Segir Kim Kardashian hafa bjargað lífi sínu eftir skotárás Kona sem var skotin fjórum sinnum í skotárás í Kansas síðastliðinn nýársdag segir að samfestingur frá Skims, fatamerki Kim Kardashian, hafi komið í veg fyrir að henni blæddi út eftir árásina. Lífið 19. júlí 2023 11:27
Heitasta sundfatatískan í sumar Sundfatatískan hjá íslensku stjörnunum í sumar einkennist af þríhyrningabikiníi ýmist í svörtu eða skærum litum. Þar má nefna að sundföt fatahönnuðarins Hildar Yeoman njóta töluverðra vinsælda um þessar mundir. Lífið 18. júlí 2023 12:24
Mikil upplifun að vera uppstríluð á tískuviku með ljósmyndara á eftir sér Grafíski hönnuðurinn Embla Óðinsdóttir elskar tísku og notar hana ítrekað til að tjá sína líðan. Embla, sem er búsett í Kaupmannahöfn, segir erfitt að velja sína uppáhalds flík þar sem nánast öll fötin hennar eru í uppáhaldi en gerði þó mögulega bestu kaup sögunnar eitt sinn á Akureyri þegar hún keypti leðurjakka og loðvesti saman á 700 krónur. Embla er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 15. júlí 2023 11:30
Ashley Graham klæddist kjól frá Hildi Yeoman: „Hún ber nafnið mitt rétt fram“ Bandaríska ofurfyrirsætan Ashley Graham er mikill aðdáandi íslenska fatahönnuðarins Hildar Yeoman en hún mætti í spjallþáttinn Live with Kelly and Mark í glæsilegum kjól eftir Hildi. Tíska og hönnun 14. júlí 2023 11:04
Fékk afmælisgjöf sem kostar milljónir Það er greinilega ekki hart í ári hjá rapparahjónunuum Cardi B og Offset. Kulture, dóttir þeirra, fagnaði fimm ára afmæli í gær og fékk ansi veglega afmælisgjöf frá foreldrum sínum, tösku sem yfir rúmlega tvær og hálfar milljónir í íslenskum krónum. Lífið 11. júlí 2023 14:44
Dua Lipa stal senunni á heimsfrumsýningu Barbie Það má með sanni segja að Barbie sé þekkt fyrir glamúr og náði glamúrinn ákveðnu hámarki í gærkvöldi þegar heimsfrumsýningin á Barbie myndinni fór fram í viðburðahúsinu Shrine Auditorium & Expo Hall í Los Angeles. Tíska og hönnun 10. júlí 2023 12:31
„Hef lært með árunum að álit annarra á mér kemur mér bara ekkert við“ Förðunarfræðingurinn Birkir Már Hafberg lýsir stílnum sínum sem tímalausum og stílhreinum en elskar þó stundum að leika sér með æpandi liti. Hann fer sínar eigin leiðir í tískunni, leggur upp úr því að klæða sig fyrir sjálfan sig og segir stíl sinn hafa þróast í einfaldari átt á undanförnum árum. Birkir Már er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 8. júlí 2023 11:31
Ferðast um heiminn eins og alvöru Barbie dúkka Ástralska leikkonan, framleiðandinn og bomban Margot Robbie fer með hlutverk sögulegu dúkkunnar Barbie í samnefndri mynd. Handrit og leikstjórn þessarar nýstárlegu útgáfu af sögu Barbie er í höndum Gretu Gerwick og kemur hún út hérlendis 19. júlí. Robbie hefur nú verið á ferðalagi um heiminn að kynna kvikmyndina og virðist taka hlutverkinu alvarlega í raunheimum, þar sem hún klæðist oftar en ekki bleikum fötum frá fínustu tískuhúsum heimsins. Tíska og hönnun 5. júlí 2023 10:10
Kjólatískan í brúðkaupum sumarsins Brúðkaupstímabilið stendur sem hæst um þessar mundir. Fjöldi fallegra mynda af brúðhjónum og gestum hafa verið áberandi liðnar vikur á samfélagsmiðlum. Kjólaval fyrir veisluhöldin getur reynst vandasamt. Tíska og hönnun 4. júlí 2023 21:49
„Maður notar hádegishléin, pissupásurnar, kvöldin og helgarnar í þessa vinnu“ „Við Elfa höfum þekkst frá því í grunnskóla en fórum í raun ekki að vera mikið saman fyrr en í háskólanum, um og uppúr 2014. Sigrúnu þekkti ég síðan úr fimleikunum í gamla daga,“ segir Vilborg Ásta Árnadóttir til að útskýra tengslin á milli hennar og meðeigenda hennar að visteyri.is, þeim Elfu Rós Helgadóttur og Sigrúnu Dís Hauksdóttur. Atvinnulíf 3. júlí 2023 07:00
