Stefna á víðtækar ferðatakmarkanir Stjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, stefnir á að gefa út víðtækar ferðatakmarkanir fyrir ríkisborgara 43 landa. Löndunum er skipt í þrjú stig en ríkisborgum ellefu landa verður alfarið bannað að ferðast til Bandaríkjanna. Erlent 16.3.2025 22:14
Refsivert að ganga í hjónaband með barni í Síerra Leóne Barnahjónabönd voru nýlega gerð refsiverð í Sierra Leone. Markar þetta mikil tímamót þar sem í landinu er ein hæsta tíðni barnahjónabanda í heiminum. Fjörutíu prósent stúlkna undir átján ára aldri hafa verið neyddar í hjónaband í landinu. Erlent 25.6.2024 18:04
Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Ný sendiskrifstofa Íslands í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne, var formlega opnuð í gærkvöldi og var sérstök hátíðarmóttaka af því tilefni. Sendinefnd frá Íslandi er í Síerra Leóne um þessar mundir og sóttu Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og Logi Einarsson þingmaður, opnunina. Innlent 3.5.2024 14:39
Vaknaði við byssuskot nærri heimili sínu í Freetown Framkvæmdastjóri Auroru velgjörðarsjóðs í Síerra Leóne segir mesta hættuástandið í Freetown í Síerra Leóne liðið en að þau haldi áfram að meta aðstæður. Forseti landsins tilkynnti í ávarpi í gær að búið væri að handtaka flesta uppreisnarmennina. Ráðist var á vopnabirgðir hersins og fjöldi fanga frelsaður Innlent 27. nóvember 2023 11:36
Útgöngubann í Síerra Leóne eftir árásir og frelsun fanga Útgöngubann er í gildi í Síerra Leóne eftir að vopnaðir menn ruddust inn í fangelsi í landinu og frelsuðu fanga. Samkvæmt yfirvöldum áttu árásirnar sér stað í gærmorgun, í fjölda stórra fangelsa. Fjórtán Íslendingar eru í Síerra Leóne samkvæmt tilkynningu utanríkisráðuneytisins. Erlent 27. nóvember 2023 07:00
Landlægt útgöngubann í Síerra Leóne Forseti Síerra Leóne lýsti í morgun yfir landlægu útgöngubanni eftir að þungvopnaðir menn ruddust inn í fangelsi í höfuðborginni Freetown og frelsuðu þar fanga. Skömmu áður höfðu vopnaðir menn ráðist á herstöð í borginni, sem er skammt frá forsetahöllinni, og reynt að brjótast inn, eða brotist inn, í vopnabúr herstöðvarinnar. Erlent 26. nóvember 2023 14:01
Toppurinn á ísjakanum Konur eru beittar ofbeldi um allan heim. Ein af hverjum þremur konum í heiminum hefur verið beitt kynbundnu ofbeldi einhvern tímann á ævinni. Það eru um 736 milljónir kvenna! Þessar tölur eru þó líklega aðeins toppurinn á ísjakanum, því þær taka aðeins mið af opinberum gögnum þeirra ríkja sem hafa slík gögn tiltæk, og af sárri reynslu vitum við að fjöldi kvenna mun aldrei segja frá ofbeldinu né tilkynna það til yfirvalda. Skoðun 9. júní 2023 14:02
Heimilið hættulegasti staðurinn fyrir konur í Síerra Leóne UN Women á Íslandi hefur hrundið af stað sinni árlegu FO-herferð með spánýjum FO-varningi, sem í ár er svört derhúfa með dökkgráu FO-merki. Lífið 1. júní 2023 12:00
Bætum líf kvenna og stúlkna í Síerra Leóne Árið 1991 braust út borgarastríð í Síerra Leóne, tæplega átta milljóna íbúa ríki á vesturströnd Afríku, sem átti eftir að standa yfir í meira en áratug. Nauðgunum og kynbundnu ofbeldi gegn konum var markvisst beitt sem stríðsvopni á meðan á stríðinu stóð. Fjölda kvenna var rænt og þær þvingaðar í hjónabönd með vígamönnum. Um þriðjungur kvenna í landinu er talinn hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi í tengslum við stríðið. Skoðun 1. júní 2023 12:00
Eitt helsta kennileiti Freetown féll í stormi Risavaxið silkitrefjatré, sem talið er eitt helsta kennileiti Freetown, höfuðborgar Sierra Leóne, féll í miklu hvassviðri í gærkvöldi. Erlent 25. maí 2023 11:10
