Karl Axelsson hæstaréttardómari orðinn prófessor við HÍ Karl Axelsson, dómari við Hæstarétt, er orðinn prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Undanfarið hafa dómarar við réttinn sætt gagnrýni vegna aukastarfa sinna utan dómstólanna og töluverð umræða skapast um það fyrirkomulag. Innlent 12. október 2021 16:31
Háskólanám fyrir útvalda Stúdentar við Háskóla Íslands hafa margir hverjir þurft að berjast í bökkum eins og aðrir þjóðfélagshópar vegna heimsfaraldursins sem hefur geisað, faraldurinn hefur gefið og tekið á mis. Skoðun 12. október 2021 08:00
Allt skólahald færist í Fossvogsdalinn næsta haust Skólastarf í Fossvogsskóla mun allt fara fram í Fossvogsdal frá og með næsta skólaári. Ráðist verður í umfangsmiklar framkvæmdir á húsnæði skólans til þess að komast fyrir mygluvandræði sem plagað hafa skólastarfið að undanförnu. Innlent 11. október 2021 18:18
Háskóli Íslands eða Háskóli höfuðborgarsvæðisins? „Við erum ábyrg og meðvituð um samfélagslegt mikilvægi skólans.” Þessi setning stendur framarlega í stefnu Háskóla Íslands 2021 - 2026. Nafn skólans gefur það til kynna, eins og setningin hér að ofan að skólin þjóni samfélaginu öllu en því miður er það svo að ekki allir hafi jafnan aðgang að náminu. Skoðun 11. október 2021 13:30
Hundrað og sautján nemendur og tuttugu starfsmenn í sóttkví Hundrað og sautján nemendur Salaskóla eru í sóttkví og tuttugu starfsmenn. Það er eftir að fjórir greindust smitaðir af Covid-19 um helgina. Innlent 11. október 2021 13:23
Doktorsnám og nýtt starf: „Hef lært að maður þarf sjálfur að koma sér á framfæri“ „Ég var alls ekki að leita eftir því að fara í doktorsnám heldur kom sú hugmynd frá leiðbeinandanum mínum, Þresti Olaf Sigurjónssyni, þegar ég var að klára meistaranámið. Hann benti mér á að það væri vel hægt að blanda doktorsnámi og rannsóknum saman við starf hjá fyrirtækjum og hann hvatti mig til að skoða þann möguleika,“ segir Hildur Magnúsdóttir nýráðin viðskiptastjóri hjá DecideAct. Atvinnulíf 11. október 2021 07:00
Úndína rannsakar magasár í íslenskum hestum Íslenskur dýralæknanemi er í fyrsta skipti að gera skipulagða rannsókn á tíðni magasára í íslenskum hrossum, en margt hefur verið á huldu um sjúkdóminn. Kannað er sérstaklega hvaða áhrif ýmsir umhverfisþættir hafa á kvillan. Innlent 10. október 2021 20:06
Náðu að knýja fram upphitaðan körfuboltavöll Upphitaður körfuboltavöllur, frisbígolf og slökunarherbergi er á meðal þess sem krakkar í lýðræðisþingi í Stykkishólmi hafa beitt sér fyrir, kosið um og komið í gegn á undanförnum misserum. Krakkarnir segja mikilvægt að þeirra rödd fái líka að heyrast í samfélaginu en eru ekkert endilega vissir um að þá langi á þing. Innlent 10. október 2021 14:31
MR vann Söngkeppni framhaldsskólanna Menntaskólinn í Reykjavík bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ í kvöld. Fyrir hönd skólans flutti Jóhanna Björk Snorradóttir lagið Distance eftir Yebba. Tónlist 9. október 2021 22:47
Sigyn nýr Réttindaskólastjóri og vill stofna Réttindaleikskóla Sigyn Blöndal tók nýverið til starfa sem Réttindaskólastjóri UNICEF á Íslandi. Verkefnið miðar að því að skólar, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar auki fræðslu barna um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Viðskipti innlent 8. október 2021 14:31
Fjölgar í einangrun en fækkar í sóttkví á Akureyri 116 manns eru í einangrun á Akureyri vegna Covid-19. Þeir sem eru í sóttkví fækkar hins vegar verulega á milli daga. Langflestir af þeim eru í sóttkví í bænum eru nemendur eða starfsfólk grunnskóla. Innlent 8. október 2021 11:37
„Ég var með gæsahúð í þrjá tíma“ Af 1200 hraðprófum sem voru tekin fyrir Verslóball í gær greindist ekkert jákvætt. Allir komust því inn sem vildu og það er vonandi að raunin verði sú sama á balli hjá Menntaskólanum í Kópavogi í kvöld, þar sem ballbanni hefur verið aflétt. Innlent 7. október 2021 23:20
Lokun spilakassa muni ekki leiða til skólagjalda Lokun spilakassa myndi ekki hafa áhrif á skólagjöld, að sögn rektors Háskóla Íslands. Formaður Happdrættis Háskóla Íslands hefur hins vegar lýst því yfir að lokun spilakassa myndi leiða af sér umfangsmiklar hækkanir á skólagjöldum. Innlent 7. október 2021 19:20
Upplýstir foreldrar = Virkir foreldrar Nú eru flestir skólar komnir með starfið í fastar skorður eftir óvissu í upphafi skólaárs vegna faraldursins. Það er ekki annað hægt en að hrósa skólastjórnendum, kennurum, foreldrum og auðvitað nemendum með hvernig tekist var á við þær áskoranir sem birtust oft með skömmum fyrirvara. Skoðun 7. október 2021 16:01