„Karlmenn voru með særandi athugasemdir og reyndu við mig á niðrandi hátt“ Dansarinn Bjartey Elín elskar að leika sér með ólíkar týpur þegar það kemur að klæðaburði og rugla aðeins í norminu. Hún er óhrædd við að fara eigin leiðir í fatavali og rannsaka hvernig framkoma annarra getur breyst eftir því hverju hún klæðist. Bjartey Elín er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 1. júlí 2023 11:30
Ofurfyrirsæta á sextugsaldri eignaðist son Enska ofurfyrirsætan Naomi Campbell greindi frá því í dag að hún hefði eignast son og væri orðin tveggja barna móðir, 53 ára að aldri. Lífið 29. júní 2023 22:28
Eftirminnilegast að koma fram í kjól frá Eivöru Tónlistarmaðurinn, leiklistaneminn og lífskúnstnerinn Kristinn Óli Haraldsson, jafnan þekktur sem Króli, hefur gaman að margbreytileika tískunnar. Hann segist duglegur að fá föt af foreldrum sínum að láni og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til þeirra. Undanfarin ár hefur stíllinn hans breyst í það sem kalla mætti „fullorðinslegri“ átt og segist hann ekki vita hvort samfélagslegur þrýstingur spili þar inn í. Króli er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 24. júní 2023 11:30
Pharrell og Louis Vuitton með „allt upp á tíu“ að mati Helga Fyrsta sýning franska tískuhússins Louis Vuitton undir stjórn Pharrell Williams fór fram í París í gær. Á sýningunni mátti sjá fjölmargar stórstjörnur auk forstjóra 66°Norður sem segir að sýningin hafi heppnast vel. Tíska og hönnun 21. júní 2023 18:01
Listrænt ofurpar opnar nýstárlega og skapandi umboðsskrifstofu Listræna parið Sigrún Eva Jónsdóttir og Sonny hefur komið víða að í hinum skapandi heimi. Þau ákváðu snemma árs að sameina krafta sína og er afraksturinn umboðsskrifstofa og skapandi rými undir heitinu Grounded Creative Studios. Skrifstofan opnar í sumar og með verkefninu langar þau að nálgast umboðsheiminn á nýjan hátt. Blaðamaður tók púlsinn á þeim. Lífið 20. júní 2023 12:30
Íslendingar taki Norðmenn til fyrirmyndar hvað varðar 17. júní Þjóðhátíðardagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Hjá Reykvíkingum hófst dagurinn á hátíðarathöfn á Austurvelli þar sem forseti Íslands lagði blómsveig á minnisvarða Jóns Sigurðssonar og flutti forsætisráðherra hátíðarræðu. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra segir Íslendinga geta tekið Norðmenn til fyrirmyndar þegar kemur að þjóðhátíðardeginum. Lífið 17. júní 2023 20:00
„Mér finnst leiðinlegt að vera alveg svartklædd“ Tónlistarkonan Klara Elias leyfir litagleðinni að njóta sín í klæðaburði og er lítið fyrir svartar flíkur. Hún elskar að tengja tónlist og tísku þegar hún kemur fram og er bleikur jakki sem hún klæddist á stóra sviðinu í Herjólfsdal í persónulegu uppáhaldi. Klara Elias er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 17. júní 2023 11:30
HAF hjónin kaupa draumaeignina Hjónin og eigendur hönnunarstúdíósins Haf studio, Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson hafa fest kaup á draumaeigninni við Fjölnisveg 14 í Þingholtunum í Reykjavík. Lífið 16. júní 2023 11:00
„Segjast ætla aldrei að fara í bol aftur“ Töluverð aukning hefur orðið á því hjá ungum konum á að þær láti gata á sér geirvörturnar og virðast ófeimnar við að láta lokkana sjást í gegnum fötin. Lífið 15. júní 2023 13:15
Fór í þriggja daga veislu til Kaupmannahafnar Hönnunarsýningin 3daysofdesign var haldin hátíðleg í Kaupmannahöfn á dögunum. Einn af boðsgestum hátíðarinnar, Elva Hrund Ágústsdóttir útstillingahönnuður sagði upplifunina ógleymanlega. Lífið 14. júní 2023 11:01
