
Lagfæringar á Fossvogsskóla taldar kosta rúma 1,6 milljarða íslenskra króna
Áætlað er að kostnaður við lagfæringar og endurbætur á Fossvogsskóla nemi meira en 1.640 milljónum króna. Borgarráð samþykkti heimild til útboðs á framkvæmdunum í dag.
Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.
Áætlað er að kostnaður við lagfæringar og endurbætur á Fossvogsskóla nemi meira en 1.640 milljónum króna. Borgarráð samþykkti heimild til útboðs á framkvæmdunum í dag.
Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti í dag að leggja nítján milljónir króna í að flytja starfsemi Myllubakkaskóla á fjóra staði í bænum tímabundið á meðan unnið er á úttekt á húsnæði hans. Myglu varð fyrst vart í skólanum árið 2019 og hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana síðan. Þær aðgerðir hafa ekki skilað tilætluðum árangri, því enn greindist mygla í skólanum í síðasta mánuði.
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að stórauka fjárframlög til viðhalds og viðgerða á skólahúsnæði í borginni. Stendur til að verja 25 til 30 milljörðum til málaflokksins sem er áætluð fjárþörf átaksins á næstu fimm til sjö árum.
Alexandra Tómasdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Keilis, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs og hefur hún þegar hafið störf.
Oddvitar þeirra flokka sem mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur hafa boðað til blaðamannafundar í RáðhúsiReykjavíkur í dag þar sem áætlun um viðhald skólahúsnæðis í Reykjavík verður kynnt. Fundurinn hefst klukkan 13:15.
Smituðum einstaklingum fjölgar nú hratt á Akranesi og hefur bæjaráð gripið til þess ráðs að fella niður alla starfsemi í skólum á morgun. Lágmarksstarfsemi verður á öðrum stofnunum bæjarins. Bæjarstjóri segir að um sé að ræða nauðsynlega aðgerð.
Alls greindust fimmtíu manns með Covid-19 á Akranesi í gær að því er Lögreglan á Vesturlandi greinir frá. Allir skólar í bænum verða lokaðir á morgun.
Í Hafnarfirði starfa tæplega 600 starfsmenn á leikskólum bæjarins. Hlutfall leikskólakennara er 26%. Í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ er staðan svipuð. Á Íslandi er nánast enginn leikskóli sem uppfyllir þau skilyrði í lögum þar sem kveðið er um að 2/3 hlutar þeirra er sinna uppeldi og menntun í leikskólum eigi að hafa leyfisbréf kennara.
Auðmýkt er lykilhugtak í leiðtogafræðum nútímans. Í þeim fræðum telst einnig til ótvíræðra kosta að hlusta meira en maður talar. Ég hef reynt að temja mér hvort tveggja.
Þriðja undanúrslitakvöld Skrekks 2021 fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld og fór svo að Austurbæjarskóli og Árbæjarskóli komust áfram.
Stjórnendur Fjölbrautaskóla Vesturlands (FVA) hafa ákveðið að loka skólanum og skipta yfir í fjarkennslu fram að helgi vegna kórónuveirusmita sem hafi mögulega breiðst þar út.
Nú kjósum við formann í Kennarasambandi Íslands í byrjun nóvember. Magnús þór Jónsson hefur boðið fram starfkrafta sína og óskað eftir stuðningi okkar kennara. Ég segi Já Maggi! Ég þigg með þökkum þína starfskrafta til að gegna þessu vandasama hlutverki.
Hagaskóli og Seljaskóli voru hlutskarpastir á öðru undanúrslitakvöldi Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík í kvöld. Tvö hundruð og tuttugu ungmenni frá átta grunnskólum tóku þátt í kvöld.
Ókyngreind salerni má nú finna í um það bil þremur af hverjum fjórum byggingum Háskóla Íslands. Skólinn hefur verið gagnrýndur fyrir að bjóða ekki upp á slíkt alls staðar.
Að vera kennari, vinna með börnum og ungmennum, vakna snemma til að taka glaðhlakkalega á móti einstaklingum með soðið kaffi í hendi og bros á vör eru algjör forréttindi.
