Hershöfðingjar funda um mögulegt vopnahlé Hershöfðingjarnir Mohamed Hamdan Daglo og Abdel Fattah al-Burhan hafa samþykkt að hittast til að reyna að binda enda á blóðuga styrjöld í Súdan. Gífurleg óreiða hefur ríkt í Súdan undanfarna mánuði og hafa þúsundir fallið vegna átaka hershöfðingjanna og sveita þeirra. Erlent 11. desember 2023 12:45
Martraðarástand í Súdan og níu þúsund fallnir Allt að níu þúsund manns hafa fallið á undanförnum sex mánuðum í Súdan og mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur lýst mannúðarástandinu við martröð. Aðstæður almennings í Súdan hafa versnað til muna á undanförnum mánuðum. Erlent 16. október 2023 09:10
Tugir fallnir í drónaárás á markað í Khartoum Að minnsta kosti 43 eru sagðir fallnir og tugir til viðbótar særðir eftir drónaárás á útimarkað í Khartoum, höfuðborg Súdans, í gær. Vopnuð átök geisa á milli stjórnarhersins og vopnaðrar sveitar en hvorug fylkingin vill taka ábyrgð á ódæðinu. Erlent 11. september 2023 09:18
Sextíu kornabörn látist við hræðilegar aðstæður Að minnsta kosti sextíu nýburar, kornabörn og ung börn hafa látist við hræðilegar aðstæður á munaðarleysingjahæli í súdönsku höfuðborginni Kartúm á undanförnum sex vikum. Erlent 1. júní 2023 08:41
Hart barist um flugvöllinn í Kartúm Harðir bardagar geisa í Kartúm, höfuðborg Súdans, þar sem sveitir valdamikils vopnahóps sem kallast RSF reyna að sækja að helsta flugvelli hersins í borginni. Flugvöllurinn hefur verið notaður til loftárása á sveitir RSF, sem hafa engan flugher. Erlent 21. maí 2023 14:59
Óttast hrun heilbrigðiskerfisins í Súdan Heilbrigðisstarfsmenn í Súdan segja innviði landsins að hruni komna. Lík safnast upp á götum úti í höfuðborginni Khartoum, fólk hefur neyðst til að drekka mengað vatn og skortur er á mat og eldsneyti. Erlent 2. maí 2023 07:29
Jemenar og Sýrlendingar sitja eftir með sárt ennið Sádi-Arabar hafa unnið hörðum höndum við að koma fólki frá Súdan vegna átaka sem geisa yfir þar í landi. Einungis eru það ríkisborgarar annarra landa en Súdan sem þeir taka á móti en þúsundir manna hafa beðið í höfninni svo dögum skiptir með von um að komast úr landi. Erlent 1. maí 2023 11:33
Samið um vopnahlé sem er þó frekar í orði en á borði Alþjóðadeild Rauða krossins tókst að senda hjálpargögn til Súdan í dag en áframhaldandi átök gera mannúðarstarfi erfitt fyrir. Samið hefur verið um vopnahlé en loftárásir á Kartúm, höfuðborg landsins, hafa samt sem áður haldið áfram linnulaust. Þörf sé á tafarlausu vopnahléi sem báðar fylkingar þurfi að virða Erlent 30. apríl 2023 23:41
Vopnahlé brotið í Súdan Átök í Súdan hófust aftur snemma í morgun eftir nokkurra daga vopnahlé. Heyra mátti sprengingar í höfuðborginni Khartoum og nærliggjandi borgum. Erlent 29. apríl 2023 10:00
Súdanski herinn sagður hafa rofið vopnahlé Vígasveitir RSF segja súdanska stjórnarherinn hafa rofið vopnahlé sem samþykkt var seint í gærkvöldi. Skothvellir hafa heyrst í höfuðborginni Khartoum og í Omdurman í dag. Bresk stjórnvöld hafa biðlað til ríkisborgara sinna að halda þegar í stað á flugvöll norður af höfuðborginni þaðan sem þeim verður flogið beinustu leið til Kýpur og svo Bretlands. Erlent 25. apríl 2023 14:43