Þurfa aftur í sjö daga sóttkví eftir einn dag í skólanum Átta nemendur í fjórða bekk Brekkuskóla á Akureyri þurfa aftur í sjö daga sóttkví eftir að hafa náð einum degi í skólanum í gær, að lokinni sjö daga sóttkví. Innlent 7. október 2021 13:39
Hitti nemendur á Forvarnardeginum eftir að hafa losnað úr smitgát Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, losnaði úr smitgát skömmu fyrir hádegi í gær og fór þá og hitti nemendur í Laugalækjarskóla og Menntaskólanum í Kópavogi í tilefni af Forvarnardeginum. Lífið 7. október 2021 12:41
Kennarinn er sérfræðingur Framundan eru formannskosningar í Kennarasambandi Íslands en þar er undir svo sannarlega stórt og mikilvægt hlutverk fyrir íslenskt samfélag! Skoðun 7. október 2021 12:00
Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi 2021 Haustráðstefna Stjórnvísi fer fram á Grand Hotel milli klukkan níu og ellefu í dag. Þema ráðstefnunnar er Nýtt jafnvægi. Viðskipti innlent 7. október 2021 08:31
Þau eru tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna Tilkynnt var um tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna í tilefni af Alþjóðlega kennaradeginum í gær. Innlent 6. október 2021 14:53
Vona að skýr skilaboð smitrakningarteymisins skili eðlilegu skólastarfi eftir helgi Skólastjórnendur á Akureyri vonast til þess að skólastarf geti farið að vera með eðlilegum hætti undir lok vikunnar eða í byrjun næstu viku eftir Covid-19 hópsýkingu sem blossað hefur upp í bænum. Skýr skilaboð frá smitrakningarteyminu skýri þann mikla fjölda sem er í sóttkví á svæðinu. Innlent 6. október 2021 13:30
Góðvild: Tækifæri ungs fatlaðs fólks óásættanleg „Ég hef tekið þátt í því sem bæði kennari og skólastjóri að kljást við kerfið vegna aðstæðna barna og ungmenna sem mér hefur oft á tíðum þótt frekar óréttlátt,“ segir Sara Dögg Svanhildardóttir í Spjallinu við Góðvild. Lífið 6. október 2021 13:05
Alltaf til staðar „Starf [kennara] er að vekja alt, sem í barnahug er bundið, og leiða það í spor þau, er liggja börnum til gleði og farsældar og þjóð allri til þrifa.“ Skoðun 5. október 2021 14:00
Fjögur í framboði til formanns Kennarasambandsins Fjögur bjóða sig fram til formanns Kennarasambands Íslands, en frestur til að bjóða sig fram rann út á miðnætti í gær. Áður hafði verið greint frá því að formaðurinn Ragnar Þór Pétursson myndi ekki bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku. Innlent 5. október 2021 11:19
Um eitt þúsund í sóttkví á Akureyri Nærri eitt þúsund manns eru í sóttkví á Akureyri þar sem 78 hafa greinst með kórónuveiruna. Skólastarf hefur raskast mikið og íþróttamót sem halda átti um helgina hefur verið frestað. Heilbrigðisráðherra fer nú yfir nýtt minnisblað sem sóttvarnalæknir sendi honum í gær. Innlent 5. október 2021 11:15
Loka leikskólanum Efstahjalla í Kópavogi vegna myglu Leikskólinn Efstihjalli í Kópavogi verður lokaður frá og með morgundeginum vegna myglu og rakaskemmda sem komið hafa í ljós í skólanum. Bæjaryfirvöld segja að starfsemi skólans falli niður í tvo daga meðan unnið er að endurskipulagningu. Innlent 4. október 2021 19:08
Næsti formaður KÍ? Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til formennsku í Kennarasambandi Íslands. Þegar þessi orð eru rituð, einum degi áður en frestur til að tilkynna um framboð rennur út, er ég einn fjögurra frambærilegra frambjóðenda. Skoðun 4. október 2021 08:02
Enginn skóli á morgun: Stofnanir á Húsavík lokaðar vegna smita Skólahald í Borgarhólsskóla á Húsavík fellur niður á morgun og þriðjudag vegna kórónuveirusmita meðal nemenda og starfsfólks. Þá verður Stjórnsýsluhúsið í bænum einnig lokað á morgun vegna smits. Innlent 3. október 2021 23:24
Magnús sækist eftir formannsembættinu Magnús Þór Jónsson, formaður Félags skólastjórnenda í Reykjavík, ætlar að gefa kost á sér í embætti formanns Kennarasambands Íslands. Magnús Þór segist hafa fengið áskoranir síðustu daga og vikur en hann hefur unnið við kennslu frá 1994. Innlent 3. október 2021 13:34
Ofbeldisforvarnarskólinn stendur fyrir söfnun Söfnun stendur nú yfir á vegum ofbeldisforvarnarskólans en í dag er alþjóðadagur ofbeldisleysis. Sjónum er nú sérstaklega beint að forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi. Innlent 2. október 2021 12:30
Jöfn tækifæri til náms fyrir öll börn Mætum börnum þar sem þau eru óháð greiningum. Verum fyrri til og styðjum við þau og styrkjum áður en þau hrasa. Grípum þau sem þess þurfa. Höldum á sama tíma vel utan um peningana og pössum að þeir nýtist börnunum okkar sem allra best. Þetta eru allt áherslur í Eddu, sem er nýtt úthlutunarlíkan fyrir grunnskóla í Reykjavík og var samþykkt í vikunni. Skoðun 2. október 2021 09:00