„Hræðir mig mest að þurfa að fara aftur í buxur“ „Samfélagið var alltaf að segja okkur að maður gæti ekki dýrkað aðrar konur, það var alltaf verið að stilla okkur upp á móti hvor annarri og maður hefur sjálfur þurft að læra að stíga burtu frá þessari toxic, gömlu og þreyttu samfélagslegri hegðun,“ segir Reykjavíkurdóttirin, hönnuðurinn, framleiðandinn og leikstjórinn Þura Stína. Tíska og hönnun 10. júní 2023 11:30
„Þú verður að vera djörf og það er ekki í boði að upplifa loddaralíðan“ „Ástríða mín fyrir fólki hefur alltaf verið miklu stærri en fyrir vinnunni endilega sem slíkri. Það er svo mikilvægt að láta manneskjunni líða eins vel og henni getur liðið í stólnum hjá manni,“ segir förðunarfræðingurinn Auður Jónsdóttir, sem hefur verið búsett í Los Angeles síðastliðið sjö og hálft ár og unnið þar að fjölbreyttum og spennandi verkefnum. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá hennar lífi. Lífið 10. júní 2023 07:01
„Mikill heiður að vera treyst fyrir svona stóru verkefni“ Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra tók nýverið höndum saman við skartgripalínuna Vera Design. Í kjölfarið hannaði Vera Design nýja fallega skartgripalínu fyrir Kraft og mun allur ágóði renna til félagsins. Lífið 9. júní 2023 11:35
Boozt tekur forystu í samfélagslegri ábyrgð og lokar á óþarfa vöruskil Netverslunarrisinn Boozt setur markið hátt í umhverfismálum og samfélagslegri sjálfbærni og hefur tekið forystu í ábyrgum rafrænum viðskiptum á Norðurlöndunum. Gloria Tramontana, forstöðumaður á sviði sjálfbærni og umhverfismála hjá Boozt, segir tískuiðnaðinn í heild standa frammi fyrir miklum áskorunum í þessum málaflokkum og þurfi að sýna ábyrgð. Samstarf 5. júní 2023 15:20
Sendur ungur til Danmerkur vegna agaleysis á Akureyri Fyrir tveimur árum síðan kom netfataverslunin Boozt inn á íslenska markaðinn. Með látum má segja. Velti til dæmis netversluninni Asos úr sessi með markaðshlutdeild á aðeins örfáum vikum. Og samkvæmt frétt Innherja Vísis haustið 2021, versluðu Íslendingar fatnað hjá Boozt fyrir tæpan milljarð fyrsta hálfa árið. „Það ætlaði allt um koll að keyra,“ er kannski orðatiltæki sem ætti vel við hér. Atvinnulíf 4. júní 2023 08:00
Finnst frábært að nota sömu fötin aftur og aftur Leikkonan Unnur Birna Backman hefur farið í gegnum hin ýmsu tískutímabil. Í dag er hún dugleg að nota sömu fötin aftur og aftur og segir stílinn sinn hafa orðið lágstemmdari með tímanum. Unnur Birna er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 3. júní 2023 11:31
Að læra af mistökum: Frumkvöðullinn gæti til dæmis samið af sér „Það gera allir mistök. Þess vegna snúast mistök í sjálfu sér fyrst og fremst um að læra af þeim og þora að tækla hlutina, finna lausn. Í því felst mikill styrkleiki,“ segir Ellen María Bergsveinsdóttir, framkvæmdastjóri Mink Campers sporthýsanna. Atvinnulíf 31. maí 2023 07:00
Gröf Vivienne Westwood vanhelguð Gröf hinnar goðsagnakenndu Vivienne Westwood, sem lést á síðasta ári, var vanhelguð þegar stóru blómakeri, sem skreytti grafreit hennar, var stolið. Fjöldi fólks hefur lýst yfir hneykslan sinni vegna þjófnaðarins. Erlent 29. maí 2023 14:53
„Lífið er of stutt fyrir óþægileg föt“ Athafnakonan og áhrifavaldurinn Camilla Rut elskar tísku og segir mestu máli skipta að líða vel í flíkunum sem við klæðumst. Hún segir lífið einfaldlega of stutt fyrir óþægileg föt og er hætt að reyna að elta trend sem hún veit að eru ekki fyrir sig. Camilla Rut er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 27. maí 2023 11:30
Hristir upp í hefðbundnum heimilisstíl „Mér finnst alltaf áhugavert að sjá hvað við setjum inn til okkar. Við flytjum inn í einhvern hvítan kassa og svo formum við hann og mótum og breytum öllu. Og mig langaði að koma með innleg inn á heimilið, mér fannst það mjög spennandi,“ segir hönnuðurinn og listakonan Hanna Dís Whitehead, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Menning 24. maí 2023 07:00