Fjórðungur umsækjenda um iðnnám fær synjun Af þeim 2.460 sem sóttu um að komast í iðnnám í haust var 556 hafnað. Samtök iðnaðarins segja nauðsynlegt að fjölga plássum en það hafi ekki gerst þrátt fyrir aukna aðsókn. Innlent 2. nóvember 2023 08:20
Borgin hætti við að láta reyna á blöðruboltamál fyrir Hæstarétti Borgarlögmaður féll frá áfrýjun í skaðabótamáli fyrrverandi leikskólakennara, sem slasaðist í hópefli starfsmanna, daginn áður en málflutningur átti að vera fyrir Hæstarétti. Lögmaður kennarans segir ákvörðun borgarlögmanns hafa komið sér mjög á óvart. Innlent 1. nóvember 2023 16:58
Hjallastefnan ekki innleidd á Árbæ fyrr en næsta skólaár „Hjallastefnan sem hugmyndafræði verður ekki innleidd fyrr en í ágúst á næsta ári, í upphafi nýs skólaárs,“ segir Bóas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Hjallastefnunar, um yfirtökuna á leikskólanum Árbæ á Selfossi. Innlent 1. nóvember 2023 11:59
Aðgangur að námi hefur áhrif á búsetufrelsi Skólastarf hefur haft áhrif á þróun samfélaga um aldir og mun gera það um ókomin ár eins og endurspeglast í menntastefnu til 2030, en þar segir „Menntun er lykill að tækifærum framtíðar og eitt helsta hreyfiafl samfélaga og velsældar mannkyns.“ Þannig má álykta að samkeppnishæfni þjóða byggi á menntun og sama á við um samkeppnishæfni landshluta. Skoðun 1. nóvember 2023 10:01
Foreldrar á Selfossi óánægðir með yfirtöku Hjallastefnu á leikskóla Nokkurrar óánægju gætir meðal foreldra barna á leikskólanum Árbæ á Selfossi, sem fengu tilkynningu 26. október síðastliðinn um að skólinn yrði Hjallastefnuleikskóli frá og með 2. nóvember. Innlent 1. nóvember 2023 08:26
Gagnrýna að sjálfstæðir háskólar fái umtalsvert minna en opinberir háskólar Samtök iðnaðarins gagnrýna að sjálfstæðir háskólar fái mun minna en 75 prósent af þeirri fjárhæðir sem ríkið greiðir til opinberra háskóla fyrir sama árangur í kennslu, rannsóknum og samfélagshlutverki. Hlutfallið er lægra en 75 prósent, sem háskólaráðuneytið hefur sagt að sjálfstæðu háskólarnir fái, því húsnæðiskostnaður er haldið fyrir utan nýtt reiknilíkan. Innherji 31. október 2023 12:30
Falskar ástir (ekki Flóna-lagið) Þegar ég hóf nám við Háskóla Íslands einkenndist samfélagið og kennslan af veirufaraldri. Fáeinum mánuðum síðar flæddi inn í byggingar skólans og sú litla kennsla sem þar var lagðist af. Þá kom upp sú staða að háskólanum vanti milljarð, og nú á síðustu vikum hefur legið fyrir úrskurður áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema þar sem nefndin taldi útreikning þriðjungshluta skrásetningargjalds skólans ekki byggja á fullnægjandi útreikningum. Skoðun 31. október 2023 12:00
Tilfærsla rekstrar grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga hafi skapað ójöfnuð Þrátt fyrir að yfirfærsla rekstrar grunnskóla frá ríkis til sveitarfélaga árið 1996 hafi heilt yfir gengið vel að mati skólaráðgjafa hefur hún skapað ójöfnuð milli sveitarfélaga. Prófessor við Háskólann á Akureyri segir eina lausn að fækka sveitarfélögum. Innlent 30. október 2023 19:24
Sífellt fleiri börn sem þurfa stuðning í grunnskólum Kostnaður vegna stuðningsþjónustu við börn í grunnskólum hefur vaxið mun meira en kostnaður við að fjölga kennurum samkvæmt niðurstöðum nýrrar úttektar á þróun reksturs grunnskóla frá 1996 til 2022. Ráðgjafi segir gríðarlega aukningu í fjölgun stöðugilda vegna stuðningsfulltrúa. Innlent 30. október 2023 13:13
Skólafélagsráðgjöf – til hvers? Undanfarin ár hefur Fagdeild fræðslu- og skólafélagsráðgjafa innan Félagsráðgjafarfélags Íslands bent á mikilvægi þess að starf skólafélagsráðgjafa verði lögbundið. Auk þess hafa verið lagðar fram tillögur til þingsályktunar um ráðningu þeirra í alla grunn- og framhaldsskóla landsins og nú síðast á 153. löggjafarþingi 2022-2023 sem því miður hlaut ekki brautargengi. Skoðun 30. október 2023 11:01