Vopnahlé í Súdan Stríðandi fylkingar í Súdan féllust í dag á málamiðlun Bandaríkjanna um 72 tíma vopnahlé til að hægt sé að koma almennum borgurum í Súdan til aðstoðar. Vopnahléð hófst á miðnætti að staðartíma. Erlent 24. apríl 2023 23:40
Flytja bandaríska erindreka frá Khartoum í skugga átaka Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur skipað nokkrum tugum bandarískra erindreka og fjölskyldum þeirra að yfirgefa Khartoum, höfuðborg Súdan, þar sem blóðug átök geisa á milli stríðandi fylkinga. Bandarískir hermenn sóttu fólkið á þremur herþyrlum við sendiráðið snemma í morgun. Erlent 23. apríl 2023 07:38
Bandaríkjamenn vara stríðandi fylkingar við eftir árás á diplómata Bílalest bandarískra diplómata varð fyrir árás í Súdan í gær en hörð átök geysa nú í landinu á milli stríðandi fylkinga. Enginn mun þó hafa særst í árásinni að sögn Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Erlent 18. apríl 2023 07:45
Átökin í Khartoum breiðast út um allt Súdan Hörð átök geysa nú um allt Afríkuríkið Súdan þar sem stríðandi hópar takast nú á um völdin. Erlent 17. apríl 2023 07:33
Óljóst hver stjórnar Súdan eftir átök dagsins Hörð átök brutust út milli súdanska hersins og valdamikils vopnahóps í Kartúm, höfuðborg Súdan, í morgun, hvar íbúar við sprengingar og skothríð. Hermenn hafa barist við meðlimir hóps sem kallast RSF, en óljóst er hver fer með stjórn ríkisins að svo stöddu. Erlent 15. apríl 2023 20:46
Kokkur Pútíns játar að eiga Wagner Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hefur viðurkennt að hafa stofnað og eiga málaliðahópinn Wagner Group. Hann segist hafa stofnað hópinn eftir innrás Rússa í Úkraínu 2014 og með því markmiði að senda málaliða til austurhluta Úkraínu. Erlent 26. september 2022 10:24
Verði grýtt til dauða fyrir hjúskaparbrot Súdönsk kona hefur verið dæmd til að vera grýtt dauða fyrir hjúskaparbrot en dómurinn er sá fyrsti af þessu tagi í Súdan í níu ár. Mannréttindastofnanir segja dóminn brjóta innlend og alþjóðleg lög og krefjast frelsunar konunnar. Erlent 13. júlí 2022 14:46
Er á leið á HM með Ástralíu eftir að hafa fæðst í flóttamannabúðum Saga Ástralans Awer Mabil er nokkuð ólík flestum þeim sem munu taka þátt á HM í fótbolta sem fram fer í Katar undir lok þessa árs. Hinn 26 ára gamli Ástrali fæddist nefnilega í flóttamannabúðum í Malí í september árið 1995. Fótbolti 16. júní 2022 10:01
Fyrsta mál einstaklings tengt Darfúr til kasta Alþjóðlega stríðsglæpadómstólsins Réttarhöld í máli Ali Muhammad Ali Abd-Al-Rahman, leiðtoga súdansks uppreisnarhóps, hófust hjá Alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum í Haag í morgun. Um er að ræða fyrsta mál einstaklings sem fer fyrir dómstólinn og tengist ódæðum í Darfúr-héraði í Súdan fyrr á öldinni. Erlent 5. apríl 2022 14:04
