Vistaskipti

Vistaskipti

Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.

Fréttamynd

Ráða nýjan for­stjóra þvert á ósk fram­kvæmda­stjóra

Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri SÁÁ. Ráðningin kemur í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fráfarandi forstjóra. Óánægja er með þá ákvörðun meðal starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ og sögðu framkvæmdastjóri lækninga og fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík upp störfum í kjölfarið. Báðar hafa farið fram á að Ragnheiður verði fengin aftur í forstjórastöðuna.

Innlent
Fréttamynd

Ás­mundur skipaður for­seti

Ásmundur Helgason hefur verið skipaður forseti Félagsdóms en hann var áður varaforseti dómsins. Björn L. Bergsson hefur verið skipaður varaforseti eftir að hafa gegnt embætti dómara við Félagsdóm.

Innlent
Fréttamynd

NTV Promennt kaupir Dale Carnegie

NTV Promennt hefur keypt rekstur Dale Carnegie á Íslandi. Unnur Magnúsdóttir segir engan missa vinnuna og félögin verði rekin sem eins konar systurfélög undir sama eignarhaldi. Unnur keypti reksturinn árið 2006 en hefur starfað á vegum Dale Carnegie í 25 ár. Hún segir um mikil tímamót að ræða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sig­rún Ósk mætt á RÚV

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar, snýr aftur í sjónvarpið eftir að hafa tekið sér pásu frá fjölmiðlum og snúið sér að upplýsingagjöf í heimabæ sínum. Hún verður stjórnandi nýs spurningaþáttar í Ríkisútvarpinu.

Lífið
Fréttamynd

Féllu af þingi en fóru ekki langt

Á uppfærðum lista yfir starfsmenn þingflokka á Alþingi má sjá tvo nýja starfsmenn þingflokks Framsóknarflokksins. Það eru þau Jóhann Friðrik Friðriksson og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, sem sátu á Alþingi fyrir flokkinn en féllu af þingi í kosningunum árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Rún frá Veitum til Þor­gerðar Katrínar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ráðið Rún Ingvarsdóttur í stöðu aðstoðarmanns ráðherra. Rún er með M.A. gráðu í alþjóðafræðum frá Berkeley-háskóla í Kaliforníu og býr yfir fjölbreyttri reynslu af samskiptamálum, fjölmiðlum og atvinnulífinu.

Innlent
Fréttamynd

Trausti nýr starfs­maður þing­flokks Mið­flokksins

Trausti Örn Þórðarson er nýr starfsmaður þingflokks hjá Miðflokknum. Hann kemur til flokksins frá Útlendingastofnun þar sem hann hefur starfað síðustu þrjú ár. Í tilkynningu kemur fram að hann muni sinna daglegum störfum þingflokks.

Innlent
Fréttamynd

Brynjar tekur við af Líf

Brynjar Níelsson er nýr formaður stjórnar Faxaflóahafna en ný stjórn var kjörin á framhaldsaðalfundi félagsins 26. ágúst. Fimm af sjö aðalmönnum stjórnar eru nýir.

Innlent
Fréttamynd

Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia

Brynjar Már Brynjólfsson hefur verið ráðinn í stöðu leiðtoga vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Corus. Í starfinu mun hann leiða samstarf við viðskiptavini félagsins og tengja saman ráðgjöf, sölu og vöruþróun. Hann hefur áður starfað hjá Isavia, RB, Origo og Kjarna. Brynjar mun hefja störf hjá félaginu á næstu vikum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Guð­mundur Fertram verður sér­legur erind­reki

Guðmundur Fertram Sigurjónsson hefur tekið við hlutverki sérlegs erindreka fjárfestinga og viðskipta hjá Hringborði norðurslóða. Í því hlutverki mun hann stuðla að auknum fjárfestingum, viðskiptum og frumkvöðlastarfsemi á norðurslóðum fyrir fjárfesta, fyrirtæki og frumkvöðla

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Svan­dís í ritstjórastól

Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vinstri grænna og ráðherra í ýmsum ráðuneytum, sagði skilið við stjórnmálin fyrr á árinu og hefur nýlega tekið að sér nýtt hlutverk. Svandís er nýr ritstjóri tímaritsins Breiðfirðings sem er gefið út árlega af Breiðfirðingafélaginu.

Menning