Bein útsending: „Reynslunni ríkari“ – málþing um skólamál Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþingi um skólamál í dag þar sem fjallað er um reynsluna að yfirfærslu grunnskóla frá ríkisins til sveitarfélaga. Málþingið hefst klukkan 9:30 og verður hægt að fylgjast með í spilara að neðan. Innlent 30. október 2023 09:00
Útskrifaðist með áttundu háskólagráðuna 74 ára gömul Kristín Thorberg útskrifaðist með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri síðastliðið vor. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Kristín fagnar 75 ára afmæli sínu á næstunni og lögfræðigráðan var hennar áttunda háskólagráða. Hún er hvergi nærri hætt. Innlent 30. október 2023 07:00
Sérhæfð sjúkraþyrla og akstursleiðir skólabíla á Suðurlandi Sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi leggja mikla áherslu á að sérhæfðri sjúkraþyrlu verði komið fyrir á Suðurlandi og verði hluti af starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Þá skora sveitarstjórnarmenn á innviðaráðherra að allar akstursleiðir skólabíla verði bundnar slitlagi innan þriggja ára til að tryggja öryggi leik- og grunnskólabarna. Innlent 29. október 2023 13:30
Hátt í 700 börn á bið eftir fullu plássi á frístundaheimili Alls bíða hátt í 700 börn eftir fullu plássi á frístundaheimili í Reykjavík. Hluti þessara barna er með vistun hluta dags. Flest börn bíða eftir plássi á frístundaheimilum sem tilheyra Austurmiðstöð. Enn á eftir að manna 52,3 stöðugildi. Búið er að manna 82,6 prósent grunnstöðugilda. Innlent 28. október 2023 08:01
Skrásetningargjöld við Háskóla Íslands eru ólögmæt Stúdentaráð Háskóla Íslands hélt blaðamannafund fyrr í dag í tilefni úrskurðar áfrýjunarnefndar kærumála háskólanema, sem birtist 5. október síðastliðnum. Leiddi sá úrskurður í ljós að skrásetningargjöld við Háskóla Íslands eru ólögmæt. Skoðun 27. október 2023 16:30
Niðurstaðan kveði ekki á um endurgreiðslu skrásetningargjalds Háskólaráðherra segir nýjan úrskurð ekki kveða á um endurgreiðslu skrásetningargjalda né að það sé í heild sinni ólögmætt. Stúdentaráð hefur krafið háskólann um endurgreiðslu. Innlent 27. október 2023 14:31
Hafa sent HÍ kröfu um endurgreiðslu aftur til 2014 Stúdentaráð Háskóla Íslands krefst þess að háskólinn endurgreiði skráningargjöld við skólann sem greidd hafi verið af öllum nemendum undanfarin ár. Skoða þurfi hve langt aftur krafan nái en hún nái nokkur ár aftur í tímann. Fulltrúi Vöku, í minnihluta í Stúdentaráði segist efast um að endurgreiðsla sé það besta fyrir stúdenta. Innlent 27. október 2023 12:03
Segir gjaldið ekki ólögmætt og mikilvægt að forðast misskilning Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir mikilvægt að niðurstaða Áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema sé ekki rangtúlkuð eða misskilin. Innlent 27. október 2023 07:14
Reynsla mín af gervigreind í menntaskólakennslu Nýlegar framfarir í gervigreind hafa kallað fram breytingar á ýmsum sviðum samfélagsins og eru skólar þar engin undantekning. Í nýlegum þætti Kveiks á RÚV voru áhrifum gervigreindar á skólasamfélagið gerð góð skil og hefur sú umfjöllun fengið okkur til umhugsunar um hvort íslenskum skólum takist yfir höfuð að mæta nútímalegum þörfum nemenda. Skoðun 26. október 2023 07:01
Hafnarfjarðarbær þurfti ekki að greiða matarkostnað einkaskólabarns í Covid Hafnarfjarðarbæ var heimilt að synja foreldrum grunnskólabarns um greiðslu matarkostnaðar barnsins þeirra á meðan samkomubann vegna Covid-19 varði. Foreldrarnir höfðu farið fram á að bærinn greiddi matarkostnað barnsins, sem var nemandi í einkareknum grunnskóla, eins og það gerði fyrir börn sem gengu í skóla rekna af sveitarfélaginu. Innlent 25. október 2023 12:58