Handalögmál milli þingmanna í þingsal Það kom til slagsmála á þinginu í Síerra Leóne í dag þegar flokkurinn sem er við stjórn í landinu reyndi að koma í gegn breytingum á kosningakerfi landsins. Þingmenn reyndu að slá hvorn annan og grýttu hlutum í kollega sína. Erlent 24. nóvember 2022 23:35
„Margir hafa ekki aðgang að hreinu vatni eða rafmagni“ Esther Hallsdóttir er stödd í Freetown, sem er höfuðborg Síerra Leóne í Vestur-Afríku, þar sem hún vinnur að verkefnum fyrir borgarstjórann. Hún er þar á styrk frá Harvard þar sem hún stundar mastersnám í opinberri stefnumótun (e. public policy) með áherslu á kynjajafnrétti og barnavernd. Lífið 20. júní 2022 06:30
Íslenskur sérfræðingahópur á sviði fiskveiða skoðar samstarf í Síerra Leóne Utanríkisráðuneytið hefur á síðustu misserum unnið að undirbúningi að auknu tvíhliða þróunarsamstarfi við Síerra Leóne en eitt helsta markmiðið er að vinna með stjórnvöldum að nýju verkefni á sviði fiskimála og bláa hagkerfisins. Heimsmarkmiðin 5. apríl 2022 12:34
Leitað að verkefnastjóra fyrir trjáræktarátak í Afríku Rauði krossinn á Íslandi styður trjáræktarátak Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Afríku. Stefnt er að því að planta og verja hundruð milljóna trjáa næsta áratuginn í samræmi við svæðisbundnar áætlanir. Rauði krossinn á Íslandi leitar að verkefna- og samhæfingarstjóra fyrir trjáræktarátakið. Heimsmarkmiðin 3. febrúar 2022 16:45
Hefðin rænir börn æskunni og tækifærum til að mennta sig „Það er gefandi og lærdómsríkt að fá að vinna með Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna og sérstaklega að svo heildstæðum verkefnum eins og að styrkja stöðu stúlkna og ungmenna í landinu. Heimsmarkmiðin 1. febrúar 2022 14:01
Nær 90 prósent framlaga Íslands í þágu jafnréttismála Jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna og stúlkna er sett í öndvegi í þróunarsamvinnustefnu Íslands fyrir tímabilið 2019-2023. Heimsmarkmiðin 10. janúar 2022 13:40
Fékk morðhótun eftir val á landsliðshópi Þjálfarinn John Keister valdi meðal annars Íslands- og bikarmeistarann Kwame Quee í landsliðshóp Síerra Leóne. Ekki voru allir á eitt sáttir með val hans á hópnum. Fótbolti 6. janúar 2022 12:01
Ísland styður verkefni sem miðar að því að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne Fæðingarfistill er ein alvarlegasta og sorglegasta afleiðing barnsfæðinga ungra stúlkna í þróunarríkjum. Heimsmarkmiðin 22. desember 2021 16:08
Íbúar í Tombo geta nú skrúfað frá krana til að fá heilnæmt drykkjarvatn Íslendingar hafa um árabil unnið að verkefnum í Síerra Leóne í samstarfi við sjávarútvegsráðuneytið og UNICEF. Heimsmarkmiðin 19. nóvember 2021 15:14
99 fórust þegar eldsneytisflutningabíll sprakk Minnst 99 fórust og meira en 100 særðust þegar eldsneytisflutningabíll sprakk í kjölfar áreksturs í höfuðborg Síerra Leóne í gærkvöldi. Erlent 6. nóvember 2021 14:41
Stefnt að því að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne á næstu árum Ísland undirbýr nú að auka samstarf við UNFPA með það að markmiði að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne. Heimsmarkmiðin 19. október 2021 13:43
Trjárækt í Sierra Leone til að sporna við áhrifum loftslagsbreytinga og auka fæðuöryggi Verkefnið byggir á þátttöku samfélaga á áherslusvæðum og hefur margþættan tilgang. Heimsmarkmiðin 8. október 2021 13:46
Áframhaldandi stuðningur við uppbyggingu leirkeraverkstæðis í Freetown Styrkurinn er hluti af samstarfi utanríkisráðuneytisins við íslensk félagasamtök í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Heimsmarkmiðin 13. september 2021 14:00
Barnaheill undirbúa þróunarverkefni í Síerra Leone Þróunarverkefnið er styrkt af utanríkisráðuneyti Íslands. Heimsmarkmiðin 27. ágúst 2021 10:34
Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Innlent