Handknattleiksmaðurinn Sigfús Páll Sigfússon er loks genginn formlega í raðir Íslandsmeistara Vals eftir að sátt náðist í deilu félaganna í dag. Handknattleiksdeildir félaganna hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Handbolti 21. september 2007 21:15
Meistararnir enn án sigurs Íslandsmeistarar Vals byrja leiktíðina ekki glæsilega í N1 deildinni í handbolta, en í kvöld tapaði liðið öðrum leiknum í röð í upphafi móts þegar það lá fyrir Stjörnumönnum í Garðabæ 27-22 eftir að hafa verið yfir í hálfleik. Handbolti 20. september 2007 21:44
Stjörnunni spáð tvöföldum sigri Karla- og kvennalið Stjörnunnar í Garðabæ verða sigursæl á komandi Íslandsmóti í handknattleik ef marka má árlega spá þjálfara og fyrirliða á kynningarfundi fyrir N1 deildina sem haldinn var í hádeginu. Stjörnunni er spáð Íslandsmeistaratitli í karla- og kvennalfokki. Handbolti 11. september 2007 12:33
Úrvalsdeildin í handbolta verður N1 deildin N1 verður aðalstyrktaraðili HSÍ næstu árin og mun Íslandsmót karla og kvenna fá nafnið N1 deildin. Fulltrúar fyrirtækisins og HSÍ skrifuðu í dag undir samstarfssamning þessa efnis að viðstöddum formönnum félaganna og fyrirliðum. Handbolti 6. september 2007 17:13
Markús Máni að hætta? "Ég get ekkert sagt um það á þessari stundu," sagði Markús Máni Michaelsson í samtali við Vísi þegar hann var spurður hvort hann ætlaði sér að spila með Íslandsmeisturum Vals í vetur. Markús er samningsbundinn Val en segir frekar ólíklegt að hann verði á fullu með liðinu í deildarkeppninni. Handbolti 5. september 2007 13:40
Stjarnan kveður Ásgarð Meistarakeppni HSÍ fer fram í kvöld og báðir leikirnir verða spilaðir í Ásgarði í Garðabæ. Konurnar ríða á vaðið klukkan 18 þegar Stjarnan og Haukar mætast en klukkan 20 mætast Stjarnan og Valur í karlaflokki. Handbolti 2. september 2007 10:00
Stjarnan mætir Tenax Dobele frá Lettlandi Handknattleikslið Stjörnurnar í karlaflokki mætir Tenax Dobele frá Lettlandi í fyrstu umferð Evrópukeppni bikarhafa. Dregið var fyrir leikina í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu í morgun. Fyrri leikurinn fer fram á Íslandi þann 1. eða 2. september og seinni leikurinn fer fram 8. eða 9. september. Handbolti 24. júlí 2007 14:35
Viljum alls ekki missa Valdimar Handknattleiksmaðurinn Valdimar Þórsson, sem gekk í raðir Fram í lok síðasta mánaðar, gæti verið á förum til sænska úrvalsdeildarliðsins HK Malmö. Sænskir fjölmiðlar sögðu frá því í gær að samningur við leikmanninn væru nánast frágenginn og að aðeins formsatriði yrði að fá undirskrift. Handbolti 17. júlí 2007 01:00
Valdimar Þórsson í Fram Framarar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í DHL-deild karla næsta vetur. Á blaðamannafundi nú klukkan 16 tilkynnti handknattleiksdeild félagsins að hún hefði gert tveggja ára samning við Valdimar Þórsson, fyrrum leikmann HK. Valdimar hefur verið einn af betri leikmönnum Íslandsmótsins undanfarin ár og skoraði 162 mörk í 21 leik fyrir HK í vetur. Handbolti 28. júní 2007 16:00
Valsmenn mæta liði frá Litháen Í morgun var dregið í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Íslandsmeistarar Vals í karlaflokki mæta litháísku meisturunum Panevezys Viking Malt og byrja á útivelli 1. eða 2. semptember. Síðari leikurinn er hér heima viku síðar. Handbolti 28. júní 2007 12:49
Serenko fer frá Fram Framarar hafa ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Úkraínumanninn Sergiy Serenko og því mun hann ekki leika með liðinu í DHL-deildinni á næstu leiktíð. Serenko kom til Fram haustið 2005 og átti þá frábæra leiktíð, en náði sér ekki á strik síðasta vetur. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Handbolti 26. júní 2007 14:26
Trúi ekki öðru en að þetta hjálpi mér Akureyringurinn Jónatan Magnússon fór fyrir viku síðan í sína fyrstu aðgerð vegna meiðsla sem hafa hrjáð hann síðan á síðasta ári. Jónatan hefur lítið getað hreyft sig vegna meiðslanna sem enginn getur sjúkdómsgreint. „Það veit enginn hvað er að mér,” sagði kappinn í nýlegu viðtali við Fréttablaðið en Brynjólfur Jónsson ákvað loks að skera hann upp. Handbolti 26. júní 2007 07:00