Forsætisráðherrann hættir eftir mótmæli síðustu daga Forsætisráðherra Súdans hefur sagt af sér embætti en síðustu daga hafa þúsundir mótmælt ríkisstjórn hans í höfuðborginni Khartoum. Erlent 3. janúar 2022 08:29
Tveir sænskir olíuforstjórar ákærðir vegna stríðsglæpa í Súdan Sænskir saksóknarar hafa ákært tvo stjórnendur olíufyrirtækisins Lundin fyrir aðild að stríðsglæpum sem súdanski herinn framdi á árunum 1999 til 2003. Þetta er í fyrsta skipti sem stjórnendur fyrirtækja eru ákærðir fyrir slíka glæði frá því í Nuremberg-réttarhöldunum yfir nasistum og samverkamönnum þeirra. Viðskipti erlent 11. nóvember 2021 13:29
Alþjóðabankinn stöðvar fjárhagsaðstoð til Súdan Alþjóðabankinn og hefur nú stöðvað fjárhagsaðstoð til Súdan eftir að herinn framdi þar valdarán á mánudag og handtók nokkra ráðherra landsins. Erlent 27. október 2021 16:39
Loka fyrir flugumferð og forsætisráðherrann sagður heill á húfi Flugmálastofnun Súdan hefur lokað fyrir alla umferð um alþjóðaflugvöllinn í höfuðborginni Khartoum þar til á laugardag vegna ástandsins sem ríkir í landinu. Súdönsk lofthelgi er þó enn opin hjáumferð. Erlent 26. október 2021 16:36
Bandaríkin fordæma valdaránið og krefjast þess að ráðherrum sé sleppt Bandaríkjamenn hafa fordæmt valdaránið í Súdan en í gær tóku yfirmenn hersins völdin í landinu af bráðabirgðastjórn sem komið var á eftir fall einræðisherrans Omars al-Bashir árið 2019. Erlent 26. október 2021 07:07
Minnst þrír hafi fallið í valdaráni súdanska hersins Súdanski herinn hefur tekið völd í landinu og handtekið ráðherra. Mikil átök hafa verið milli hersins og mótmælenda og talið að minnst þrír hafi fallið í óeirðum í dag. Minnst áttatíu eru særðir eftir átök dagsins. Erlent 25. október 2021 16:16
Ráðherrar handteknir af hernum í Súdan Nokkrir ráðherrar úr bráðabirgðastjórn Súdans voru handteknir á heimilum sínum í nótt og svo virðist sem herinn í landinu hafi framið valdarán. Erlent 25. október 2021 06:43
Berjast þarf fyrir hverju einasta barni í heiminum 117 milljónir barna í heiminum þurfa á mannúðaraðstoð að halda til að lifa af árið 2021. Flest þeirra búa í Jemen eða um tæplega 11 milljón börn. Heimsmarkmiðin 28. janúar 2021 11:58
Biðla til stjórnvalda að semja um vopnahlé Hjálparstofnanir hafa kallað eftir því að vopnahlé taki gildi þegar í stað svo að þær geti fært almennum borgurum í Tigray-héraði í norðurhluta Eþíópíu vistir, þar sem eþíópíski herinn og stjórn Tigray-héraðs hafa tekist á undanfarnar tvær vikur. Erlent 20. nóvember 2020 23:31
Alvarlegt mannúðarástand í uppsiglingu í Eþíópíu Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna varar við alvarlegu mannúðarástandi í Eþíópíu vegna átaka sem geisa í norðanverðu landinu. Um 27.000 manns hafa flúið til nágrannaríkisins Súdan er þar er fyrir um milljón flóttamanna. Erlent 17. nóvember 2020 15:41
Þúsundir flýja undan átökum í Eþíópíu Þúsundir íbúa Eþíópíu hafa flúið til Súdan vegna átaka í Tigrayhéraði á milli hersveita ríkisstjórnarinnar og ráðandi fylkinga í héraðinu. Utanaðkomandi aðilum er ekki hleypt í héraðið og búið er að loka á samskipti þaðan. Erlent 11. nóvember 2020 11:41