Af dyggðaskreytingu Reykjavíkurborgar Mannekla á leikskólum Reykjavíkurborgar er ekki ný af nálinni. Borgarstjórarnir okkar tveir hafa farið mikinn í fjölmiðlum og við foreldra leikskólabarna um hvernig þeir hyggjast ætla að bæta úr þessum vanda með ýmiskonar aðgerðum en allt kemur fyrir ekki, það næst ekki að ráða í stöður á nýju leikskólunum sem hafa verið byggðir og þeir leikskólar sem eru nú þegar starfræktir eru margir hverjir illa mannaðir. Skoðun 23. október 2023 12:01
„Mér fannst ég vera algjörlega besti starfsmaður í heimi“ „Mér fannst ég vera algjörlega besti starfsmaður í heimi. Það gekk svo vel. En einn daginn bankaði stjórnarformaðurinn upp á heima hjá mér og ég var rekin,“ segir Björg Ingadóttir og skellihlær. Atvinnulíf 23. október 2023 07:30
En þori ég, vil ég, get ég? Á þriðjudaginn verða 48 ár síðan 24. október 1975 rann upp. Sá sögulegi dagur þegar um 90% kvenna á Íslandi lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi kvenna á vinnumarkaði og um leið krefjast sömu réttinda og launakjara og karlar höfðu. Skoðun 20. október 2023 07:31
Ellefu ára drengur viðriðinn báðar stíflueyðisárásir Lögregla hefur tekið skýrslur af tveimur drengjum, fæddum árin 2011 og 2012, í tengslum við tvær aðskildar stíflueyðisárásir á skólalóð Breiðagerðisskóla í Reykjavík. Sá sem er fæddur árið 2012 er viðriðinn báðar árásir. Innlent 19. október 2023 16:07
Persónuvernd og skólamál Nokkur umræða hefur verið í þjóðfélaginu undanfarin misseri þar sem fram hafa komið rangfærslur sem lúta að því að Persónuvernd hafi, með niðurstöðum sínum, sett tækninotkun og framþróun í skólastarfi í upplausn. Persónuvernd er ekki hafin yfir málefnalega gagnrýni en gildishlaðnar alhæfingar og að skjóta sendiboðann hefur sjaldan reynst vel. Skoðun 19. október 2023 13:30
Fólkinu sem kom stúlkunni til bjargar er verulega brugðið Stíflueyðir sem ungmenni köstuðu í andlit tólf ára stúlku á skólalóð Breiðagerðisskóla í Reykjavík hefur verið tekinn úr sölu í verslunum Hagkaups. Framkvæmdastjóri Foreldrahúss segir foreldra verða að fylgjast með því sem börn þeirra horfa á á samfélagsmiðlum. Fólkinu sem kom stúlkunni til bjargar var verulega brugðið. Innlent 19. október 2023 09:21
Atvikið í Breiðagerðisskóla sé áminning til foreldra Unnur Freyja Víðisdóttir, sérfræðingur í miðlalæsi hjá Fjölmiðlanefnd, segir að atvik þar sem stíflueyðisdufti var skvett í andlit grunnskólastúlku vera áminningu til foreldra um að fylgjast með netnotkun barnanna sinna. Þau beri ábyrgð á börnunum sínum. Innlent 18. október 2023 20:12
Ekki enn ljóst hvort stúlkan hafi hlotið varanlegan skaða Stúlka, sem varð fyrir árás pilta sem hentu stíflueyðisdufti í andlit hennar á mánudagskvöld, dvaldi lengi fram eftir nóttu á bráðadeild þar sem reynt var að bjarga sjón hennar og tryggja að skaði yrði ekki í öndunarfærum. Ekki er enn ljóst hvort stúlkan muni hljóta varanlegan skaða af. Innlent 18. október 2023 15:10
Foreldrar – ábyrgðin er okkar Við lifum í stafrænum heimi þar sem hátt hlutfall grunnskólabarna eiga sinn eigin farsíma og eru þar af leiðandi með allar heimsins upplýsingar í vasanum. Nýlegir atburðir hafa undirstrikað hversu mikilvægt það er að við foreldrar fylgjumst vel með netnotkun barnanna okkar. Skoðun 18. október 2023 15:00
Stíflueyðirinn tekinn úr sölu og aldurstakmörk til skoðunar Forstjóri Haga, sem rekur meðal annars verslanir Hagkaups, segir stíflueyði sem ungmenni köstuðu í andlit tólf ára stúlku á mánudagskvöldi á skólalóð á höfuðborgarsvæðinu hafa verið tekinn rakleiðis úr sölu eftir að upp komst um atvikið. Innlent 18. október 2023 12:26