Á námskeiði hjá Tommy Svensson Tveir efnilegustu markverðir landsins, Pálmar Pétursson úr Val og Björgvin Páll Gústavsson úr Fram, fara á sunnudaginn til Svíþjóðar þar sem þeir verða á vikulöngu markvarðanámskeiði hjá sænsku markvarðagoðsögnunum Tommy Svensson og Claes Hellgren. Handbolti 21. júní 2007 00:01
Ungverji þjálfar handknattleikslið Fram Handknattleiksdeild Fram hefur samið við ungverska þjálfarann Ferenc Buday um að þjálfa meistaraflokk karla næstu tvö árin. Hann tekur við af Guðmundi Þórði Guðmundssyni, fyrrverandi landsliðsþjálfara, sem ákvað að hætta með liðið í vor. Handbolti 16. maí 2007 11:40
HK deildarbikarmeistari HK menn urðu í kvöld deildarbikarmeistarar í handbolta þegar þeir báru sigurorð af Stjörnunni í oddaleik í Digranesi 29-28. Augustas Strasdas og Valdimar Þórsson skoruðu 8 mörk hvor fyrir heimamenn en Guðmundur Guðmundsson skoraði 6 fyrir gestina. Handbolti 9. maí 2007 21:20
Oddaleikur hjá HK og Stjörnunni Stjarnan lagði HK 28-23 í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu í deildarbikarkeppni karla í handbolta í dag. Liðin verða því að mætast í oddaleik í Digranesi á miðvikudagskvöldið. HK hafði yfir í leikhléi í dag 14-13 en heimamenn voru sterkari á lokasprettinum. Handbolti 5. maí 2007 18:24
Brynjar þríbrotnaði á vinstri úlnlið Brynjar Valsteinsson, leikmaður HK, verður ekki meira með í úrslitum deildarbikarkeppninnar og gæti misst af upphafi næsta tímabils. Hann þríbrotnaði á úlnlið í vinstri hendi í leik gegn Stjörnunni í fyrrakvöld er hann lenti illa eftir að hafa keyrt upp völlinn í hraðaupphlaupi. Handbolti 5. maí 2007 06:00
Björgvin og Arnar á leið í Hauka Það er mikill hugur í Haukamönnum fyrir komandi tímabil í handboltanum en Aron Kristjánsson hefur tekið við stjórnartaumunum hjá félaginu í stað Páls Ólafssonar. Haukar hafa þegar gengið frá samningi við skyttuna Gunnar Berg Viktorsson og markvörðinn Gísla Guðmundsson og eftir helgi verður væntanlega gengið frá samningum við skytturnar Björgvin Hólmgeirsson og Arnar Jón Agnarsson. Handbolti 5. maí 2007 03:15
HK lagði Stjörnuna HK-menn báru sigurorð af Stjörnunni í kvöld í fyrsta úrslitaleik liðanna í deildarbikar karla í handbolta. Stjarnan var yfir 11-9 í hálfleik. Augustas Stradzdas skoraði 9 mörk fyrir HK og Tomas Eitutis 8, en David Kekelia skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna og Patrekur Jóhannesson 7. HK getur tryggt sér deildarbikarinn með sigri í öðrum leik liðanna í Garðabæ á laugardaginn. Handbolti 3. maí 2007 21:34
Fylkir missir sína sterkustu menn Nú er ljóst að Fylkir mun missa sína sterkustu leikmenn en liðið féll nú á vikunum úr DHL-deildinni. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort Fylkir ætli að tefla fram liði í 1. deild karla á næsta ári. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Heimir Örn Árnason, Guðlaugur Arnarsson og Hlynur Morthens gætu vel verið á leið til Stjörnunnar ásamt ÍR-ingnum Ragnari Má Helgasyni. Handbolti 3. maí 2007 00:01
HK í úrslit HK tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik deildarbikarsins í handbolta karla með öruggum sigri á Fram í oddaleik 31-26 eftir að hafa verið yfir 20-13 í hálfleik. HK mætir Stjörnunni í úrslitaleik keppninnar. Handbolti 29. apríl 2007 17:35
HK lagði Fram Tveir leikir fóru fram í deildarbikarkeppni karla í handbolta í kvöld. HK lagði Fram 28-26 eftir að jafnt var í hálfleik 14-14. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 8 mörk fyrir HK og þeir Tomas Eitutis, Valdimar Þórsson og Augustas Strazdas 5 hver en Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 8 fyrir Fram og Guðjón Drengsson 7. Þá vann Stjarnan góðan sigur á Val 27-23. Handbolti 25. apríl 2007 22:17
Valsmenn eru Íslandsmeistarar Valur er Íslandsmeistari karla í handbolta árið 2007. Liðið tryggði sér sigur í DHL-deildinni með því að leggja Hauka af velli á Ásvöllum, 33-31, en á sama tíma gerði HK 27-27 jafntefli við Akureyri fyrir norðan. Valsmenn hluti 33 stig í deildinni í vetur en HK varð í öðru sæti með 32 stig. Handbolti 22. apríl 2007 17:50