Nú eru hafnar formannskosningar í einu stærsta stéttar- og fagfélagi landsins, Kennarasambandi Íslands. Fjórir mjög frambærilegir einstaklingar hafa boðið sig fram til formennsku og á vef KÍ er einnig að finna kynningu á frambjóðendum.
Starfsmenn grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kærðir til lögreglu vegna meðferðar barns í skólanum. Umboðsmaður Alþingis er með innilokanir barna og önnur brot á réttindum þeirra til skoðunar eftir að hafa fengið fjölda ábendinga um slíkt.
„Það vantar miklu meiri áherslu og kraft frá yfirstjórn Landspítalans að eitt af meginmarkmið spítalans sé virkilega að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð. Þá þarf náttúrulega reksturinn og annað að snúast um það að styrkja og hlúa að vísindunum. Þetta er grafalvarleg staða.“
Kaupmáttur háskólamenntaðra hefur aukist talsvert minna en kaupmáttur annarra hópa frá 2019. Hækkaði launavísitalan allt að tvöfalt meira hjá láglaunahópum innan ASÍ og BSRB en launavísitala háskólamenntaðra með millitekjur hjá BHM og Kennarasambandi Íslands.
Farsæld hverrar þjóðar býr í nútímanum og því samfélagi sem hún býr sér en fjöreggið er alltaf það hvernig grunnur er lagður til vaxtar í framtíðinni.
Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hefur staðfest að embættið sé að rannsaka mál er varðar ofbeldi gegn barni í skóla á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrsta undanúrslitakvöld Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík, fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Sjö grunnskólar tóku þátt í kvöld og komust Fellaskóli með atriðið Hvað er að gerast sem fjallaði um Covid-19 og Laugalækjarskóli með atriðið Á bak við brosið sem fjallar líkamsvirðingu áfram í úrslit.
Frambjóðendurnir fjórir til formanns Kennarasambands Íslands eru sammála um að umfjöllun um menntamál hér á landi sé allt of neikvæð. Þá geri pólitíkin kennurum erfitt fyrir með sífelldum breytingum á tíu ára fresti. Líflegar umræður spunnust í Pallborðinu á Vísi um menntamál í dag.
Fjögur gefa kost á sér í embætti formanns Kennarasambands Íslands. Formannsefnin mæta í Pallborðið í dag og ræða stöðuna í menntamálum hér heima og hvernig þau sjá fyrir sér að leiða kennara næstu árin.
Ég fór í Borgarleikhúsið að sjá sýninguna 9 líf á dögunum og var upprifin. Í verkinu er rakin saga okkar ástsæla Bubba Morthens, þjóðareign að gefnu tilefni. Það er hvert mannsbarn hér á landi með tengingu við hann og þá sérstaklega tónlistina hans, hvort sem við erum aðdáendur eða ekki. En svo er líka önnur tenging sem stór hópur á við söguna hans Bubba, sú tenging er kannski heldur falin. Eða jafnvel týnd?
Fleiri karlkyns nemendur eru nú skráðir í framhaldsskólanám en kvenkyns. Hlutfall karlkyns nemenda eru 53% á móti 47% kvenkyns nemendum. Í tölfræðinni er ekki gert ráð fyrir öðrum kynjum.
Skólakerfið er mikilvægt og gefandi fyrir okkur öll, foreldra, nemendur og samfélagið allt.
Daglega er verið að brjóta á réttindum barna í leikskólum landsins af hálfu stjórnvalda. Ég heyri víðsvegar kveðið af starfsfólki, að of mörg börn, dvelji of lengi, í of litlu rými, og mig langar að bæta við að börn búa við of litla faglega athygli
Neysla íslenskra ungmenna á orkudrykkjum, sem innihalda koffín, er með því mesta sem þekkist í Evrópu og er vægi orkudrykkja í heildarkoffínneyslu íslenskra ungmenna mun meira en sést í sambærilegum erlendum rannsóknum.
Um 9,5% einstaklinga á aldrinum 16 til 24 ára eru hvorki í námi né vinnu. Þetta er sama hlutfall og stóð utan menntakerfisins og vinnumarkaðarins árin 2014 og 2015 en fækkun varð í hópnum árin 2016 til 2018.