Þróttur Reykjavík

Þróttur Reykjavík

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Þrótti í Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina

„Ég held að það sé aðallega bara svona spenningur í hópnum. Það verður gaman að fara á þennan völl og spila fyrir framan fullt af fólki og auðvitað er mikið undir en það er líka bara bjútíið við svona úrslitaleiki. Það er gaman að spila leiki þar sem allt er undir,“ segir Arnór Breki Ásþórsson, fyrirliði Fylkis, fyrir úrslitaleikinn gegn Þrótti í dag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Þetta verður spennuleikur í Laugar­dalnum

„Ég er bara hrikalega spennt og bara svona pínu stress en aðallega bara spenningur,“ segir Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, fyrir bikarúrslitaleiknum gegn Grindavík/Njarðvík sem fram fer á Laugardalsvellinum klukkan fjögur í dag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Vona að það verði enginn munur á vellinum“

Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir að það muni kosta mikla vinnu að sjá til þess að völlurinn verði upp á sitt besta fyrir bikarúrslitaleik kvenna í fótbolta á laugardaginn. Aðeins um 17 klukkutímar líða frá fögnuði bikarmeistara karla á vellinum annað kvöld þar til að konurnar hefja þar upphitun daginn eftir.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Á ekki að snúast um karla gegn konum

„Nú er bara spenningur, það er ekkert annað hægt að segja. Það er fiðringur í maganum en þetta verður stór og skemmtilegur dagur og tilfinningin er góð,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari kvennaliðs Þróttar, fyrir bikarúrslitaleik liðsins gegn Grindavík/Njarðvík klukkan fjögur á laugardaginn.

Íslenski boltinn